Vikan


Vikan - 07.09.1999, Side 51

Vikan - 07.09.1999, Side 51
fá sér kökur og tertur. Ég má borða súkkulaði sem er hveitilaust en það er mjög oft hveiti í súkkulaði. Ég er samt búin að finna nokkrar súkkulaðitegundir á íslandi sem ég má borða. Lakkrís er yfirleitt eina sæl- gætið sem ég get borðað. Ég les alltaf á umbúðirnar á því sem ég er ekki vön að borða og sérstaklega sælgætinu. Ég get bara tekið einn bita en ef ég fæ mér meira verð ég bara veik.“ Að sögn Ólafar, er úrvalið á glútenlausum fæðutegund- um töluvert meira í Svíþjóð en á íslandi. Skýringin kann að vera sú að glútenóþol er mun algegnara í Svíþjóð en á íslandi. Þar er t.d. hægt að kaupa tilbúna glútenlausa pizzabotna, hamborgara- brauð og pasta. Á McDon- ald’s er hægt að panta sér- staklega hamborgara með glútenlausu hamborgara- brauði. Á meðan Hanna Kristín mátti ekki borða egg reyndi rnikið á hugmynda- flug móðurinnar við mat- reiðsluna. Hrísgrjón í stað eggja Hún var búin að koma sér upp ákveðnu kerfi þegar hún var að elda og baka. T.d. notaði hún eina mat- skeið af hrísgrjónagraut í staðinn fyrir eitt egg. Hún var ekki að eltast mikið við sérstakar uppskriftir heldur reyndi frekar að aðlaga venjulegar mataruppskriftir að fæðuóþoli dótturinnar. Ólöf segir að það sé aðdá- unarvert hversu mikið tillit foreldrar annarra barna taka til hennar. Fyrir öll afmæli eða veislur hringja þeir til Ólafar og spyrja hvað Hanna Kristín megi borða og hvað ekki. Þeir útbúa gjarna sérstaka rétti bara fyrir hana og flestir þeirra eiga til kex sem hún má borða, bara til að geta boðið henni upp á þegar hún kemur heim með vinum sínum. I mötuneyti skól- ans fær Hanna Kristín sérstak- lega útbúinn mat- arbakka með glútenlausu fæði. Hanna Kristín var á förum frá Islandi þegar við hittum hana að máli. Að eigin sögn var hún ekki alveg tilbúin að fara frá íslandi en hlakkar samt til að komast til Svíþjóðar að hitta pabba sinn, vini og ættingja. Henni fannst verst að hafa ekki komist í Bláa lónið. Hún ætlaði að fara þangað ásamt systur sinni sem tók upp á því að veikjast á meðan þær dvöldu á höfuðborgarsvæð- inu og því missti Hanna Kristín af ferðinni í Bláa lónið. Hún er harðákveðin í að kíkja þangað næsta sum- ar. Hvort finnst þér nú skemmtilegra að vera á Is- landi eða í Svíþjóð? „Mér finnst alltaf gaman að koma til íslands. Um leið og ég er komin til Svíþjóðar byrja ég að hlakka til að koma aftur í sveitina til ömmu og afa. Mér finnst svo margt skemmtilegt á Islandi. Ég stoppa alltaf stutt í Reykjavík en þegar ég fer þangað finnst mér skemmti- legast að fara í fatabúðir. Hérna er miklu meira úrval af flottum fötum en í Sví- þjóð. Mér finnst líka margt gott í Svíþjóð. Ég hef alltaf átt heima þar nema þegar ég var fimm ára átti ég heima á íslandi í eitt ár. Allir vinir mínir eru í Svíþjóð. Ég get ekki gert upp á milli land- anna. Ég vildi samt vera lengur á íslandi á sumrin, a.m.k. í tvo mánuði. Mig langar að prófa einhvern tímann að búa á íslandi og þá í sveitinni. Ég er mjög hrifin af dýrum, sérstaklega hestum. Mér finnst ég ekki komin til íslands fyrr en ég er komin heim til ömmu og afa.“ Vikan 51

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.