Vikan - 07.09.1999, Page 6
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: úr einkasafni
Ung stúlka sat stjörf
af hrifningu að sýn-
ingu lokinni hjá leik-
hópnum „Theatre de
Complicite“ á listahá-
tíð 1994. Leikkonu-
draumurinn hafði
lengi blundað innra
með henni en eftir að
hafa upplifað dásam-
lega stund með leik-
hópnum var hún
harðákveðin í að ger-
ast leikkona, hvað
sem það kostaði. Hún
hélt á vit ævintýranna
í London með viljan
að vopni og fjórum
árum seinna var hún
sjálf orðin leikkona.
Ekki nóg með það
heldur var hún líka
orðin hluti af leik-
hópnum „Theatre de
Complicite“. Ásta Sig-
hvats stendur í
ströngu við að æfa
„Allir mínir stærstu
draumar rættust á
sama tíma“
Á'
ÍJLe
1 \ i éák
\%i
Ásla að gera sig klára fyr-
ir að slífja á svift í jap-
anska þjóftleikluisinu.
næsta hlutverk sitt
því fljótlega mun hún
leika á sviðinu í Royal
National Theatre í
London.
sta var stödd á ís-
landi fyrir skömmu
eftir langt og
strangt ferðalag alla leið frá
Japan með stuttri viðkomu í
London. Þrátt fyrir annir gaf
hún sér tíma fyrir smáspjall
yfir kaffibolla. Ásta iðar af
lífi þegar hún segir frá.
Stundum notar hún líka
hendurnar þegar henni ligg-
ur mikið á hjarta. Eftir
stutta stund með Ástu er
ekki annað hægt en að njóta
þess að fylgjast með henni
tjá sig af lífi og sál.
Leiklistarbakterían blund-
aði lengi í Ástu. Hún stund-
aði nám við Menntaskólann
við Hamrahlíð og tók þátt í
einni upp-
færslu með
leiklistarhóp
skólans.
Samhliða
náminu lék
hún mikið í
leiksmiðju
Kramhússins
sem saman-
stóð af
áhugasömu
ungu fólki.
Stór hluti
hópsins er
útskrifaðir leikarar í dag.
Ásta lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við
Hamrahlíð árið 1992 og stóð
á krossgötum. Hún reyndi
fyrir sér í alls kyns störfum,
vann meðal annars sem
skrifta fyrir sjónvarpið á
tímabili. Eftir að hafa
kynnst hinum almenna
vinnumarkaði varð hún
harðákveðin í að gerast leik-
kona. Hún reyndi að komast
í gegnum „síuna" alræmdu í
Leiklistarskóla íslands en
gekk illa. Ásta er ekki tilbú-
in að taka undir þá gagn-
rýni, sem inntökunefndin
fær gjarnan að loknum inn-
tökuprófum, að þar sé um
klíkuskap að ræða. „Eg held
að málið snúist miklu frekar
um að þeir sem þekkja til
fólksins í inntökunefndinni
séu afslappaðri en hinir sem
upplifa prófið á annan hátt.
Það auðveldar hlutina yfir-
leitt alltaf þegar maður
þekkir mann. í dag sé ég
hvað ég hefði getað gert
betur og hvað mér hefur far-
ið mikið fram. Eg sótti
tvisvar sinnum um inn-
göngu, fór í inntökupróf en
gekk illa. Eg minnist þess að
það var mikið rætt um
hversu langt maður komist í
þessu ágæta prófi. Ég komst
ekki langt og var miður mín
vegna þess. Það er ekki
andlega upplífgandi að vera
hafnað tvisvar og ég man að
ég hugsaði mig vandlega um
hvort ég ætti að fara í þriðja
skiptið. Mér fannst það bara
of mikið fyrir stoltið að
verða hugsanlega hafnað í
þriðja sinn. Upphaflega ætl-
aði ég í leiklistarnám erlend-
is. Þegar ég fór að hugsa það
betur fannst mér það of dýrt
og ákvað að sækja um hér
heima. Eftir að önnur til-
raunin mistókst fór ég aftur
að huga að skólum erlendis.
í veikri von sótti ég um
nokkra skóla í Bretlandi en
gamli óttinn blossaði upp
þegar ég var að sækja um.
Ég hugsaði með mér að ég
væri ekki efni í leikara ef
mér yrði líka hafnað þar.
Mér til mikillar undrunar
fékk ég inngöngu í þrjá
skóla og því gat ég valið
þann sem mér leist best á.
Það var frábær tilfinning."
Sjálfsþekking hluti
námsins
Middlesex University í
London varð fyrir valinu.
Mér leist best á hann meðal
annars vegna þess að hann
er ekki eingöngu listahá-
skóli. Við inntökuprófið
hitti ég einn kennara skól-
ans sem ég náði mjög góðu
sambandi við. Sá maður hef-
ur hjálpað mér mikið og
veitti mér mitt fyrsta tæki-
færi þegar ég var hálfnuð í
náminu. Hann mælti líka
með mér við aðra leikstjóra.
Við skólann starfaði hóp-
ur annarra frábærra kennara
sem komu sitt út hvorri átt-
inni. Það gaf okkur nemend-
unurn gott tækifæri til að
starfa með þeim. Ári eftir að
ég útskrifaðist var leiklistar-
deildin lögð niður sem mér
finnst mikil synd. Deildin
var búin að skapa sér gott
orð þrátt fyrir ungan aldur.
Leiklistarnámið tók þrjú ár
og á fyrstu tveimur árunum
var lögð áhersla á radd-
vinnslu, textameðferð og
senur. Stærsti hluti námsins
6 Vikan