Vikan - 01.10.1994, Síða 43
yrði heima fyrir sem eru
ófullkomin og erfið sökum
áfengisneyslu hennar nán-
ustu. Hún á mjög bágt enn-
þá.
BARNINU OG HENNI
HAFNAÐ
Stúlkan hefur staðið, og
stendur ennþá, í raun ein í
sínum erfiðleikum, eins og
hann gerir reyndar sjálfur.
Hún verður trúlega að takast
á við vanlíðan sína, af ekki
minni óþægindum en hann.
Hún telur Palla væntanlega
ábyrgan fyrir því hvernig
komið er fyrir henni og er því
eðlilega reið út í hann. Ekki
síst sökum þess að það var
hann sem hvatti hana tii að
láta eyða fóstrinu og hafnaði
þar með bæði henni og
barninu. Hann reyndist óá-
byrgur þegar hún þurfti sár-
lega á stuðningi hans að
halda.
ÓVISSA OG
ÖRVÆNTING
Stúlkan veit ekki um hans
vanlíðan, nema mögulega
að því litla leyti sem hann
kann að hafa náð að segja
henni. Það er þvi sþurning,
hvort Palli getur, ef við erum
raunsæ, ætlast til þess eftir
það sem á undan er gengið,
að hún geti sett sig i hans
spor. Hún mögulega lítur
hann öðrum augum í dag en
hún kann að hafa gert þegar
hún af einlægni bað hann
um að hjálpa sér til að geta
eignast barnið þeirra. Hann
sá ekki á þeim tíma neina
leið út úr þeim vanda aðra
en að ráðleggja henni fóstur-
eyðingu. Hún fór að ráðum
hans í sinni óvissu og ör-
væntingu og líður örugglega
töluvert fyrir þá framkvæmd
ennþá. Einmitt vegna þess
að hún kaus ekki sjálf að
eyða fóstrinu.
ERFITT
TILFINNINGALEGT
TÍMABIL
Palli hefur ekki sagt foreldr-
um sínum frá þessari
reynslu sinni. . Hann spyr
hvort hann eigi að gera það.
Vitanlega er mjög mikilvægt
að hann herði sig upp í það,
að segja foreldrum sínum
eins og er. Það er gjörsam-
lega óþærilegt fyrir hann að
burðast einn með þessa
reynslu. Foreldrar hans fá,
með trúnaði hans við þau,
tækifæri til að styðja hann í
gegnum erfitt, tilfinningalegt
tímabil. Til þess að svo megi
verða verður hann segja
þeim eins er og má ekkert
draga undan. Þau munu
hvort sem er komast að öllu
saman fyrr eða síðar. Einn
liður sektarkenndar Palla er
mjög sennilega sá að hann
telur sig hafa brugðist for-
eldrum sínum eins og stúlk-
unni og ófæddu barninu. Ef
hann ætlar að uppræta sekt-
arkenndina verður hann að
takast á við alla þætti þessa
vandmeðfarna máls.
BRÁÐRÆÐI OG
ÞROSKALE YSI
Vegna þess að Palli spyr
hvort hann sé morðingi er
rétt að benda honum á að
eins og honum er Ijóst í dag,
þá hefur hann augljóslega
tekið skakka ákvörðun þegar
hann ráðlagði stúlkunni að
láta eyða fóstrinu. Það er
ekki vegna þess að hann sé
morðingi sem hann komst
að þessari niðurstöðu á sín-
um tíma. Hann var örvænt-
ingarfullur og þekkingarlítill
og taldi sig ekki geta tekist á
við væntanlega atburðarás.
Hann óskaði í bráðræði og
af þroskaleysi eftir fóstur-
eyðingu sökum þess að
hann taldi sig ekki geta borið
ábyrgð á barni og konu.
Hann var ekki í manndráps-
hugleiðingum og verður
aldrei. Sumir segja að fóst-
ureyðingar séu samsvarandi
mannsmorðum og eru harðir
á því að það eigi ekki að
leyfa þær. Aðrir réttlæta fóst-
ureyðingar í einstaka tilvik-
um og þá m.a. af félagsleg-
um mannúðarástæðum. Ein-
mitt þessi staðreynd gæti
verið skýringin á að þessi
fóstureyðing var talin af sér-
fróðum réttlætanleg og þess
vegna framkvæmd.
ÖRVÆNTINGARFULL
FRAMKVÆMD
Viðhorfin til þeirra sem aldrei
hafa litið dagsins Ijós og eru
í móðurkviði þegar þeim er
eytt virðast önnur, í sumum
tilvikum, en til þeirra sem
tapa lífi sínu af öðru tilefni
eftir fæðingu. Með réttlætan-
legri fóstureyðingu er ekki
verið að myrða, álíta sér-
fróðir, fremur líkna í einhverj-
um skilningi þess orðs. Ég
álít að það sé hæpið að
segja að Palli sé morðingi
sökum þess sem gerst hefur.
Hann bendir á þessa ör-
væntingarfullu framkvæmd
sem leið til lausnar á vanda,
sem hann kann ekki að
bregðast við af raunsæi. Ef
uppástunga hans hefði fallið
undir mannsmorð er heldur
ósennilegt að læknar hefðu
framkvæmt þessa fóstureyð-
ingu. Þeir féllust á þessa
framkvæmd væntanlega
vegna þess að þeir hljóta að
hafa verið sannfærðir um að
hún væri nauðsynleg og rétt-
mæt.
LÍKN í ÞRAUT OG
MANNÚÐLEG
VIÐHORF
Fóstureyðingin er alltaf
neyðarúrræði hver svo sem
á í hlut. Hún er ekki eiginleg
lausn á neinum vanda, frem-
ur er hún talin líkn í þraut.
Það sem gert var í tilviki
stúlkunnar á þessu augna-
bliki var talið af sérfróðum
réttlætanlegt. Ástæður
þessa mats þeirra geta auð-
vitað verið margþættar. Palli
og stúlkan bera ekki ein
ábyrgð á framkvæmdinni.
Því þó Palli hafi átt hug-
myndina þá þurftu aðrir og
ábyrgir að taka endanlega
ákvörðun í málinu og fram-
kvæma síðan verkið að vel
athuguðu máli. Morð er þau
manndráp kölluð sem þjóna
engum tilgangi öðrum en að
svala drápfýsn af ásetningi.
Engin fóstureyðing byggist á
þannig mannfyrirlitningu.
Fóstureyðingar byggist á
mannúðlegum sjónarmiðum
sem geta reynst réttlætanleg
við vissar aðstæður og af
ólíkum tilefnum.
EFTIRSJÁ OG
NEYÐARÚRRÆÐI
Á þessum tíma vissi Palli
ekki betur en raun ber vitni
og það er af og frá að dæma
hann vegna þessa máls sem
morðingja. í máli sem þessu
verður vitanlega að miða við
þau viðhorf, sem viðgangast
samfélagslega í einstaka til-
vikum og tengjast fram-
kvæmd sem þessari. Svona
aðgerðir hljóta, eðli málsins
vegna, að flokkast undir
neyðarúrræði en ekki manns-
morð í eðlilegum skilningi
þess hugtaks. Markmið
Palla var aldrei að myrða.
Staðreynd málsins er að
hann tók I örvæntingu og af
vankunnáttu eftirsjáanlega
afstöðu í viðkvæmu og
vandmeðförnu máli.
FRAMKVÆMDIN ER
EKKI EINKAMÁL
Eins og áður er bent á eru
engar fóstureyðingar fram-
kvæmdar á íslandi af ein-
hverri tilviljun. Áður en
svona ákvörðun er tekin
verða væntanlega að liggja
fyrir yfirlýsingar um réttmæti
fóstureyðingarinnar frá ótal
aðilum innan heilbrigðisgeir-
ans. Framkvæmdin sem slík
er því ekkert einkamál Palla.
Eða, eins og örvæntingarfulli
pilturinn sagði af gefnu til-
efni: „Elskurnar mínar. Auð-
vitað geri ég oft vitleysur.
Sem betur fer hef ég lært
töluvert af þeim þegar, enda
er ég að reyna að bæta mig
og þroska. Árangur erfiðis
mfns verður svo bara að
koma í ljós.“
Með vinsemd, Jóna Rúna
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt
dulnefni. Svörin byggjast
á innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður alls ekki hægt
að fá þau í einkabréfi.
Utanáskríftin er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
9 TBL. 1994 VIKAN
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ