Vikan


Vikan - 07.09.1999, Blaðsíða 30

Vikan - 07.09.1999, Blaðsíða 30
Honum fannst þetta vægast sagt ósann- gjörn tilviljun. Tilviljun sem breytti öllu án þess að nokkuð hefði í rauninni breyst. Hún staðfesti ástand sem þau hingað til höfðu tekið gott og gilt með þögninni. En raskaði því um leið. Og hvílík tilviljun! í fyrsta lagi var hann ekki vanur að gefa konum hýrt auga. Hann minntist þess ekki að hafa gert það síðan hann kvæntist. í öðru lagi var með ólíkind- um að hann skyldi vera staddur þarna nákvæmlega á þessu augnabliki. Hann hafði mætt til fundar við ungan mann sem vildi ólmur kynna honum tölvu- forrit, en kom að lokuðum dyr- um. Beið fyrir utan dyrnar í 15 mínútur, yppti öxlum og gekk í burtu. Fundurinn hefði í öllu falli tekið lengri tíma en 15 mínútur. Þá hefði ekkert gerst. Fundarfallið var furðulegt og gerði hann ringlaðan: Minni spámenn forsmáðu ekki tæki- færi til að hitta hann, gæfust þau á annað borð. Og sjálfur var hann að breyta út af vana sínum með því að fara til fund- ar við svo veigalítinn aðila sem hann að auki þekkti ekkert til. Það var engin áþreifanleg ástæða fyrir því að hann hafði breytl út af þessum vana. Bara hugdetta og óvænt eirðarleysi. Haustsólin hafði brotist út úr skýjum á meðan hann beið inni í húsinu og tók á móti honum með skyndilegri ofbirtu eftir rökkrið í fáfengilegum stiga- ganginum. Eitt augnablik hafði hugsunarleysi og þögul kyrrð hrifið hann úr hans vanalega hugarástandi sem snerist um vinnuna og reksturinn, alltaf, allan daginn og öll kvöld og líka í næturdraumum. Hann ætlaði að stíga inn í bíi- inn, var enn í þessari leiðslu, en rak þá skyndilega augun í huggulega konu. Hún virtist vera á milli fertugs og fimm- tugs, klædd í dökkbláa skrif- stofudragt með skollitt hár bundið í hnút. Fremur sviplíti! kona en honum fannst hún fal- leg þarna í haustsólinni. Hon- um fannst hún vel vaxin og hann lét augun ferðast um lík- ama hennar um leið og hann hugsaði: Hvað hefur eiginlega gripið mig? Konan mætti augum hans og varð skyndilega á svipinn eins og hún þekkti hann. Hann gaf henni það sem hann áleit vera ísmeygilegt bros. Við það virtist undrun grípa konuna uns svipur hennar varð í senn hörkulegur og vonsvikinn. Hún settist inn í rauðan smá- bíl. Hann settist sneyptur inn í sína bifreið. í sama rnund sótti á hann óþægilegur grunur um að ekki væri allt með felldu. Honum varð hugsað til þess að smábíllinn var af sömu gerð og með sama lit og bfll konunnar hans, enda algeng tegund og al- gengur litur. En það var ekki fyrr enn rauði bíllinn ók greitt framhjá að honum varð ljóst að þetta hafði verið konan hans. Atvikið framkallaðist spegil- slétt og hnífskarpt í hugskotinu: svipur hennar rétt áður en hún steig inn í bflinn. Hann þekkti þennan svip, hann þekkti þessi þreytulegu vonbrigði. Hún hafði áttað sig á því að hann bar ekki kennsl á hana. Henni hafði orðið það ljóst í þann mund sem hún ætlaði að heilsa upp á hann. II Einhvern tfma hafði hún spurt hvort hann þyrfti að vinna svona mikið. Hann gat ekki svarað henni. Mundi bara að einu sinni hafði hann mætt í strigaskóm á jólatrésskemmtun í barnaskóla vegna þess að hann átti ekki spariskó. í fjölskyldu hans hafði öllum mistekist allt, afrakstur alls erf- iðis hafði brunnið upp í báli óreglu, hömluleysis og eirðar- leysis. Líf hvers einasta ættingja hans var meira og minna merkt sömu ógæfunni. Einhvern tíma hafði hún spurt hvort hann teldi sig ekki þurfa að sinna henni og börn- unurn bara af því hann skaffaði nóga peninga. Hann gat ekki svarað því. Mundi bara að einu sinni hafði hann verið á þeim aldri þegar ekki hvarflaði að honum að efast um visku for- eldra sinna. Og þá frétti hann að þau væru að flytja í nýtt hús, úr gamla vistlega timburhúsinu sem þau höfðu búið í frá fæð- ingu hans. En svo kom í ljós að nýi bústaðurinn var ekki hús heldur þriggja herbergja íbúð í húsi. Ári síðar voru þau flutt í tveggja herbergja íbúð og það var fyrsta leigufbúðin. Stuttu eftir það flutti hann með móður sinni og tveimur systkinum í aðra tveggja herbergja leiguí- búð í eigu borgarinnar. Hún spurði hann hvenær hann ætlaði að hætta að óttast að hann yrði eins og fjölskylda hans, því allt benti í þveröfuga átt, hann var fyrstur þeirra til að drekka ekki, fyrstur til að ganga menntaveginn, sá eini sem hafði efnast. I þetta sinn vissi hann svarið en gat ekki látið það uppi: Ótt- inn sem hafði knúið vinnuárátt- una var horfinn en stritið var orðið að ómótstæðilegri nautn. Núna var hún fyrir löngu hætt að spyrja slíkra spurninga. Hún spurði í hæsta lagi hvort hann hefði heyrt veðurspána og hann svaraði henni annars hug- ar án þess að líta upp úr blað- inu, pappírunum eða ferðatölv- unni. Eða svaraði henni ekki. Nálægð hennar var notaleg eins og öll nálægð sem maður hefur vanist svo vel að maður tekur ekki eftir henni. Rödd hennar rann saman við bflaniðinn af götunni, fréttirnar í útvarpinu og þögnina. Líkamsilmur henn- ar rann saman við húslyktina. Hann hugsaði aldrei um hana 30 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.