Vikan - 01.10.1994, Síða 47
SKOP
Hávaxinn svertingi var
ákærður fyrir nauðgun.
Dómarinn í málinu komst að
þeirri niðurstöðu, eftir að
skýrsla um líkamlegt atgervi
mannsins hafði verið lögð
fram, að maðurinn hefði ekki
getað verið sjálfráður gerða
sinna. Nefnilega vegna þess
að þegar allt gæti verið klárt
til nauðgunar þá væri ekkert
blóð eftir til þess að halda
heilastarfseminni í lagi!
íslenska þjóðin þarf að
gera verulegar varúðarráð-
stafanir vegna mikilla
óeirða sem munu brjótast
út eftir fimmtán ár vegna
þess að þá munu Hafnfirð-
ingar byrja að fatta fyrstu
Hafnarfjarðarbrandarana!
FINNDU 6 VILLUR
STJÖRNUSPA
Litli drengurinn var að gera
þarfir sínar þegar hann kall-
aði fram af klósettinu til
mömmu sinnar þar sem hún
var í eldhúsinu að baka
köku:
„Mamma, má óg síðan
sleikja skálina?"
„Nei, vinur, sturtaðu bara
niður eins og við hin!“
Dvergur, sem var nýkom-
inn úr frægðarför til
nektarnýlendu, var spurð-
ur hvernig honum hefði
líkað.
„Ja,“ svaraði hann, „séð
frá mínum sjónarhóli þá
held ég að flestir skildu það
ef ég líkti þessu við sólar-
strönd þar sem allir líta út
eins og Fidel Castro!"
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
'Bjjæq JO piQupuEH
'9 ujnuiuuBLU e Bu!iÁ0jqÐQ6ijqd!Ag g jbiuba uujunqjBQjnH > ej6u8| J0 Qlliog E JE
-Iuba BSBAddois 'Z 'ujjjoq puAujBBaA \ :BpuAuj miuj p qiqjo ejuq jEBuiiAajq jBp|BP!)|3
HRUTURINN
21. mars - 20. apríl
Þú gætir verið að einbeita
þér of mikið að einhverju tilteknu atriði
sem gæti orðið til þess að þú óviljandi
vanræktir einhvern þér nákominn.
Þótt þú slakir dálítið á ætti það ekki
að koma niður á markmiðum þínum
en myndi gera heilmikið fyrir sam-
band þitt við tiltekinn aðila.
NAUTIÐ
21. apríl - 21. maí
Náin sambönd gætu komið
við veikan blett á þér og truflað heim-
ilislífið, að minnsta kosti tímabundið.
Misklíð kann að koma upp vegna
þess að markmið rekast á og for-
gangsröðin skarast milli þín og ein-
hvers félaga þíns. Það er ekki til að
þæta ástandið að samskiptin eru
stirð. Dragðu þig í hlé og veittu stoð-
um sambandsins óskerta athygli. Þið
gætuð þurft að byrja frá grunni.
TVÍBURARNIR
22. maí - 22. júní
Heilsan gæti verið viðkvæm
þennan mánuðinn, sérstaklega eftir
níunda þvi þá gæti streita gert vart
við sig. Mundu að áhyggjur eru ekki
gott byggingarefni fyrir sjálfsmyndina,
þær verka neikvætt á sálarlífið og
þannig dregið úr líkamlegri mótstöðu.
Taktu þér frí ef þú getur.
KRABBINN
23. júní - 23. júlí
Það er eitthvað í loftinu sem
veldur því að fjölskylda þín er eins og
á nálum. Sumt virðist slitið algerlega
úr samhengi og úlfaldar gerðir úr
mýflugum. Sinntu fjölskyldunni og
haltu umfram allt ró þinni því vanda-
málin eru mun minni en sumir vilja
vera að láta.
UÓNID
24. júlí - 23. ágúst
Sennilega finnst þér þú vera
að sþringa úr atorku og fram-
kvæmdagleði eftir að hafa loksins
tekið ákvörðun um framtíðina.
Ákvörðunin getur þó komið róti á hef-
bundið mynstur daglegs lífs og þú
þarft að takast á við það. Gefðu fjöl-
skyldu þinni sérstaklega gaum í
þessu tilliti. Ræddu málin opinskátt
við þá sem standa þér næst til þess
að hreinsa andrúmsloftið.
MEYJAN
24. ágúst - 23. september
Þig vantar meiri tíma til að
sinna eigin hugðarefnum. Gefðu þér
slíkan tíma því hann er mikilvægari
en þú hyggur og mun auðvelda þér
að fást við örlagaríkar ákvarðanir í
árslok. Þú mátt ekki láta þér þær í
léttu rúmi liggja. En ef þú ert í vafa
skaltu fresta ákvarðanatökunni.
Þiggðu ráð frá öðrum en Kttu ekki á
þau sem heilagan sannleik.
VOGIN
24. sept. - 23. október
Einhver mistök í bókhaldi eða
lítið yfirveguð ráðstöfun á peningum
verður til þess að setja fjármálin úr
skorðum. Allt virðist vera að fara úr
böndunum en svarið er ekkert mjög
flókið. Lærðu af þessari reynslu og
gefðu peningamálunum meiri gaum.
Það er freistandi að eyða um efni fram
þennan mánuðinn en oft reynist flagð
undir fögru skinni. Slakaðu á andlega.
SPORDDREKINN
24. október - 22. nóvember
Eitthvað, sem þú hefur ný-
lega hafist handa við, gæti orðið fyrir
óvæntum töfum. Þú þarft að endur-
skoða allar áætlanir og finna nýjar
leiðir, jafnvel ný markmið. Þér kann
að virðast vandinn óyfirstíganlegur en
ef þú gefur þér dálítinn tíma til þess
að hugsa málið detturðu fljótlega nið-
ur á lausnina. En gerðu það strax til
að lenda ekki í meiri vandræðum.
Haltu ró þinni.
BOGMAÐURINN
23. nóv. - 21. desember
Október gæti reynst þér
þungur í skauti sálarinnar. Sjálfs-
traustið er í lægð og þú átt erfitt með
að taka ákvarðanir. Þetta er senni-
lega óhjákvæmilegur fylgifiskur vegna
staða stjarnanna og líður hjá með
tímanum. Örvæntu því ekki en
reyndu að skilgreina ástandið til að
geta betur meðhöndlað það.
STEINGEITIN
22. desember - 20. janúar
Þó að þú sért félagsvera þá
gæti þér þótt gott að draga þig út úr
hringiðu og skarkala samkvæmislífs-
ins um stundarsakir. Þú gætir þurft að
huga að nánu sambandi við einhvern
og það, ásamt vinnunni, á sennilega
eftir að taka meirhlutann af tíma þín-
um. Á báðum sviðum er líklega (
gangi endurmat á stöðunni og þú
gætir þurft að bæta fyrir mistök sem
þú hefur gert.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
í þessum mánuði gæti dregið
verulega úr framkvæmdahraða þess
sem þú ert að fást við, einkum vegna
þess að þú hefur dregist afturúr eigin
áætlunum. Sinntu því, sem þegar hef-
ur hafist, og bættu ekki fleiru á þig fyrr
en gamlar syndir eru úti úr myndinni.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Besta leiðin að tilteknu mark-
miði þarf um þessar mundir ekki að
vera sú stysta. Þú gætir þurft að
„bakka“ örlítið til þess að geta síðan
haldið áfram. Þú munt sennilega
helga starfinu þorrann af tíma þínum
en mátt samt ekki gleyma öðrum
þáttum tilverunnar.
9. TBL. 1994 VIKAN 47
STJORNUSPA