Vikan


Vikan - 15.03.1999, Page 61

Vikan - 15.03.1999, Page 61
Sli HJÓNABANDIÐ í HIMNALAGI Þaö hefur gengið á ýmsu í hjónabandi Jane Fonda og milljónamæringsins Ted Turner undanfarna mánuði en nú virðist allt hafa fallið í Ijúfa löð á ný. Þau heimsóttu Spán fyrir skömmu og voru gestir konungshjónanna Juan Carlos og Soffíu. Sjónavott- ar segja að þau hafi látið eins og ástfangnir táning- ar. Jane og Ted hafa sótt tíma hjá hjónabandsráð- gjafa til að lappa upp á sambandið en þau giftu sig fyrir sjö árum. Heimildir herma að Ted hafi ekki sinnt eiginkonunni sem skildi og haft meiri áhuga á að auka viðskiptaveldi sitt og koma sér áfram í stjórnmálaheiminum. Nú er annað uppi á teningn- um og Jane fær meiri athygli. „Hjónabandsráðgjöfin virkaði greinilega. Nú tala þau opinskátt um hlutina og hjónabandið er betra en nokkru sinni fyrr. Hann er hættur að blaðra um áhuga sinn á forsetafram- boði og eyðir meiri tíma með eiginkonunni," segir ónefndur vinur hjónanna. Rós Vikunnar því að vera svona ung í anda og lífsglöð“, segir barna- barn hennar, Kristín Ólafsdóttir sem tilnefnir ömmu sína, Dórótheu Friðriku Ólafsdóttur, Lönguhlíð 2, 105 Reykjavík til Rósar Vikunnar. „Amma hefur oft átt erfitt í lífinu og bjó við kröpp kjör en eignaðist 5 börn. Hún hefur misst ástvini í veik- indum og af slysförum, samt er hún alltaf hlæjandi. Hún skellir sér í leikhús og í kaffi með vinkonunum og það er svo gaman að vera nálægt henni.“ Vikan óskar Dórótheu til hamingju með afmælið og hún fær sendan glæsilegan rósavönd frá íslenskum blómaframleiðendum. Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík“ og segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir valinu og fær sendan glæsilegan rósavönd frá Blómamiðstöðinni. ^ BRASTA OGURSTUND Julianna Margulies leikur hjúkkuna Carol Hathaway í Bráðavaktinni og sambýlis- maður hennar, Ron Eldard, lék sjúkraflutningamann í þáttunum. Þau vorujþó ekki með rétt handtökin a hreinu þegar matargestur á veit- ingastað, sem þau snæddu á, varð skyndiiega mjög föl- ur og leið útaf. Leikaraparið stóð aðgerðarlaust og vissi ekkert hvað átti til bragðs i að taka. En kona á næsta borði var fljót að átta sig á að um slæmt ofnæmiskast væri að ræða og bjargaði málunum. HANDTEKINN FYRIR HEIMILIS- OFBELDI Leikarinn Gary Busey var handtekinn á dögunum eftir að hafa ráðist á eiginkonu sína á heimili þeirra í Malibu. Eiginkonan, Tiani, segir að leikarinn hafi „gripið um axlir hennar og þröngvað henni til að leggjast í jörðina" en það voru engir sjáanlegir áverkar á henni þegar lögregla kom á staðinn. Busey má muna fífil sinn fegurri. Hann var til- nefndur til óskarsverðlauna árið 1978 fyrir frammistöðu sína í myndinni The Buddy Holly Story en dópfíkn hans varð til þess að hann komst aldrei á toppinn í Hollywood. Hann sást síðast í hasar- myndinni Soldier með Kurt FSussell. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann kemur við sögu lögreglunnar en hann hefur glímt við áfengis- og eiturlyfjafíkn undanfarin ár. Hann var nær dauða en lífi eftir mótorhjólaslys árið 1988 og fyrir fjórum árum hringdi Tiani í neyðarlínuna þegar hún fann Busey rænulaus- ann eftir að hann hafði tekið of stóran skammt af eiturlyfj- um.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.