Vikan


Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 12

Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 12
íslandi sem myndi vera með þessa einstöku muni á boðstólum. Þegar ég kom aftur heim til íslands viðraði ég hugmynd mína við ýmsa og fékk góðar undirtektir. Ég ákvað að láta kylfu ráða kasti og fór aftur út til Gíneu, gagngert til þess að kaupa inn. Fyrrgreindur dans- kennari, sem er góður vinur minn, var mín stoð og stytta og fjölskylda hans tók mér opnum örmum. Þar bjó ég meðan ég var að undirbúa allt. Það var heilmikil vinna að safna að sér hlutum því þarna verslar maður beint við þá sem búa til listmunina. Við keyrðum á milli þorpa á litlum bíl og hittum að máli hand- verksmenn og aðra listamenn. Samskiptin við fólkið gengu mjög vel enda er vin- ur minn inn- fæddur Gíneubúi og sá um túlk- unarhliðina. Það var mér ómetanleg að- stoð því það þurfti auðvitað að safna upp- lýsingum um hvar væri best að grafa upp spennandi muni og svo varð að semja um verð. Fólkið sem ég átti viðskipti við var alveg einstaklega ynd- islegt og samskipti okkar voru á hlýlegum, persónulegum nótum. Það var svo heilmikið mál að koma öllum varningnum heim til íslands. Eðlilega er margt í viðskiptaháttum Gíneubúa mjög frumstætt og stundum fannst mér ég vera komin hundrað ár aftur í tím- ann. Þegar við fórum að pakka öllum mununum inn kom í ljós að plast er ekki til á þessum slóðum, svo að við urðum að vefja allt í hálm en það tók mjög langan tíma eins og gefur að skilja. Fjölskylda vinar míns hjálpaði til og okk- ur tókst á endanum að pakka öllu kirfilega niður og koma vörunum í gám. Eftir á að hyggja er mjög djarft að fara út í svona! í dag læt ég senda mér vör- urnar að utan og hef komið mér upp samböndum sjálf. Ég vissi að það gengi ekki til lengdar að fara í leiðangra alla leið til Afríku, versla í smá- þorpum og pakka svo öllu góssinu inn í hálm, svo ég dreif mig til Lissabon í þeim tilgangi að afla mér viðskipta- sambanda. Ég vissi að Portú- galir flytja inn vörur frá Afríku til þess að selja á ferða- mannastöð- um. Ég komst í samband við ræðismann Portúgala í Malawi en hann er einmitt sjálfur með svipaða verslun og ég en hann er með fólk á sín- um snærum í A-Afríku sem safnar sérstæðum munum fyr- ir hann. Við komum á fót við- skiptasambandi og núna versla ég muni í gegnum hann frá Tansaníu, Malawi og Mó- sambik. Að sjálfsögðu versla ég enn með muni frá V-Afríku líka. Ég er mjög ánægð með að hafa drifið í því að láta draum- inn rætast og eiga þátt í að skapa örlitla breidd í list- munasölu hér heima. Mér finnst sjálfsagt að við getum notið erlendra og framandi menningaráhrifa. Draumar rætast sjaldnast sjálfkrafa og því er um að gera að hafa trú á sjálfum sér og viðfangsefn- um sínum. Lífið er líka ekki steypt í eitt óumbreytanlegt mót og ég byrjaði t.d. í sjúkra- þjálfunarnámi við Háskólann í haust, samhliða verslunar- rekstrinum. Það er ekki verra að halda möguleikunum opn- Any requests? Yes! Do you know “You Make Me Look Like a Natural Rock Star”? Behold how fabulous just a schmear of foundation and a dab of red lip gloss can look. And how sexy! Okay, maybe a wind machine helps. And maybo it also helps if you're a stunning lcelandic singer, like Móa here. This talented 26- year-old has no problem sliding up and down the makeup scale for her art. "When wearing super- or making my eyes really, really heavy w'rth eyeliner, black pencil shimmory stuff," says Móa. “But no both at the same time. Offstage, l'll wear compact foundation if I feel my skin's not looking its best I experiment a lot. Nothing’s really holy with me." We like that attitude. um og hafa mörg járn í eldin- um." Jiab................... ur íslendingum að góðu kunn með seiðandi rödd og skemm- tilega sviðsframkomu. Blaða- maður Vikunnar rakst á heil- síðumynd af henni í septem- berblaði hins útbreidda tíma- rits Jane, sem bendir til þess að hróður hennar hafi borist víðar en um litlu eyjuna okkar. í stuttri umfjöllun sem fylgir myndinni er Móa tekin sem kjörið dæmi um konu sem lít- ur stórglæsilega út með léttum andlitsfarða og rauðu varaglossi. Einnig er haft orð á því að hún hafi kynþokka- fullt útlit þótt vissulega hafi viftan, sem blæs hári hennar til, haft sitt að segja fyrir myndatökuna. Blaðamaður Jane segir þessa 26 ára gömlu hæfileikaríku, íslensku söng- konu ekki eiga í nokkrum vandræðum með að breyta út- liti sínu, hvort sem er fyrir sviðið eða myndatökur. Móeiður hefur gert samning við TommyBoy sem er mjög stórt og áhrifamikið plötuút- gáfufyrirtæki í New York. Hún gerði samning við þá um útgáfu á breiðskífu beggja vegna Atlantshafsins og hlýtur það að teljast glæsilegt afrek út af fyrir sig. TommyBoy sér- hæfir sig í útgáfu á rapptónlist og er með þó nokkuð margar stórstjörnur á sínum snærum. Þessi skemmtilega söng- kona hikar ekki við að láta drauma sína rætast og er dug- leg við að koma tónlist sinni á framfæri. Myndböndin við lögin hennar eru mjög sérstök enda hefur hún verið alls óhrædd við að fara ótroðnar í þeim efnum og hefur meðal annars notfært sér ýmsa fjöl- breytilega möguleika tölva við gerð þeirra. 12 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.