Vikan


Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 23

Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 23
mín lokast. Andinn mikli gerir sig heimakominn og ósjálfrátt renna fram hugrenningar um Guð, vitundina, sál- ina og tímann þegar þessi magnaði heimur vaggar mér í kjöltu sér við suð flugna. Steinn Steinarr kemur gang- andi út úr hvítunni og kyrjar með bogadreginni rödd: Tíminn er eins og vatnið, og vatnið er kalt og djúpt eins og vitund mín sjálfs. Og tíminn er eins og mynd, sem er máluð afvatninu og mér til hálfs. Og tíminn og vatnið renna veglaust til þurrðar inn í vitund mín sjálfs. Lónið gerir mann andaktugann og rnaður gæti hæglega setið þarna á steininum til eilífðarnóns eða orðið einn af jökunum köldu ef bílflauta ryfi ekki kyrrðina. Leyndardómurinn um Guð bíður betri tíma en leynd lónsins verður manni hugstæð á leiðinni í Skaftafell. f ljós kemur, þegar sagan er skoðuð að lónið er bráðungt og fékk mynd á sig um miðja þessa öld. Ain sem rennur í lón- ið er ein stysta á landsins, um 1500 metrar og kemur undan Breiðamerk- urjökli, þeim ljóta, ófrýnilega og illfæra sem talað er um í bók Árna Óla, Land- ið er fagurt og frítt frá 1944. Þar segir um jökuiinn: „Fremst er hann lágur og flezt út á sandinn, en hækkar smám saman og myndar tilsýndar bungu á milli fjallanna. Fyrir nokkrum árum gekk jökullinn miklu lengra fram á sandinn en nú, eða nær alla leið út að sjó.“ Og jökullinn hopar hratt, með og sest á stein, hinir ferðamennirnir fikra sig með varfærni á aðra steina eða þúfur og munda tökutækin. Það er blankalogn, sól skín í heiði og ein og ein fluga suðar hjá líkt og sendiboði Guðs. Verurnar taka á sig mynd ísjaka sem mara þarna á lóninu í hópum. Þegar rýnt er í birtuna og formin skýr- ast fær hver jaki fyrir sig sérstakan svip og sá svipur er seiðandi eins og arabísk dansmey í túrkisgrænu silki. Höfgi þeirra og það sem virðist meðvitað samspil fær mann til að sundla, um- hverfið verður að blárri slæðu og vit hækkandi hitastigi jarðar vex lónið stöðugt að umfangi og bilið milli vatns og báru þynnist. Nú eru menn orðnir uggandi um brúna yfir Jökulsá því sjór gengur upp í lónið og brim sverfur frá brúarstólpunum. Þetta vekur spurning- ar um lónið, landslagið og hvað jökull- inn geymi eiginlega. í tímaritinu Skaft- fellingi frá 1993 rakst ég á grein um breska jarð- og landfræðinga sem verið hafa hér og rannskað jökulinn og lónið frá miðri öldinni. Árið 1975 gerðu þeir dýptarmælingar á Jökulsárlóni undir forystu manns af nafni G. S. Boulton og komust að undarlegri niðurstöðu. Mælingarnar sýndu að lónið næði minnsta kosti 120 metra niður um lítt hörðnuð setlög og samkvæmt því gæti hugsanlega verið þarna alldjúpur set- fylltur dalur í framhaldi af Breiða- merkurdjúpi. Flugurnar suða sem aldrei fyrr og sögurnar sem ég heyrði í æsku um huldufólk og hulda dali verða ljóslifandi, leyndardómar landsins raungerast hér og dulin sagan verður sönn. Rannsóknir Bretanna árétta fyrri tíma tilgátur manna um að þarna hafi í fyrndinni verið fjörður en þarna þafa fundist kuðungar og skeljar. Árið 1906 rannsakaði dr. Helgi Pjeturs svæðið og fann um ellefu tegundir lindýra sem reyndust hlýsjávartegundir sem lifa að- eins fyrir Suðurlandi. Helgi taldi að þarna hefði einhverntíma verið sjór þar sem jökullinn hafði skriðið fram og líklegast væru þessar leifar frá lokum ísaldar og því nokkur þúsund ára gamlar. Við aldursgreiningu G. S. Boulton og félaga reyndust þær um 5.500 ára gamlar og kenning Helga rétt. Enn á ný fer tíminn í hring og úr klakaböndum kemur hann enn og aft- ur dalurinn leyndi líkt og úr þjóðsögu og breytir ásýnd landsins. Spádómar pýramídans mikla virðast á næsta leyti og hver veit nema dalurinn dularfulli verði blómleg sveit háþróaðs iðandi mannlífs þeirrar guðlegu nándar sem færði mig nær eilífðinni rétt fyrir alda- hvörfin, enda „lifa menn aðeins tvisvar“ þegar Jökulsárlón á í hlut. Is- inn breytist í vatn og vatnið í vitund þessá suðurfjarðar sem framtíðin ber í skauti sér. Vikan 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.