Vikan


Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 46

Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 46
Framhaldssaga sá hvað hann var lítill og óhamingjusamur. En hvern- ig átti hún að gæta hans þeg- ar hún gat varla gætt sjálfrar sín? Hún kraup við rúmið hans. Ekki vera hræddur, hvíslaði hún. Má ég sofa inni hjá þér í nótt Hildy? Bara í nótt? Hún hristi höfuðið. Þú veist hvað gerist ef Julian finnur þig þar. Ég skal fela mig undir rúm- inu ef hann kemur. Gerðu það! Hildy hugsaði sig um og kinkaði svo kolli. Og veistu hvað, þú mátt eiga fjársjóðs- kassann rninn. Hvernig líst þér á það? Þú mátt ekki gefa hann, sagði Christian hneykslaður. Hildy varð ekki haggað. Ég er orðin svo stór, sagði hún. Það er miklu sniðugra að þú eigir hann. Þar getur þú geymt uppáhalds hlutina þína. Ég skal láta þig hafa hann í kvöld. Hún mundi að Julian hafði sagt henni að fara í bað áður en hún færi að sofa. Hann hafði líka sagt henni að fara í nýja náttkjólinn sem hann hafði keypt handa henni. Og aftur læddist óttinn að henni. Elise heyrði fótatak og kíkti í gegnum rifu á dyrunum. Hildy var að fara í bað. Skömmu síðar kom Christi- an út úr herberginu sínu og Elise stífnaði upp þegar hún sá hann lauma sér inn í her- bergið hennar Hildy. Ef hún flýtti sér hefði hún tfma til þess að koma honum fyrir kattarnef áður en Hildy kæmi upp úr baðinu. Hún tók hnífinn sem hafði legið á náttborðinu alla þessa mánuði. Hún var þess lullviss að í þetta sinn tækist henni ætlunarverkið. Bros- andi læddist hún eftir gang- inum að herbergi Hildy. Það var myrkur og hún kom ekki auga á strákinn en skynjaði að hann lá í rúminu og faldi sig undir sænginni. Hún læddist að rúminu og stakk hnífnum í dýnuna af öllum kröftum. Hún heyrði stunur. Þú er dauður, öskr- aði hún sigri hrósandi um leið og hún mundaði hnífinn aftur. Þú ert dauður! Hún var uppgefin og lagðist á hnén og heyrði hálfkvalt hljóð. Hún flýtti sér á fætur og kveikti ljósið. Hún horfði á blóðið lita sængina. Svo mundi hún eftir hljóðinu og leit undir rúmið. Þar lá strákurinn! Hann hafði narrað hana aftur! Nei, hrópaði hún og reyndi að draga hann undan rúminu. I þetta sinn sleppur þú ekki! Mamma! hrópaði Christian og reyndi að komast undan, en hún náði taki á hand- leggnum á honum. Mamma er ekki hér til þess að hjálpa þér, hrópaði hún sigri hrósandi og lyfti hnífn- um. A sama augnabliki opn- uðust dyrnar. Mamma! hrópaði Christian aftur, og Elise leit við. Francesca stóð í dyrunum. Elise missti máttinn. Hún reyndi að hlaupa en jörðin opnaðist undir fótum henn- ar og hún féll niður í hyldýp- ið. Francesca sat á gólfinu í ganginum með börnin í fanginu. Ég vissi að þú kæm- ir, mamma, sagði Hildy og þurrkaði burt tárin. Ég vissi það. Ég heyrði Julian koma inn í herbergið, sagði Christian kjökrandi, og faldi mig und- ir rúrninu. Svona, svona, sagði Francesca. Núna verður allt gott. Kaiser stóð við rúmið og horfði á blóðið leka niður á gólfið. Hann beit á jaxlinn og reif sængina. Julian lá í rúminu og Kaiser þurfti ekki að snerta hann til þess að fullvissa sig um að hann væri að dáinn. Enginn gat lifað af stungusár eins og þau sem voru á brjósti hans. Elise lá á gólfinu og var al- veg út úr heiminum. Hvers vegna í ósköpunum hafði hún drepið Julian? Þann eina sem henni þótti vænt um. Francesca kom inn og horfði á Elise. Ég veit ekki hvers vegna þú gerðir þetta, sagði hún rólega og ég veit ekki hvort þú heyrir til mín. En ég og börnin mín þökkum þér fyrir það sem þú gerðir. Hvar eru börnin? spurði Kaiser. Frammi á gangi. Christian sendi mig hingað til þess að ná í fjársjóðskassann hennar Hildy. Hann mundi allt í einu eftir því að hún hafði lofað að gefa honum hann. Hún gekk að bókahillunni og tók upp kassann. Hún missti hann úr höndunum og innihaldið fór út um allt. Hún beygði sig niður til þess að taka það saman. Við verðum að hringja í lög- regluna, sagði Kaiser. Ég vil koma okkur héðan í burtu eins fljótt og hægt er. Hann heyrði hana taka and- köf og leit við. Francesca sat á gólfinu og hélt á bréfi í hendinni. Hún starði á það eins og hún trúði ekki sínum eigin augum. Guð minn góður, hvíslaði hún. Guð minn góður! Hann var ekki pabbi minn. Svo byrjuðu tárin að streyma niður kinnar henn- ar. Hún gat ekki sagt meira en rétti honum bréfið. Julian. Ég skrifa þér þetta bréf til þess að segja þér að þú hafðir rétt fyrir þér hvað varðar eina ásökunina. Ég var þér ótrú og þú átt ekki barnið sem ég geng með. Sem betur fer! Ég mun aldrei upplýsa hver faðirinn er og þú skalt ekki einu sinni reyna að komast að því. Hann var góður maður sem huggaði mig í hvert sinn sem þú hafðir næstum því gengið að mér dauðri. Ég mun alltaf verða honum þakklát. Barnið gaf mér styrkinn sem ég þarfnaðist til þess að koma mér í burtu frá þér. Þú skalt ekki láta þér detta í hug að reyna að finna mig. Ég er búin að breyta um nafn og er llutt í annað land og þú getur aldrei fundið mig. Juliette. Kaiser tók utan um Francescu og reisti hana á fætur. Hún grét og titraði frá hvirfli til ilja. Hann kyssti burt tárin og ruggaði henni í örmum sínum. Mamma! hrópaði Christian. Flýttu þér! Francesca leit á Kaiser. Hann giftist mér til þess að eyðileggja líf rnitt, sagði hún klökk. Þannig hefndi hann sín á móður minni. Það hef- ur hlakkað í honum þegar ég hélt að hann væri faðir minn. Hildy stakk höfðinu inn um dyrnar. Eruð þið ekki að koma? spurði hún hikandi. Hún kom auga á bréfið. Ég fann þetta bréf uppi á háalofti, sagði hún. Ég vona að ég hafi mátt taka það. Francesca leit til hennar og brosti. Já, það máttir þú svo sannarlega! Sögulok. 46 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.