Vikan - 07.09.1999, Page 62
Ekki iiiissa sif■ ■ ■
■■■ KeiSuliollintii i Öskjuhliði Þetta er einmitt staöurinn þegar mann langar til aö gera eitt-
hvaö nýtt og skemmtilegt. í Keiluhöllinni er góö aðstaða til að stunda keilu og þaö er stórskemmtilegt að fara þangaö
meö fjölskyldunni eða vinnufélög-
unum og eiga góða stund.
... skemmti-
legum leik
meö fjölskyldunni. Það
er fátt skemmtilegra en
aö setjast niður, allir
saman, og spila. Þegar
fólk fer aö leika sér
saman skiþtist það á
skoðunum á jákvæðan
hátt, hlær saman og kynnist öðru vísi en í daglegu amstri. Leikir
og spil eru auk þess mjög þroskandi fyrir bæði fullorðna og
þörn.
flestum bóka- og leikfangabúðum ertil ágætis úrval af
skemmtilegum leikjum og byrjendur ættu að kaupa
pakka með blöndu af léttum spilum sem auðvelt
er að læra svo sem myllu, slönguspil og lúdó.
Seinna meir, þegar allir eru orðnir svo leikvanir
að þeir eru hættir að vera tapsárir, er svo hægt
að fara í annað og erfiðara.
■ ■■ C-vítamíni fyrir
haustið. Nú fara dagarnir
að styttast og rakinn og
kuldinn að sækja að okkur.
Þá er um að gera að búa
sig undir að verjast kvefi og
öðrum fylgifiskum hausts-
ins með því að taka
vítamín. Best er að taka al-
hliða vítamín eða gamla
góða lýsið, en C vítamín er
það sem reynist best sem
vörn gegn kvefinu, auk
þesssem þaðstuðlarað
hraustlegri og fallegri húð.
Það sakar því ekki að
kauþa C vítamínið sér og
það má meðal annars fá í
freyðitöflum sem leysast
auðveldlega upp í heitu eða
köldu vatni.