Vikan - 28.05.1998, Síða 40
Nöldur Vikunnar.
Eru íslendingar farnir að apa ósiðina eftir
bandarísku samfélagi þar sem auglýsingar
á þessa leið: „AHt sem þú getur í þig látið
fyrir aðeins...$", dynja á fólki dag eftir
dag? Og það í landi þar sem offita er
verulegt heilbrigðisvandamál. Eða hvers vegna er allt að
verða svona stórt og mikið óhóf hér á landi? Barnaísinn
er orðinn jafn stór og fullorðinsísinn var fyrir nokkrum
árum! Kók er ekki drukkið í 30 sentilítraflöskum lengur
heldur tveggja lítra dunkum! Kvikmyndahús eru
stundum með tilboð þar sem stærðarinnar
súkkulaðistykki fylgir með fyrir 10 krónur aukalega! Allt
er gert til að fá okkur til að borða meira og borða stærri
skammta. Hverjum er greiði gerður með þessum
tilboðum?
Kæri lesandi, er eitthvað sem ergir þig? Sendu
okkur línu. „Nöldur Vikunnar" , Vikan Seljavegi 2,
101 Reykjavík eða hringdu í símsvara Vikunnar
s: 515-5690
Kántrídans
NÝJASTA ÚTFLUTNINGSVARA
Viðtal: Anna Kristine Magnúsdóttir
r Mynd: Gísli Egill Hrafnsson
Kántrídansaæði hefur ríkt á
íslandi síðustu þrjú árin,
eftir að hinn ungi og
efnilegi danskennari Jóhann Örn
Ólafsson kynnti dansinn fyrir þjóðinni.
Nú hafa um 6000 Islendingar lært
línudans hjá Jóa - og því kominn tími
til að færa út kvíarnar. Kínverjar eru
næstir á dagskrá!
Jóhann Örn heldur til Hong Kong 14.
júní þar sem hann mun koma fram á
skemmtunum og kenna kántrídansa.
Auk þess liggur leið Jóhanns Arnar til
Kína og eyjunnar Macaui:
"Danskennarinn Bo Loft Jensen, sem
hefur komið nokkrum sinnurn hingað
til lands, hafði verið með kabarett á
svona sýningum ásarnt eiginkonu sinni,
Helle, þegar þau voru heimsmeistarar í
samkvæmisdönsum. Fyrirtækið, sem
stendur fyrir þessum skemmtunum,
heitir "Inter-Art-Link" og sú hugmynd
kom upp hjá forsvarsmönnum þess að
láta sýna kántrídansa í sumar. Þau
leituðu til Bo, sem er búsettur í
Bretlandi, og hann benti á mig.”
"Ætlar að kenna milljónum kántrídans í
beinni sjónvarpsútsendingu!"
Bo Loft Jensen hafði séð Jóhann Örn
skemmta hér á landi og greinilegt að
honum hefur þótt mun rneira til Jóa
koma en breskra kántrídansara:
"Nema hann þekki enga kántrídansara
í Bretlandi!" segir Jóhann Örn.
Strax við komuna til Hong Kong á
Jóhann Örn að mæta í beina
útsendingu á sjónvarpsstöð og búast
má við að milljónir áhorfenda sjái
þennan íslenska kántríkóng okkar:
"Þar segi ég nokkur orð og kenni
hálfan dans eða svo!" segir Jóhann
Örn.
Eftir því sem Jóhann Örn hefur
fregnað er það einkum efnað fólk sem
sækir skemmtanirnar þar sem hann
kemur fram: "Það hefur frétt af
línudansi héðan að "westan" og er
spennt fyrir að læra hann," segir
Jóhann Örn og setur á sig hvíta hattinn
og kúrekastígvélin úr snákaskinninu,
en hann fjárfesti í þessum nýja búnaði
þegar hann dansaði með innfæddum á
Flórída um jólin. Fiskur hvað?!