Vikan


Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 28

Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 28
Eg vorkenni ekki s Ég las á dögunum grein í Vikunni um konur og alkóhólisma sem hafði mikil áhrif á mig. Sjálf hef ég barist við alkó- hólisma í yfir tuttugu ár en hef verið þurr í bráð- um átta mánuði en það er lengsta tímabil sem mér hefur tekist að halda mér edrú til þessa. Greinin snart mig ekki hvað síst vegna fyrirsagnarinnar um að læra þyrfti að hata áfengissýkina en elska sjúklinginn. Ég hef í gegnum tíðina gengið fram af flestum mínum nánustu og á enga vini heldur aðeins drykkjufélaga. Edrú sé ég hlutina í allt öðru Ijósi en ég gerði áður og skil nú að sú fram- koma sem ég neyddi fólk til að þola er óaf- sakanleg. Mér ætlar að reynast erfiðast að sættast við fyllibyttuna í mér. g það er einmitt það. Er ég og fylli- byttan sama per- sónan? Ég veit að „hún“ sagði oft hluti sem mér dytti aldrei í hug að segja og gerði margt sem ég myndi aldrei gera. Var það þá bara alkó- hólið sem stjórnaði gerðum mínum þá og er mér óhætt að skella skuldinni á það? Eða er þessi viðbjóðslega kona sem flæktist dauða- drukkin milli bara, undi sér vel í félagsskap karlmanna, sem ég myndi aldrei leggja lag mitt við, og ofbauð börn- unum sínum með því að liggja ósjálfbjarga hingað og þangað inni á heimilinu fyrir allra augum, partur af mér og mínum persónuleika. Ég var eins og hver önnur unglingsstúlka í mennta- skóla þegar ég byrjaði að drekka. Ég býst við að ég komi frá því sem telst „fínt“ heimili því pabbi var emb- ættismaður og mamma vel menntuð útivinnandi kona sem var svo sem ekkert al- gengt á þeim tíma. Heima voru oft haldnar fínar veisl- ur. Pabbi átti alltaf áfengi og oft fengu foreldrar mínir sér vín með mat eða sérríglas á eftir. Ég var mikið engla- barn fram yfir fermingu. Amma mín sem var sjúk- lingur bjó inni á heimilinu og hún ól mig upp að miklu leyti. Amma var mjög trúuð og kenndi mér, barninu, að meta kristnidóminn. Það varð til þess að ég hélt mig frá öllum ósiðum þótt það kostaði mig nokkrar óvin- sældir meðal skólafélag- anna. Ég fór í annan mennta- skóla en hinir úr mínum bekk og byrjaði því með óskrifað blað. Það vissi eng- inn að ég var englabarn sem ekki reykti og smakkaði aldrei vín. Stelpurnar gáfu sig því að mér eins og öðr- um og ég var boðin velkom- in í hópinn. I fyrsta skipti frá því að svokölluð unglingsár byrjuðu leið mér vel og mér fannst ég vera viðurkennd. Félagarnir gerðu bara ráð fyrir að ég drykki og ég var aldrei spurð hvort ég vildi drekka heldur boðið vín þegar ég var ekki með neitt með mér. Freistingin að halda áfram að vera með, falla inn í hópinn var of sterk og ég byrjaði að drekka. Við drukkum ekki bjór eða létt vín á þessum árum eins og nú er algengt. Yfirleitt voru margir um hverja flösku og keypt það sterkasta sem hægt var að fá svo allir fyndu á sér. Fljótlega fór að bera á því að ég þurfti meira til að finna á mér en hinar. Ég fór þess vegna að drýgja mínar birgðir með því að stela frá pabba. í fyrstu hellti ég af flöskum með glærum vínum og fyllti upp með vatni en svo fór ég að taka heilu flöskurnar. í kjallaranum var geymt léttvín í kössum og stundum afgangar úr veislum. Ég gekk í þetta eins og ég ætti það sjálf og fyllti upp í eyðurnar með tómum flöskum eða reyndi að kaupa nýjar í staðinn þegar ég átti fyrir því. Auðvitað kom að því að pabbi uppgötvaði hvað gekk á. Það varð mikið uppþot í fjölskyldunni og amma var ekki mönnum sinnandi. Ég laug að stelpurnar, vinkonur mínar, hefðu beðið mig að stela fyrir sig og að ég hefði ekki smakkað dropa af áfenginu sjálf. Mér var bannað að hitta vinkonurn- ar um tíma og pabbi ætlaði að tala við foreldra þeirra. Ég grátbað hann um að láta það vera og fékk að lokum talið hann af því með að út- skýra að eftir langt erfið- leikatímabil ætti ég loks vini og hann mætti ekki spilla því. Ég sagðist sjálf ætla að segja stelpunum til synd- anna og það var samþykkt. Pabbi féllst á að þetta væru bernskubrek sem ekki væri þess virði að gera stórmál úr. Að sjálfsögðu tryggði ég mig líka í hinum hópnum með að segja að ég hefði orðið að ljúga til að firra mig stórvandræðum og varla þarf að taka það fram að ég umgekkst vinkonurnar rétt eins og áður, laumaðist út um helgar þótt ég væri í far- banni og hélt áfram að drekka ótæpilega. Ég var innan við tvítugt þegar ég upplifði mín fyrstu „black-out“ eða óminn- isköst. Þetta var ákaflega óþægileg reynsla. Mér voru sagðar alls konar sögur dag- 28 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.