Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 48
Texti: Hrund Hauksdóttir
umhirðu húðarinnar?
Rétt eins og meltingarkerfi okkar kann að notfæra sér nær-
ingarefnin úr fæðunni á réttan hátt, há kann húðin best að
meta hað begar uið notum vörur sem unnar eru úr jurtaríki
náttúrunnar. Húðin „veit" hegar hún er að fá heilsusamleg
efni og fer í vörn ef við látum hana fá gerfiefni, með hví að
hlaupa t.d. upp í ofnæmi og bélgu kringum augu.
Fersk byrjun
Þurrkaðu ávallt húð þína með
röku þvottastykki því það heldur
frekar rakanum inni í húðinni. Ef
þú nuddar andlitið með þurru
stykki áttu á hættu að húðin ertist
eða jafnvel rispist.
Notaðu aldrei neitt annað en
I
100%
bómullar-
hnoðra- eða
skífur. Önnur
efni geta ert
húðina auk
þess sem þau
eru ekkert
sérlega raka-
dræg.
Það er
langbest að
láta með-
höndlun fíla-
pensla og
graftarbóla í hendur snyrtisérfræð-
inga. Ef þú kemst hins vegar alls
ekki hjá því að eiga við þessa hvim-
leiðu húðkvilla, þá skaltu láta gufu
leika um andlitið til að opna svita-
holur og nota síðan raka bómull til
þess að þrýsta ofan á bóluna. Alls
ekki kreista eða klípa fast í húðina
því það getur valdið öri.
Forðastu að nota skrúbbkrem
sem innihalda fræ, skeljar eða ann-
að þess háttar sem er of harðgert
fyrir húðina. Mun betri kostur eru
skrúbbkrem sem innihalda hafra.
Kornin í þeim eru að vísu aðeins
mýkri en eru samt sem áður áhrifa-
rík til að hreinsa burt óhreinindi og
dauðar húðfrumur. Það allra
nýjasta í þessum efnum eru
skrúbbkrem sem innihalda papaya
eða ananas ensím. Þessi ensím
leysa upp og hreinlega gleypa í sig
dauðar húðfrumur.
Það skyldi aldrei hreinsa húðina
með of heitu
vatni. Best er
að nota volgt
vatn og skola
síðan andlitið
upp úr köldu
vatni. Það
skyldi einnig
varast að
skipta skyndi-
lega úr mjög
heitu vatni
yfir í ískalt,
þar sem það
getur fram-
kallað of sterk
viðbrögð í
húðinni.
iniiii i íh i j [i 1 iT hTn 1110
Hressandi
andlitsvatn
Helltu gulrótarsafa í úða-
flösku og úðaðu á andlitið eftir
þörfum.
Rakagefandi
andlitsmaski
Sjóddu einn bolla af mjólk
og færðu pottinn síðan af hell-
unni. Fjarlægðu skánina sem
myndast á efsta laginu á mjólk-
inni. Bættu mjólkinni síðan út í
safa af þremur gulrótum. Láttu
blönduna kólna við stofuhita.
Berðu þetta á andiiéð og láttu
það þorna. Fjarlægðu síðan
maskann með volgu vatni.
48 Vikan