Vikan - 15.03.1999, Side 13
Tiittiigii hörn á (iiltiigu áriim!
lesa og hvernig þeim
gengur í prófunum.
Það tilheyrir því að
vera pabbi, hvort
sem þú átt eitt barn
eða nítján.“
Börnin hjálpa til á ^ ,
heimilinu og fá vasapen- '
inga í staðinn. Nicola segir
þau gera sér grein fyrir því
að svona heimilishald kalli
á margar hendur til þess að
vinna verkin. Yfirleitt eru
þau meðfærileg og góð.
„Annars eru sokkapörin
upplögð refsing fyrir litlu
krakkana þegar þau haga
sér illa,“ segir hún hlæjandi.
,Stöku sokkunum er safnað
saman í stóran plastpoka og
ég læt þau flokka þá sam-
an.“
Mörgum verður eflaust á
að velta fyrir sér hvernig
hægt sé að viðhalda róman-
tíkinni í hjónabandi sem
einkennist af mikilli vinnu
og áhyggjum af daglegu
brauði. Kevin segir ástæð-
una einfalda. „Ég er jafn
skotinn í Nicolu nú og dag-
inn sem ég sá hana fyrst,“
segir hann. „Ég gæti þess að
láta það í ljósi, oft kaupi ég
handa henni blóm og
konfekt. Einu sinni í viku
förum við tvö út að borða
og
eyðum
kvöldinu saman í
ró og næði. Og vel á
minnst, við getum læst að
okkur svefnherberginu,"
bætir hann við skellihlæj-
andi.“
Nicola segist verða reið
þegar fólk kallar hana út-
ungunarvél. „Ég er oft
spurð að því hvers vegna í
ósköpunum ég haldi áfram
að eignast börn og hvort ég
hafi aldrei heyrt talað um
getnaðarvarnir. Staðreyndin
er sú að ég elska að vera
ófrísk. Börnin hafa öll verið
jafn velkomin í heiminn. Ég
nota ekki getnaðarvarnir og
það hefur aldrei hvarflað að
mér að fara í ófrjósemisað-
gerð. Það getur vel verið að
ég eigi eftir að eignast enn
fleiri börn.“
„Allt sem ég óskaði mér í
lífinu var að eignast íbúð og
góðan bíl og lifa rólegu lífi,“
segir Kevin. „En stendur
ekki einhvers staðar skrifað
að maður uppskeri eins og
maður sái!“
NITJAN SYSTKINI HVERT MEÐ SÍN SÉRKENNI
Svona lýsa Nicola og Kevin börnunum sínum nítján sem
þau segja vera jafn ólík og þau eru mörg.
Anthony - 21 árs - gáfaður, alltaf á fullu og dálítið hátt
stemmdur. Hann er í háskóla og lærir eðlisfræði.
Alexander -19 ára - rólyndur og feiminn. Hann er ný-
byrjaður í háskóla og ætlar sér að verða félags- og af-
brotafræðingur.
Sara -18 ára - viljasterk og ákveðin. Hún mun örugg-
lega komast vel af í framtíðinni.
Victoria -17 ára - móðurleg gagnvart yngri systkinunum
og mjög áreiðanleg. Hún er nýbyrjuð að búa og á sex
mánaða gamlan strák.
Charlotta -16 ára - þroskuð, fullorðinsleg, skynsöm og
mikill hugsuður. Hún starfar sem bankagjaldkeri.
James -15 ára - æringi með hjarta úr gulli. Hann stefnir
að því að verða matreiðslumaður.
Damien -14 ára - dæmigerður táningur með fótbolta-
dellu. Ætlar sér að verða atvinnumaður í fótbolta.
Adam -13 ára - ákveðinn í því að verða leikari.
Katie -12 ára - daman í fjölskyldunni og fljót að láta sig
hverfa þegar minnst er á uppvaskið. Hún ætlar að giftast
ríkum manni og láta hann stjana við sig.
Emma -11 ára - stjórnsöm og hefur heraga á þeim litlu.
Daníel -10 ára og Alistair 9 ára - eru óaðskiljanlegir og
vilja helst gera allt saman.
Louise - 8 ára - fullorðinsleg eftir aldri. Stundum væri
hægt að trúa því að hún og Sara væru tvíburar þrátt fyrir
10 ára aldursmun.
Rebecca - 7 ára - hefur ekkert á móti því að skipa heið-
urssæti yngstu systurinnar og kallar sig prinsessuna hans
pabba.
Oliver - 6 ára - elskar tvær manneskjur út af lífinu,
mömmu og Victoriu systur.
Eliot - 5 ára - ómótstæðilegt kvennagull, þrátt fyrir ung-
an aldur.
Ashley - 4 ára - með munninn fyrir neðan nefið og elsk-
ar að hleypa öllu í bál og brand.
Aiden - 3 ára og William -18 mánaða - litlu börnin í
fjölskyldunni. Sjónvarpsgláparar af bestu gerð!
Vikan 13