Vikan


Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 53

Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 53
r f-:A i I ÍKl Kæri póstur Ég er nítján ára og búin að vera með sama stráknum í bráðum þrjú ár. Við erum mjög góðir vinir og hann er í alla staði ágætur. Hann dekrar við mig, færir mér gjafir og er alltaf að bjóða mér út og stundum elska ég hann ofboðslega. Hann er miklu betri en ég á skilið. Ég varð nefnilega hrifin af öðrurn í vor og fjarlægðist kærastann minn unt tíma. Hann fann það vel og ég viðurkenndi að ég væri skot- in í öðrum. Hann áfelldist mig ekki, sagði mér bara að ég yrði að velja og á endan- um valdi ég hann því mér þykir mjög vænt um hann. Ég veit að ég valdi rétt. Núna er hann búinn að biðja mig að trúlofast sér á þriggja ára afmælinu okkar sem er í nóvember. Mér þykir ofsalega vænt um hann, en ég er samt eitthvað smeyk. Ég er ekki vön að spyrja aðra um ráð og þess vegna skrifa ég þér, ég vil ekki spyrja vinkonur mínar eða aðra sem ég þekki, ég vil ekki að þeir viti að ég er ekki viss. Ein rugluð Kæra Rugluð Kærastinn þinn er greini- lega besti drengur og þú ert heppin að hafa hitt hann. En hann er ekkert betri en þú átt skilið, láttu þér ekki detta það í hug! Mér sýnist þú líka vera trygg og trú og þykja raunverulega mjög vænt um hann. Það er auð- velt að hrífast af fólki þegar maður er svona ungur og ekkert óeðlilegt að þú hafir hrifist af einhverjum öðrum unt stundarsakir. En það er ekki þar með sagt að þú eigir að trúlofast honum núna. Þú gerir hvorki honum né þér sjálfri nokkurn greiða með því að bindast honum meira en orðið er, ef þú ert ekki full- komlega ákveðin í því að það sé það eina rétta. Vænt- umþykja er nauðsynlegur þáttur í sambandi sem á að endast lengi, en þú verður að vera viss um að ást þín sé líka sönn og að þú sért að trúlofast honum vegna þess að þú vilt það sjálf. Ef ást ykkar er sönn þá þolir trúlofunin bið, jafnvel fram á fjörgurra ára afmæl- ið. Það væri ekki gaman fyr- ir ykkur ef þú fengir annað smáskot eftir trúlofunina og þess vegna er betra að láta lengra líða áður en þú ákveður nokkuð. Þú verður að vera alveg viss. Kæri póstur Ég flutti til Reykjavíkur í sumar og verð að fara í skól- ann núna í haust. Ég kvíði svo mikið fyrir, en mamma segir að það verði allt í lagi þegar ég kem þangað. Ég held samt ekki, ég er ekki búin að kynnast neinum stelpum ennþá, ég held þær vilji ekki þekkja mig. Dulnefni Kæra Dulnefni Ég kalla þig bara það því mér fannst það góð hug- mynd hjá þér! Ég get vel skilið að þú kvíðir skólanum. Þú skrifar ekki hvað þú ert gömul, en ég giska á að þú sért u.þ.b. 11 ára. Það getur verið erfitt að flytja milli byggð- arlaga á þessurn aldri og þurfa að kynnast nýju fólki og eignast nýja félaga. Mér finnst ekkert skrítið að þú sért ekki farin að kynnast stelpunum ennþá, þetta er svo stuttur tími og á sumrin eru allir uppteknir við sitt. Það segir ekkert um það hvort stelpurnar vilja þekkja þig eða ekki. Vertu viss, þú kynnist krökkunum þegar þú byrjar í skólan um. Þú verður að muna að í skólunum í Reykjavík eru svo margir krakkar að það er alveg ör- uggt að einhvers staðar í hópnum er stelpa á þínu reki sem verður vinkona þín seinna. Vertu ekkert að flýta þér að finna hana, kannski finnur hún þig. Farðu bara jákvæð og glöð í skólann. Stúlka, sem er svo úræðagóð að hún skrifar Vikunni þeg- ar hún veit ekki hvert hún á að snúa sér, mun örugglega finna sér leið inn í félags- skapinn. Mundu líka að gef- ast aldrei upp. Maður á alltaf að leita sér hjálpar ef manni líður illa. Spurningar má senda til „Kæri Póstur“ Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Farið er með öll bréf sem trúnaðarmál og þau birt undir dulnefni. LESIÐ UR SKRIFT Vikan num l'ramvcgis bjóða lcsendum sínum upp á þá þjónuslu að lála lcsa úr skril’l. IJt úr skril’tinni má lcsa skapgcrðarcinkcnni og stundum cr hægl að gcl’a ráð um hvaða slörl’og líl’sstíll hcnti viðkomandi bcsl. Þeir scm liafa áhuga á að l’á lcsið úr skril’t sinni cru bcðnir að scnda okkui' bciðni um það í l'ácinum orðum. Síðan skril'a þcir nal'nið sitl á hvítt, autl blað scm látið cr l'ylgja mcð og scnda þetla lil okkar mcrkt: Vikan - skrifl Seljavegi 2 101 Reykjavík Vikan 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.