Vikan - 01.10.1994, Blaðsíða 41
sjálfur að myrða ófætt
barn sem ég gaf þó líf,
þrátt fyrir fáránlegar
ástæður fyrir getnaðinum.
Mér finnst allt hafa snúist
til verri vegar í lífi mínu og
ég hef ekki gaman af neinu
eins og áður,“ segir hann
og er greinilega miður sín.
SJÁLFSELSKA OG
SEKTARKENND
Palli telur sig ekki geta sagt
foreldrum sínum frá sínum
málum og ber því sektar-
kenndina, óhamingjuna og
sjálfsútskúfunina einn og af-
tengdur öðrum. Hann langar
svo til að reyna að bæta
stúlkunni upp, ef hægt væri,
eitthvað af þeim kvölum sem
hann, með sjálfselsku sinni,
skóp henni. „Hvað á ég að
gera, kæra Jóna Rúna? Á
ég að segja foreldrum mín-
um frá þessu? Get ég
losnað við sektarkennd-
ina? Er ég morðingi? Held-
ur þú að hún sé mjög reið
út í mig?
KLAUFASKAPUR OG
VONBRIGDI
Augljóslega hefur vitundin
um að barn hafi komið undir,
eftir eitt vanhugsað nætur-
ævintýri, komið Palla úr jafn-
vægi. Hann varð hræddur
og hugsanlega reiður sjálf-
um sér fyrir klaufaskapinn.
Hann sá enga leið út úr
þessum vanda annan en að
hvetja stúlkuna, þvert á það
sem hún vildi, til að láta
eyða fóstrinu. Hún fór að
ráðum hans í örvæntingu
sinni og þá augljóslega
vegna erfiðra aðstæðna og
svo vegna vonbrigða sinna
með hans afstöðu. Félags-
legar aðstæður hennar voru
slæmar á þessum tíma og
fjölskylda hennar í erfiðleik-
um. Hún kaus samt að halda
barninu, ef hægt væri, og
þess vegna leitaði hún til
hans eftir stuðningi til að
gera það mögulegt. Hann,
aftur á móti, neitaði allri
ábyrgð og vildi losna við
barnið af ótta við óþekkta
ábyrgð og sökgm vanþekk-
ingar.
SÁLFRÆÐIHJÁLP
ÁRÍDANDI
Það er ekkert skrýtið þó að
Palli sé miður sín, eftir á að
hyggja, því það eru ekki
bara áhyggjur út af afdrifum
eydda fóstursins sem hrjá
hann, heldur og ekkert síður
kvætt. Hann vill reyna að
bæta henni upp það sem
gerst hefur. Hún aftur á móti
er mjög ósátt við alla þróun
þessa máls og að gefnu til-
efni ásakar hún Palla fyrir
það, hvernig komið er fyrir
henni. Hún er reið og sár,
sem í sjálfu sér er ekki und-
arlegt. Hún býr við þau skil-
neikvæð afstaða stulkunnar
í hans garð. Það þarf oft
minna til en þessar stað-
reyndir, til að við fyllumst
óbærilegri sektarkennd,
sársauka og sjálfsútskúfun.
Vegna þessara tilfinninga og
atburðarins sjálfs er áríðandi
að Palli panti sér strax tíma
hiá norSloakni nrSp
ingi. Hann getur ekki unnið
sig frá og út úr svona mikilli
vanlíðan og taugaspennu án
þess að fá ráðgjöf fagfólks.
REIÐ OG SÁR
Vissulega er ekkert dularfullt
við það þó að stúlkan vilji
ekki tala við hann þótt hann
óski þess núna, sem er já-
9 TBL. 1994 VIKAN 41