Vikan


Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 54

Vikan - 07.09.1999, Qupperneq 54
Ég tók margar örlaga- ríkar ákvarðanir sem ung stúlka. Núna þegar ég er orðin eldri horfi ég til baka og sé eftir mörgu sem ég gerði. Mín mestu mistök í líf- inu voru að trúa því sem í bréfinu stóð að unnusti minn væri ást- fanginn af annarri stúlku. Eg var rétt í kringum tví- tugt þegar ég hitti stóru ást- ina. Við skul- um kalla hann Ólaf þótt það sé ekki hans rétta nafn. Við hrifumst strax hvort af öðru og framtíðin var björt. Ég hafði lokið skyldunámi en var óákveðin um framhaldið en Ólafur var í háskólanámi. Við vorum ekki farin að búa saman en eyddum öllum stundum saman. Ari eftir að við kynntumst bauðst mér það tækifæri að fara í skóla og læra fræði sem ekki voru kennd á íslandi. Námið tók eitt ár. Ég hafði lengi borið þennan draum í brjósti mér. Ég hafði alltaf verið ákveðin í því að verða ekki bara gagnfræðingur heldur mennta mig meira og því fannst mér upplagt að flytja til Danmerkur. Ólafur var hins vegar ekki búinn að ljúka námi sínu hérna heima og því var ekki hentugt fyrir hann að flytja á þeim tíma- punkti. Ég vissi ekki alveg hvað ég átti að gera. Mig langaði mikið að fara en helst vildi ég líka að Ólafur kæmi með. Mér fannst tæki- færið vera þess eðlis að ég myndi alltaf sjá eftir því að fara ekki. Ég sá vinkonur mína festast í hlutverki hús- mæðra áður en þær sáu heiminn, ég vildi fara aðrar leiðir. Ég hugsaði með mér að ef ástin væri sönn myndi hún þola fjarlægðina. Faðir minn var sjómaður og oft lengi í burtu í einu, ég sá hversu vel foreldrar mínir stóðu saman þótt hann væri mikið frá. Fjölskylda og vin- ir þrýstu á mig að fara utan og Ólafur hvatti mig líka heilshugar. Hann sagði að hann kæmist ekki fyrr en eftir a.m.k. ár og ef mér lík- aði vel þá myndum við hefja búskap í Danmörku. Annars myndi ég bara vera í eitt ár og koma heim aftur. Á þess- um tíma voru flugferðir ekki eins tíðar og í dag og miklu dýrara að kaupa flugmiða. Foreldrar okkar sýndu þessu mikinn skilning og vildu gefa okkur farmiða svo við gætum hist á árinu. Við ákváðum að ég kæmi heim um jólin og Ólafur myndi e.t.v. koma út til mín um sumarið. Ég tók örlaga- ríka ákvörðun um að gerast heimsborgari og flytja til Danmerkur. Erfið kveðjustund Ég man hversu kvíðin ég var þegar brottfarardagur- inn nálgaðist. Vinkonur mínar voru með stjörnur í augunum og fannst að ég hlyti að vera sú heppnasta í heiminum að vera að fara til Kaupmannahafnar. Ólafur bar sig vel og reyndi að hvetja mig í hvert skipti sem ég fékk bakþanka um að fara. Loksins rann dagurinn upp. Fjölskyldur okkar beggja fylgdu mér út á flug- völl ásamt Ólafi. Faðmlag hans var hlýtt og þétt. Við lofuðum að skrifast reglu- lega á og minntum hvort annað á að ég kæmi heim eftir einungis fjóra mánuði. Mér leiddist hræðilega fyrstu vikurnar og dauðsá eftir að hafa farið. Þegar u.þ.b. mánuður var liðinn af dvölinni fór mér að líða bet- ur. Ég fékk mörg bréf frá Ólafi og ég var ekki lengi að svara honum til baka. Ég sá strax að Ólafur var rnaður- inn sem mig langaði að eyða ævinni með. Ég var næstum því ákveðin í að fara alfarin heim um jólin þegar eitt bréfa hans barst í hendur mér. I því kvað við nýjan tón. Hann skrifaði að hann væri orðinn ástfanginn af annarri stúlku á íslandi. Fjarvera mín hefði gert það að verk- urn að hann fór að hugsa sinn gang og sæi að það sem væri okkar á milli væri ekki ást. Nýja stúlkan í lífi hans væri stóra ástin og hann bað mig að hafa ekki oftar sam- band við sig. Ég sat með bréfið í hönd- unum og skalf í drykklanga stund. Síðan byrjaði ég að gráta og grét það sem eftir var dagsins. Ég hafði ekki oft hringt heim en þetta kvöld hringdi ég hágrátandi til móður minnar sem var greinilega brugðið við frétt- ina. Hún reyndist mér mikil hjálparhella þótt heilt haf væri á rnilli okkar. Hún skrifaði mér strax og reyndi að hringja þegar hún gat. Á þessum tíma var oft erfitt að hringja á milli landa. Ég skrifaði Ólafi bréf, þótt hann hefði beðið mig um að láta sig í friði. Ég var mjög fegin eftir á að hafa skrifað honum nákvæmlega hvað mér bjó í brjósti jafn- vel þótt hann vildi ekkert með mig hafa. Mamma vildi endilega að ég kæmi heim um jólin og keypti handa mér flugmiða. Foreldrar mínir og systkin komu til að taka á móti mér og reyndust mér vel. Enginn spurði mig spurninga varðandi Ólaf og allir reyndu að finna eitt- hvað sniðugt að gera svo ég myndi ekki setjast ein út í horn með hugsanir mínar. Ég reyndi að forðast staði þar sem ég gæti hugsanlega hitt hann en auðvitað lang- aði mig að sjá framan í hann og leyfa honum að horfast í augu við mig. Hann skrifaði mér að hann væri orðinn ástfang- inn af annarri stúlku á íslandi. Fjarvera min hefði gert það að verkum að hann fór að hugsa sinn gang og sæi að það sem væri okkar á milli væri ekki ást. Nýja stúlkan i lífi hans væri stóra ástin og hann bað mig að hafa ekki oftar sam- band við sig. 54 Vikaii
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.