Vikan - 15.03.1999, Síða 57
Nokkur góð ráð til að bæta útlitið og klæðaburðinn
1. Berðu höfuðið hátt. Það er ekkert ljótara en signar axlir
og hengdur haus. Líkamsburður af þeim toga sendir
þau skilboð ein að viðkomandi sé að biðjast innilegrar
afsökunar á tilveru sinni.
2. Notaðu aldrei of mikið ilmvatn. Ef þú finnur sjálf
lyktina af ilmvatninu þínu hentar það þér ekki eða þú
hefur notað of mikið. Sumar sprauta ilmvatninu út í
loftið og ganga síðan í gegnum ilmvatnsskýið og láta
duga það sem loðir við þær.
3. Notaðu aldrei sterka liti bæði á augu og varir.
Ef augnskugginn, augnblýanturinn og önnur
augnmálning er sterk, litaðu þá varirnar í ljósari og
mýkri litum, annars er hætta á að þú virkir illskuleg.
4. Skiptu ekki um háralit oftar en einu sinni á ári.
Fáðu þér heldur stípur til að fríska upp á litinn en
varastu að hafa í hárinu meira en þrjá liti í einu.
5. Ef þér finnst virkilega vanta að hressa aðeins upp á
útlitið kauptu þér þá nýjan varalit. Ef þér finnst þú föl
og þreytuleg er fátt sem lífgar meira upp á andlitið og
fallega rauður varalitur.
Viltu tryggja að það sé stíll yfir þér?
Finnst þér oft erfitt að vita hvort þú hef-
ur málað þig rétt eða klæðst þeim föt-
um sem einmitt hæfa þér best á þessari
stundu? Hér á eftir koma nokkur ráð úr
hinum og þessum áttum frá hárgreiðslu-
fólki, snyrtifræðingum og fatahönnuð-
um. Eflaust duga þau misvel en einhver
þeirra ættu að vera hyggindi sem í hag
kunna að koma þegar einhver vill breyta
um stíl eða bæta og fríska upp á sitt
venjulega útlit.
6. Til að varirnar virki þykkari og fallegri er gott ráð að
setja ljóst gloss yfir varalitinn, á miðjum munninum,
en ekki út til hliðanna.
7. Veldu varablýant sem hæfir eðlilegum lit vara þinna
ekki til samræmis við varalitinn þinn. Þá virka varirnar
fallega mótaðar og athygli samborgaranna beinist ekki
eingöngu að sterkum línum kringum munn þinn.
8. Ef þú sérð flík sem þú heillast af, kauptu hana umsvifa-
laust ef þú mögulega getur. Ást við fyrstu sýn verður oft
að ævilöngu ástarsambandi og ef þú bíður er ekki víst
að flíkin verði til þegar þú kemur næst.
9. Láttu aldrei tískusveiflur eingöngu ráða litavali á
fatnaði. Notaðu alltaf uppáhaldslitina þína því oftast
eru það þeir sem klæða þig best.
10. í klæðaskáp hverrar konu ætti að vera til eitt sítt, beint,
svart pils og jakki í hlutlausum lit með klassísku sniði.
Þessar flíkur ganga við hvað sem er og má grípa til við
hvaða tækifæri sem er.
Vikan 57
Texti: Steingerður Steinarsdóttir