Vikan


Vikan - 15.03.1999, Blaðsíða 11

Vikan - 15.03.1999, Blaðsíða 11
„ Við skiptum liði, hvor hjón fóru sína leið og við eyddum heilum degi í risa- stórri verslunarmiðstöð og það átti að „dressa" mann- skapinn upp. Við hittumst síðan um kvöldið og fórum að taka upp úr pokunum. Og hvað haldiði ?! Fyrst drógum við upp nákvæm- lega eins buxur sem voru keyptar á eiginmennina, síð- an eins jakka og síðast rúllukragapeysur sem voru líka nákvæmlega eins, nema sitt hvor liturinn.“ „ Og ekki nóg með það, Dagný keypti líka ná- kvæmlega eins kápu á sjálfa sig eins og ég hafði verið að kaupa. Þá fannst mér þetta ekkert sniðugt leng- ur,“ bætir Gréta við. Bar(r)ónar, þreyttar húsmæður og annað eins systkina- par! „Við erum alltaf að verða samrýndari og tengjast sterkari vin- áttuböndum með ár- unum. Við eigum sameiginleg áhugamál og erum saman í frí- stundunum líka. Við erum í hópi níu hjóna sem eru búin að halda hóp- inn í næstum þrjá áratugi.“ Þetta er vinahópur sem greinilega viðheldur andan- um frá unglingsárunum, það sýnir myndaalbúmið úr klúbbunum. Það er svo sannarlega léttur blær, galsi og hlátur á myndunum. Stelpurnar eru saman í klúbb sem heitir „þreyttar húsmæður“ en strákarnir í öðrum sem heitir „barrón- ar“. Stafsetningin á nafni þessa klúbbs er að vísu svo- lítið á reiki, en það gerir ekkert til, hann er ekki verri fyrir því. Þessum klúbbum fylgir alls konar húll- umhæ og það fyndnasta við þetta allt saman er að þar eru önnur systkini sem eru líka gift innbyrðis! Þau heita Jón Steingrímsson og Kristín Sigurðardóttir og Arni Steingrímsson og Steinunn Sigurðardóttir. Þetta er sennilega alveg ein- stakt, að minnsta kosti á ís- landi.“ Hestamennska og sameiginlegur sumarbústaður En skyldleikinn og vináttan er ekki það eina því þessi samrýndu hjón eiga sameig- inlegt því þau eiga líka sam- eiginlega áhugamál s.s hestamennsku. Það voru Friðrik og Gréta sem byrj- uðu. „ Við byrjuðum í hesta- mennskunni fyrir um það bil 15 árum, en það tók Ingólf og Dagnýju nokkur ár að smitast. Þau voru sett á bak öðru hverju og það tókst að smita þau af bakt- eríunni. Nú erum við öll á kafi í þessu saman. Þetta tekur ansi mikinn tíma og við erum margar stundirn- ar í hesthúsinu sem við byggðum saman. Þeir sem taka hestamennsk- una alvarlega hafa ekki mikinn tíma af- gangs fyrir önnur áhugamál. Fyrir u.þ.b. 10 árum keyptum við svo sum- arbústað í Villingaholts- hreppnum til að geta verið með hestana þar yfir sumar- ið. Sumarið er yndislegur tími til að stússa við hest- ana. Meðan bjart er allan sólarhringinn þá er hesta- mennskan skemmtilegust og gefur manni mest. Sumar- bústaðurinn hefur orðið til þess að við eyðum eigin- lega öllum okk- ar frítíma sam- an, við erum þar alltaf þegar við get- um, sinnum hestunum, plöntum og njótum náttúr- unnar. Þetta er bara allt al- veg eins og það á að vera.“ Vikan 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.