Vikan


Vikan - 01.10.1994, Qupperneq 54

Vikan - 01.10.1994, Qupperneq 54
AFREKSMAÐUR ar mínir ýttu mér út í þetta,“ segir hann. „Ég var ekki spenntur fyrir sundinu fyrr en ég kepptí úti árin 1988 og 1989.“ Verðlaunapeningarnir hanga á skjöldum á veggj- unum og það er ótrúlegt að hugsa til þess að á svo fáum árum hafi hann unnið til jafn margra verðlauna og raun ber vitni. „Ólympíubronsið mitt er lang merkilegasti peningurinn," segir hann en á Ólympíuleikum fatlaðra í Barcelona á Spáni í hittið- fyrra vann hann bronsið í 400 metra skriðsundi en í allt keppti hann í sjö greinum. Bandaríkjamenn unnu bæði gullið og silfrið. „Ég var svo stressaður á leikunum að ég hafði ekki hugmynd um hvað ég var að gera. Flestir í lið- inu voru búnir að fá verð- launapening og ég var ákveðinn í að gera mitt besta. Ég var í góðu skapi í tvo mánuði á eftir. Það var enginn sem reiknaði með mér í verðlaunasæti. Ég var svo lang yngstur." Birkir seg- ir að það hafi verið einstök tilfinning að ganga inn á leik- vanginn við opnunarhátíðina en tugir þúsunda áhorfenda voru í Barcelona til að fylgj- ast með keppninni. „Það kom á óvart hvað fólk hafði mikinn áhuga á keppninni því það var ekki búist við svona mörgum áhorfend- um.“ Flann segir að á meðan leikunum stóð hafi keppend- um verið haldið sér. „Það voru rútuferðir frá Ólympíu- þorpinu á keppnisstaðinn. Maður keppti, fór heim, borðaði og fór að sofa. Þetta var svona í tíu daga í röð. Við borðuðum mikið af hita- einingaríkum mat eins og pasta og lasagna. Gosið var algjör bannvara og því drukkum við ávaxtasafa sem er nokkuð góður á Spáni. Ég þekki ávaxtasafa frá flestöll- um löndum,“ segir Birkir og hlær. Þegar hann er spurður að því hvers vegna hann sé svona góður í sundi segir hann: „Ég tel mig ekki vera svo góðan í sundi. Það eru bara svo fáir blindir sem æfa. Ég legg rosalega mikið á mig og æfi mjög mikið. Ég hef oft mikið að gera. Það er brjálæði. Sundið er stundum aukabúgrein." Hann segist vera sterkastur í löngum sundum eins og til dæmis í skriðsundi en eins og fram hefur komið vann hann bronsið á Ólympíuleikunum í þeirri grein. Núna er hann farinn að æfa með Breiða- bliki en takmarkið í sundinu er að keppa á mótum ófatl- aðra og ná verðlaunasæti. Hann æfir sex sinnum f viku, þrjá tíma í senn og syndir oftast fjóra til fimm kílómetra. „í nóvember keppi ég á Heimsleikum fatlaðra á Möltu og ég býst við að leggjast inn á spítala í hálft ár á eftir vegna matareitrun- ar,“ segir Birkir. Að undan- förnu hefur hann æft mark- bolta sem felst I því að leik- menn mynda þríhyrning, skjóta boltanum á milli sín og reyna að koma honum í vegg. Hann segist æfa þessa íþrótt tvisvar í mánuði og lítur á hana meira sem „hobbý“ og leggur því enga áherslu á hana. DÚX Í VERSLÓ í gegnum árin hefur maður heyrt að þeir krakkar, sem hafa mikið að gera, standi sig yfirleitt betur í skóla en aðrir. Þetta á vel við um Birki. Hann er búinn með eitt ár í Verslun- arskóla íslands og gerði sér lítið fyrir og varð hæstur í sín- um árgangi á vorprófunum með 9,4 í aðaleinkunn. Býst hann við að dúxa á stúdents- prófi? „Það getur verið,“ segir hann. „Ef ég verð með sömu krökkum þá á ég séns á því.“ Eru skólasystkini hans svona „treg“ eða hvað? „Já, það hlýtur eitthvað að vera,“ segir hann. „Það getur ekki verið ég sem er svona klár. Ég held að þau gætu fengið jafn háar einkunnir en þau eru full löt til þess.“ Hann segir þó að hann leggi mikið á sig en í vetur lærði hann oft til mið- nættis. „Ég get ekki unnið nema undir álagi," segir hann. „Ef maður hefur ekkert að gera nennir maður ekki að gera neitt.“ Hann viðurkennir að hann hafi nokkrum sinn- um sofnað í tímum og því er auðvelt að (mynda sér að hann sitji aftast. „Ég sit fremst," segir hann. Hvað skyldu kennararnir segja við þessu? „Þeir verða ósköp sárir greyin," segir hann. „En hvað geta þeir sagt þegar ég er með 9,4 í meðaleinkunn? Þeir láta mig bara í friði. Ég sofna nú ekkert oft. Það kom kannski fyrir einu sinni eða tvisvar í mánuði og þá oftast í fjórða tíma en ég er yfirleitt mjög syfjaður rétt fyrir há- degi.“ Birkir vinnur alltaf á tölvu sem hann segist vera háður en auk þess er hann með að láni ferðatölvu frá Blindrafé- laginu. „Þetta er ferðatölva með blindraskjá sem kostar yfir átta hundruð þúsund og ég er einn af þeim fyrstu sem fær að prófa hana.“ Hann er metnaðarfullur og ætlar annaðhvort í tölvu- fræði eða hagfræði í háskól- anum. „Ég ætla að verða at- vinnulaus viðskiptafræðing- ur,“ segir hann meira í gríni en alvöru. Ég hef kannski ekki mikinn áhuga á við- skiptum en mér gengur bara ótrúlega vel í hagfræði og bókfærslu." Auk þess hefur hann áhuga á að fara í upp- tökustjórnun í Bandaríkjun- um en það nám tekur nokkra mánuði. „Ég hef það þá bara sem „hobbý“,“ segir hann. í sumar vann Birkir hjá Blindrafélaginu við bursta- gerð. „Virkilega skemmtilegt starf!“ segir hann. „Þetta er ekkert spennandi vinna en allt í lagi. Þetta er eins og að vinna í bæjarvinnunni; mað- ur þarf ekkert að hugsa." Hann fær þó alltént sumar- hýru? „Já, ég er að safna fyrir almennilegu hljóm- borði,“ segir hann. Hljóm- borðið sem ég er að safna fyrir kostar 220.000.“ ORTI NÍÐKVÆÐI Fyrir utan námið, sundið og tónlistina hefur Birkir gaman af því að lesa og eru bæk- urnar „Dalur hestanna", „Þjóð bjarnarins mikla“ og „Mammútaþjóðin" í miklu uppáhaldi. „Þetta eru hörku skemmtilegar bækur,“ segir hann. „Nýjustu bækurnar eru orðnar helst til grófar. Þetta er hálfgerð sería. Það hafa verið gefnir út fjórir doðran- tar og eru þeir allir um sömu persónuna. Fyrsta bókin er algjört meistaraverk. Ég er núna að lesa „Dal hestanna" í fimmta skipti." Birkir hefur ekki skrifað mikið sjálfur en hann orti þó einu sinni Ijóð þar sem hann gerði grín að öllum bekkjarfélögum sínum við lítinn fögnuð. íslensku- kennarinn var þó hrifinn. Hann hefur skrifað fleiri Ijóð og fjalla þau flest um það sem hann hefur upplifað sjálfur. Hann les mikið af spennusögum eins og til dæmis eftir Alistair Maclean og bætir við að honum finn- ist þær vera ómerkilegar bókmenntir. HARMAKVEIN OG DRUNUR Birkir hefur lært á píanó í fimm ár í Tónlistarskóla Garðabæjar og í haust tekur hann fimmta stigs próf. Auk þess hefur hann lært á gítar í eitt ár. Hann segist hafa áhuga á alls kyns tónlist og semur sjálfur. Tónlistaráhug- inn hefur vaknað snemma því hann segist hafa eyðilagt allar kökudósir síðan hann var átta ára. Stóra trommu- settið hans er því eflaust sterkbyggðara en umræddar kökudósir. Hann er í nafn- lausri hljómsveit og er nýbúið að skipta um söngvara og hefur tónlist hljómsveitarinn- ar breyst eftir það. „Ég hlusta rosalega mikið á tónlist," seg- ir Birkir og er kominn með gítar f fangið. „Uppáhalds- bandið til langs tíma var hljómsveit sem hét Therapy með spurningamerki fyrir aft- an. Þetta var voðalega pönk- legt. Núna er allt komið meira út í „plein“ þungarokk eins og til dæmis hljómsveitir eins og Mirvana og Pearl Jam.“ Hvernig mundi hann lýsa dauðarokki? „Dauðarokkið. Það er bara rugl,“ segir Birkir. „Nú verður einhver móðgað- ur. Það er bara algjört rugl. Söngvarinn reynir að drynja eins og naut í árásarhug. Mér fínnst þetta vera sóun á hæfileikum." Hann hlustar á sígilda tónlist og segir að Mozart sé alltaf góður. „Þess- ir stóru kallar eru allir góðir. Bach er sá sem leynir virki- lega á sér í sambandi við spilamennsku." Hins vegar er hann ekki hrifinn af óperum. „Ég þoli ekki óperur. Það er eins og verið sé að stinga og kvelja óperusöngvara. Þetta eru hálfgerð kvalakvein í þeim. Sjálfsagt breytist þessi skoðun min með aldrinum." Þar sem Birkir er blindur lærir hann ekki að lesa nótur eins og þeir sem sjáandi eru. Honum er því sagt hvaða nótur er um að ræða hverju sinni. „Sterkasta greinin mín er að muna símanúmer, tölur og tónlist. Þetta er bara þjálf- un og ekkert annað og það geta allir komið sér upp í þetta,“ segir Birkir og er far- inn að spila á gítarinn sinn lag Erics Claptons „Tears in Heaven". 54 VIKAN 9. TBL. 1994
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.