Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 31
Viiinuhópur Sólveigar Pét-
ursdóttur aft stiirfuni.
um af mikilli yfirvegun og
öryggi.
Við hringborðið sátu sex
konur sem voru fulltrúar
ólíkra landa og málefna.
Allt voru þetta málsmet-
andi konur, hver á sinn hátt
en sú kona sem vakti mesta
athygli kom frá Kúveit. Þar í
landi hafa konur ekki kosn-
ingarétt og lítið gert úr ósk-
um kvenna um slík mann-
réttindi. Það var greinilegt
að þessi ræða vakti Hillary
til umhugsunar því í loka-
ræðu sinni vitnaði hún í orð
hennar. Hillary hafði reynd-
ar sýnt því áhuga að fá tæki-
færi til að taka meiri þátt í
sjálfri ráðstefnunni en hún
gerði t.d. með því að fá að
starfa í vinnuhópi. Af örygg-
isástæðum var það þó ekki
mögulegt.
Karlar á kvennaráð-
stefnu
Að umræðunum loknum
héldu þátttakendur áfram
starfi sínu í vinnuhópunum.
Á göngum Viðskiptahá-
skólans mátti sjá að það var
mikið að gerast bæði innan
hópanna og utan. Taka skal
fram að það voru ekki bara
konur sem sátu ráðstefnuna,
þar mátti sjá fjölda karl-
manna sem tók virkan þátt
þótt þeir væru í minnihluta.
Einn vinnuhópurinn lagði
áherslu á að nýta samskipta-
möguleika á borð við inter-
netið. Netkaffistofa var opn-
uð þar sem þátttakendum
var kennt á tölvur og netið
t.d. að senda tölvupóst og
búa til starfsferilsskrá. Mikil
ánægja ríkti með þetta fram-
tak því þó nokkuð margar
konur höfðu aldrei þorað að
prófa sig áfram í hinum
flókna tölvuheim.
Á sunnudagsmorguninn
mættu stjórnendur vinnu-
hópanna með niðurstöður
sinna hópa og lokaávarpið
flutti frú Hillary Clinton.
Eins og fyrr heillaði hún
gesti upp úr skónum með
einstökum persónuleika sín-
um. Konan hefur ótrúlega
útgeislun. Senu-
þjófur sunnu-
dagsins var án
efa Tatiana
Stoljarova, ung
kona, ættuð frá
Eistlandi. Ræða
hennar var mál-
efnaleg og virki-
lega áhrifarík.
Það var greini-
legt að forseta-
frúin ásamt öðrum áheyr-
endum heillaðist af fram-
komu ungu konunnar, sem
er einungis 24 ára gömul og
komin í stjórnunarstöðu í
stóru lyfjafyrirtæki í heima-
landi sínu.
Öll ævintýri taka enda og
ráðstefna sem þessi er engin
undantekning frá þeirri
reglu. Það örlaði á trega-
blöndnum tilfinningum þeg-
ar ráðstefnugestir voru að
kveðjast í lokin. Þeir stefna
allir ótrauðir á að hittast í
Lettlandi árið 2001 þegar
næsta ráðstefna um konur
og lýðræðisþróun verður
haldin. Skiptar skoðanir eru
um réttmæti ráðstefnu sem
þessarar þegar kostnaðurinn
er skoðaður. Eins og reikn-
ingurinn lítur út í dag er
talið að íslenska ríkið þurfi
að greiða hátt í hundrað
milljónir fyrir þátttöku sína.
Hér skal ekki lagt mat á
hvort sú upphæð sé réttlæt-
anleg. Þó má fullyrða að
mjög vel var staðið að öllum
þáttum sem snéru að skipu-
lagi og öll umgjörð var til
mikillar fyrirmyndar.
Vikan 31