Vikan


Vikan - 07.09.1999, Side 47

Vikan - 07.09.1999, Side 47
EftirDiane Guest. Þórunn Stefánsdóttir þýddi. skal sjá til þess að þú lendir ekki í ofninum! Komdu nú, við skulum fá okkur að borða. Eru búinn að æfa þig á píanóið? Hún las sannleikann úr svip hans og kveið viðbrögð- um Julians. Þvoðu þér um hendurnar Hildy, sagði Elise vingjarn- lega þegar þau komu inn. Og þú líka Christian, bætti hún við. Þarna sérðu, hvíslaði Hildy að bróður sínum. Hún er alls ekki svo slæm. Þetta er eintóm ímyndun í þér. Þegar klukkan var tíu mínútur yfir sjö stóð Kaiser aftur við útidyr Ferrare- fjölskyldunnar. Julian opn- aði dyrnar og fylgdi honum inn í setustofuna þar sem gestirnir voru saman komn- ir. Kasier þekkti marga þeirra þar sem hann hafði oft komið til Nantucket. Hann skimaði eftir Francescu en sá hana hvergi. Systkinin tvö sátu á litlum sófa við hliðina á flyglinum. Kaiser gekk til þeirra. Halló, sagði hann. Hildy brosti kurteislega. Halló, sagði hún. Christian þagði. Ætlið þið að borða með okkur? spurði Kaiser. Ó nei, svaraði Hildy. Við erum búin að borða. Christian þagði ennþá og sat og horfði í gaupnir sér. Ertu búinn að segja systur þinni frá álnum sem við sáum í gær? Christian kinkaði kolli en leit ekki upp. Christian hefur gaman af svoleiðis löguðu, sagði Hildy. En þú, hvað með þig? spurði Kaiser og brosti til hennar. Hún gretti sig. Einu sinni þekkti ég litla stelpu sem hafði gaman af að veiða ál. Bæði börnin þögðu. Þið viljið kannski fá að vera í friði? spurði hann skilningsríkur. Við erum að vona að Juli- an muni ekki eftir því að við erum hér, hvíslaði Hildy. Hvers vegna? Hildy starði á hann. Lofar þú að segja engum? Kaiser kinkaði kolli. Hann biður okkur örugg- lega um að spila fyrir gest- ina, sagði hún lágum rómi, og Christian er ekki búinn að æfa sig. Ég skil, sagði Kaiser. Og þá verður Julian reiður. Loksins leit Christian upp. Hann kemur til með að hata mig. Kaiser brá, en áður en hann gat sagt eitthvað sagði Julian: Nú gæti ég trúað því að Christian langaði til þess að spila fyrir okkur. Ekki satt Christian? Kaiser sá hræðsluna skína úr litlu andlitinu og reyndi að láta sér detta eitthvað í hug til þess að koma Christi- an til hjálpar. í því stóð Hildy á fætur. Ég skal spila, sagði hún. Seinna góða mín. Fyrst ætlum við að hlusta á Christian. Röddin var kuldaleg og andrúmsloftið í herberginu þvingað. Kaiser tók utan um axlirnar á Christian. Drífðu þig bara Christian, sagði hann. Ég spilaði líka á píanó þegar ég var á þínum aldri. Það er sama hversu illa þú spilar, þú getur ekki verið verri en ég. Karlar eins og við erum betri veiðimenn en tónlistarmenn. Viltu koma með mér að veiða á morgun? Hann leit á Julian. Það er að segja ef pabbi þinn gefur þér leyfi til þess. Enginn hreyfði sig og eng- inn sagði orð. Það var eins og allir væru orðnir að stein- um. Kaiser fann að Julian var öskureiður. Elise stóð við hliðina á honum eins og þaninn bogastrengur. Áður en Kaiser gat sagt eitthvað sem dró úr spennunni heyrðist sagt: Auðvitað má Christian fara. Mikið er fal- legt af þér að bjóða honum með þér. Þetta var Francesca. Hún sneri sér að börnunum. Það er kominn háttatími. í rúmið með ykk- ur! Það var eins og einhver hefði gefið merki um að það væri óhætt að draga andann á ný og allir byrjuðu að hlæja og tala. Francesca faðmaði börnin að sér og ýtti þeim út úr dyrunum. Hildy sneri sér við og brosti til Kaiser. Brosið sagði hon- um að hún myndi aldrei gleyma því sem hann hafði gert fyrir litla bróður henn- ar. Emma Gledhill, sem Kaiser hafði oft hitt áður, gekk til hans. Þakka þér fyr- ir, sagði hún lágum rómi. Hvað er eiginlega á seyði? spurði hann. Hér er hvorki staður né stund til þess að ræða það. Hún þagnaði þegar þau heyrðu óhugnanlegt hljóð, eins og einhver væri í dauðateygjunum. Elise Ferrare datt meðvitundar- laus í gólfið. I tilefni aldamótanna! •CtaUocf: Kortöwj 1806 Mynd NO. 76563 kr. 3720.- sendum í póstkröfu The Craft Collection Itd Póstlisti kr. 400.- Breskar útsaumsvörur Útsaumsgarn og efni Ýmis smávara Bútasaumsefni Bækurog sniö HAMRABORG 7 SIMI/FAX: 564-4131

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.