Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 53
una í móttökunni og
segja henni frá því hversu
erfitt var að fá bílastæði í
nágrenni við tannlækna-
stofuna,
C) fíflast við barnið sem bíð-
ur þarna líka ásamt móð-
ur sinni,
d) fletta gömlu tímaritunum
á borðinu í biðstofunni.
4. Fyrsta daginn í nýrri
vinnu byrjar þú á að...
a) raða hlutunum á skrif-
borðinu þínu og setja upp
myndir og blóm til að allt
verði hlýlegra og per-
sónulegra,
b) heilsa upp á samstarfsfólk
og segja þeim hvað þú
sagðir við yfirmanninn í
viðtalinu sem gerði það
að verkum að hann valdi
þig umfram hina fjörutíu
sem líka sóttu um,
C) segja brandara á kaffi-
stofunni og hringja í inn-
anhússnúmer stúlkunnar
í hinum endanum á her-
berginu og þykjast vera
óánægður kúnni,
d) gera þitt besta til að setja
þig inn í starfið og læra
nöfn samstarfsmannanna.
5. Þér er yfirleitt mest
hrósað fyrir...
a) hversu smekkleg þú sért,
b) fyrir að vera óvenju opin-
ská,
C) fyrir fyndnina,
d) fyrir þitt hlýlega og
geislandi bros.
6. Þú ert að máta föt í
verslun og gengur út
úr klefanum til að sjá
þig betur í stóra spegl-
inum frammi. Annar
viðskiptavinur sér þig
og segir þér að þetta
klæði þig einstaklega
vel. Þú svarar:
a) „Þakka þér kærlega
fyrir,"
b) „Já, er það ekki. Maður-
inn minn er alltaf að segja
mér að ég eigi að klæðast
líflegum litum. Vöxturinn
sé það góður að ég beri
það alveg,"
C) „Auðvitað er ég flottust.
Sjáðu bara hvaða botninn
er rennilegur." (Síðan
rekur þú rassinn út í loft-
ið),
d) „En hvað það var elsku-
legt af þér að segja
þetta."
7. Þegar þú ferð ein út
með manninum þínum,
klæðist þú...
a) einhverju nýju.
b) kjólnum sem þú keyptir á
Spáni á sínum tíma og
auðvitað segir þú þjónin-
um allt um það hvernig
þú rakst á hann í búðinni
og hversu erfitt var að
gera afgreiðslustúlkunni
skiljanlegt að þú þurftir
aðra stærð,
C) venjulegum fötum en þú
felur gervinef í töskunni
þinni og laumast til að
setja það upp þegar hann
sér ekki til,
d) kjólnum sem honum
finnst þú falleg í.
8. Á sýningu hjá Skara
Skrípó biður hann um
aðstoð frá áhorfendum
og bendir á þig. Þú...
a) brosir kurteislega og seg-
ir: Nei takk,
b) ferð upp og segir Skara
allt um frænku þína
sem lenti í svip-
uðu í Danmörku
og það endaði með
ósköpum,
C) ferð upp á svið og stelur
senunni af Skara með
fíflalát-
um,
d) brosir,
ferð upp
á svið og
tekur þátt í gamninu með
því að gera eins og Skari
segir þér.
9. Fólk er nýfiutt inn
við hliðina á þér. Þú...
a) býður þeim góðan dag
þegar þú sérð þau og
spjallar jafnvel örlítið
áður en þú ferð inn til
þín,
b) bankar upp á og segir
þeim frá því að þú hafir
alltaf talið að blátt væri
einmitt liturinn sem pass-
aði fyrir stofuna hjá þeim,
0 segir þeim eitthvað
skemmtilegt hvenær sem
þú hittir þau og minnir
þau á að kíkja nú við ef
eitthvað vanti,
d) ferð yfir til þeirra með
svolítið af sultunni sem
þú varst að sjóða niður og
býður þeim að heimsækja
ykkur sem allra fyrst.
10. Þú ert boðin á
dansleik með mannin-
um þínum. Þú byrjar að
dansa þegar...
a) fyrsta rólega lagið er spil-
að,
b) dansar ekki, því þú ert
alltof upptekin við að
tala,
C) fjörugustu lögin eru og þá
hoppar þú um gólfið af
hjartans lyst,
d) eins oft og þig langar til.
Ef þú hefur oftast
merkt við:
A, ertu giæsikona. Þú
ert sjálfsörugg og það
eitt nægir til að vekja at-
hygli fólks á þér. Þú ert
fáguð í framkomu og
virðuleg, kannt vel
við þig innan um
fólk og
finnst þú
ekki þurfa
að vekja at-
hygli á þér.
Þú ert sjálfri þér næg og
þarft svo sem ekki á öðrum
að halda. Passaðu þig að
vera ekki of stíf og kuldaleg.
Það er allt í lagi að sleppa
fram af sér beislinu af og til
og fólk metur þig betur ef
þú sýnir því að þú átt þínar
veiku hliðar líka.
B, ertu prímadonnB. Þú ert
óskaplega upptekin af sjálfri
þér og þínu lífi. Reyndu að
skilja að öðrum er ekki eins
farið og það er allt í lagi að
tala um eitthvað annað en
þig af og til. Þú getur verið
bráðskemmtileg og segir oft
mjög vel frá en aðrir þurfa
sitt rúm líka. Það er ekki
nóg að kunna að tala, að
hlusta er ekki síðri list.
C, ertu trúður. Þú ert mjög
skemmtileg og allir vita hver
þú ert tveimur mínútum eft-
ir að þú kemur á staðinn.
Passaðu þig bara að ganga
ekki út í öfgar. Það er hægt
að fá of mikið af öllu, jafn-
vel fyndni. Sýndu heldur af
og til hlýju þína og við-
kvæmni og annað fólk mun
læra að meta þig af verðleik-
um.
D, ertu hæglát og hlý mann-
eskla. Þú ert ekki mikið fyrir
að trana þér fram eða vekja
athygli almennt. Þig skortir
ekki sjálfstraust enda leyfir
þú persónuleika þínum að
njóta sín þegar þú kærir þig
um. Þú mættir samt alveg
vera opnari og duglegri við
að láta Ijós þitt skína því það
er of skært til að vera sett
undir mæliker.
Vikan 53