Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 2
.« c
° o
B (/>
0) k
«
£i
Sg
ffi
n s
E O
•5?
x E
ía
Hjónakornin
kynntust í
Myndlista-og
handíðaskólan-
um fyrir nær þrjátíu árum.
Þau útskrifuðust bæði þaðan
sem myndmenntakennarar.
Saman fóru þau í framhalds-
nám til Svíþjóðar, hún
stundaði nám í Konstfack-
skólanum en hann í Kon-
unglega listháskólanum í
Stokkhólmi. Þorbjörg er
veflistarkona en Þórður list-
málari. Frá því þau luku
námi hafa þau stundað
kennslu ásamt listsköpun.
Hvernig gengur þeim
hjónakornum að samræma
heimilislífið og svona mikil
samskipti í gegnum starf
allan sólarhringinn
sitt? Þorbjörg situr fyrir
svörum og er greinilega af-
skaplega sátt við útkomuna.
„Nú það gengur bara mjög
vel. Við erum samhent í því
sem við tökum okkur fyrir
hendur. Þetta hefur haft
ýmsa kosti, t.d. á meðan
synir okkar voru yngri. Og
þegar við erum á ferðalög-
um skapast engin togstreita
því hugur okkar stefnir í
sömu átt.“
Myndast aldrei samkeppni
á milli ykkar eins og gerist
stundum á milli hjóna sem
leggja sömu listgreinina fyrir
sig? „Nei, alls ekki. Við
samgleðjumst hvort öðru
þegar vel gengur. Ég held
að það erfiðasta við að tveir
myndlistarmenn búi saman
sé fjárhagslega hliðin.
Myndlistarmaðurinn er allt í
senn, hugmyndasmiður,
framleiðandi og tengiliður
við neytendur. Fólk gerir
sér ekki alltaf grein fyrir því
að umsetning og kostnaður
við listsköpun er mikill t.d. í
sambandi við sýningarhald.
Þeir eru fáir myndlista-
mennirnir sem geta lifað af
sinni list. Langflestir þurfa
að vera í einhvers konar
íhlaupastörfum samhliða
listsköpuninni.“
Þorbjörg og Þórður eiga
þrjá uppkomna syni en eng-
inn þeirra hefur lagt mynd-
listina fyrir sig. Þeir voru eins
og flest öll börn áhugasamir
um ýmiskonar sköpun þegar
þeir voru ungir og fengu sitt
myndlistaruppeldi sem nýtist
þeim í framtíðinni.
Hvernig hefur ykkur
gengið með galleríið Meist-
ara Jakob? „Við erum ellefu
ólíkir listamenn sem stönd-
um á bak við það. Það hefur
gengið vel og viðtökur verið
mjög góðar enda staðsetn-
ingin frábær. Fermetrarnir
eru fáir og því er ekki mikið
pláss til að sýna stærri verk.
Sökum þess höfum við grip-
ið til þess ráðs að hver lista-
maður hefur sína möppu
sem í má finna myndir af
stærri verkum. Auk þess
lánum við fólki verk heim til
skoðunar."
Þorbjörg og Þórður líta
með tilhlökkun til vorsins
því þau eru á förum til Par-
ísar þar sem þau munu
dvelja í Kjarvalsstofu.
Þorbjörg Þórðardóttir
og Þörður Hall eru
myndlistarmenn sem
eyða löngum stund-
um sarnan. Þau búa í
Fossvoginum við
Skógræktina þar
sem þau byggðu sér
hús með vinnustof-
um fyrir þau bæði.
Þau reka ásamt níu
öðrum myndlistar-
mönnum Meistara
Jakob við Skóla-
vörðustíg sem á eins
árs afmæli innan
skamms.
Saman