Vikan - 26.10.1999, Page 11
Kolbrún Vala Jónsdótfir er eigandi African
Gallery sem er með afríska listmuni
ég tók endanlega ákvörðun en
ég eygði þarna góða mögu-
leika. Pað var mikið að gera á
stofunni og ég hafði trú á
sjálfri mér til þess að gera
jafnvel enn betur.
Sú trú reyndist á rökum
reist því stofan gengur mjög
vel undir minni stjórn. Ég er
með fjórar manneskjur í vinnu
hjá mér og hef verið afar
heppin með starfsfólk. Að
hafa gott starfsfólk er ein
helsta forsenda farsældar hjá
fyrirtækjum og stelpurnar sem
vinna hjá mér eru einfaldlega
himnasending! Það er mjög
góður starfsandi hjá okkur og
við vinnum vel saman en það
tel ég vera stóran þátt í þeirri
velgengni sem stofan hefur átt
að fagna. Ég legg aðaláherslu
á að vera með hlýlega stofu
með toppþjónustu og það hef-
ur augljóslega skilað sér því
það þarf að panta tíma hjá
okkur með góðum fyrirvara.
Ég nota eingöngu þýskar
gæðavörur og viðheld reynslu
minni með stöðugri vinnu,
með lestri fagtímarita og sæki
auk þess ýmis námskeið.
Starfið sem slíkt er mjög
skemmtilegt. Bæði hef ég mik-
inn áhuga á öllu sem lýtur að
naglasnyrtingu- og ásetningu
en svo má ekki gleyma því að
ég er sífellt í tengslum við
fólk. Það er stór hluti af
ánægju minni með starf mitt.
Þetta er mjög lifandi starf
samskiptalega séð og ég hef
kynnst mörgu frábæru fólki í
gegnum vinnu mína. Það er
bæði gefandi og gefur starfinu
enn meira gildi. Ég sé þetta þó
ekki sem framtíðarstarf en lít
á þessa reynslu sem góðan
grunn og þá ekki hvað síst þá
reynslu að reka eigið fyrir-
tæki. Ég er í rólegheitum að
íhuga annað nám sem er á
áhugasviði mínu en það er
grafísk hönnun."
Neglur og list býður upp á
alhliða hand- og naglasnyrt-
ingu, gervineglur, styrkingu
fyrir eigin neglur og ýmiss
konar spennandi naglaskraut.
Einnig er hægt að fá gel yfir
neglurnar en með því haldast
þær mjög vel og þurfa ekkert
auka dútl heima fyrir, með til-
heyrandi raspi, naglaherði og
fyrirhöfn. Það nægir að fara á
4-5 vikna fresti í viðhald á
stofuna og það er afskaplega
aðlaðandi kostur fyrir konur
sem eru annað hvort of upp-
teknar til að sinna nöglum sín-
ar sjálfar eða hafa lélegar
neglur að eðlisfari. Sérlega
annríkt er hjá Nöglum og list í
kringum jól, árshátíðir og
brúðkaup, svo það er ráðlegt
að panta tíma með góðum fyr-
irvara.
gömul og rekur verslunina Af-
rican Gallery sem er á Skóla-
vörðustíg 17b. Verslunin var
formlega opnuð á menning-
arnóttina í ágúst í fyrra en þá
var Kolbrún aðeins 24 ára
gömul. „Reyndar opnaði ég
14. ágúst 1998 en það var á af-
mælisdegi föður míns. Hann
sýndi mér mikinn stuðning og
treysti mér fullkomlega til
þess að fara út í sjálfstæðan
rekstur en hann er rekstrar-
ráðgjafi og þekkir vel til þess-
ara mála. I raun var allt fólkið
mitt mjög jákvætt og hafði
mikla trú á mér en það kom
mér satt best að segja svolítið
á óvart," segir Kolbrún og er
hugsandi á svip. „Vissulega óx
mér sjálfri þetta dálítið í aug-
um í fyrstu og ég vissi að það
væri mikil og krefjandi vinna
að koma á fót fyrirtæki. En
hugmyndin var góð og mér
fannst þörf á svona sérstæðri
verslun með framandi muni."
Hvernig kviknaði
hugmyndin?
„ Ég var að Iæra afríku-
dansa í Kramhúsinu og fannst
það afskaplega gaman. Ég
fann mig strax í þessum dansi.
Það kom gestakennari til okk-
ar frá Gíneu sem rekur dans-
skóla þar ytra og ég fór með
honum í heimsókn til heima-
lands hans, meðal annars til
þess að nema meiri dans við
skólann sem hann rekur. Það
var ógleymanlegur tími og auk
þess að vera í dansskólanum
ferðuðumst við mikið um
landið. Við kynntumst menn-
ingu og listum innfæddra
Gíneubúa nokkuð vel og líka
lífsstflnum sem þar er ríkjandi.
Ég var yfir mig heilluð af öllu
því sem fyrir augu bar og þá
sérstaklega öllum fallegu list-
mununum en þeir voru ótrú-
lega fallegir. Það sem mér
fannst líka svo áhugavert var
að nær allir hlutir sem eru
búnir til þarna hafa fallega
merkingu á bak við sig. Ég
upplifði þetta svo ekta, svo al-
vöru. Það sem sló mig mest,
vestræna barnið, var að kom-
ast í snertingu við hluti sem
eru ekki afurð merkingar-
lausrar fjöldaframleiðslu. Það
er lögð mikil alúð í hvern hlut
hjá þessu frumstæða og
óspillta handverksfólki. Marg-
ir listmunanna hafa ákveðna
merkingu eða eru jafnvel hluti
af dansi eða vígslu. Þeir hafa
margir hverjir táknræna merk-
ingu. Listmunir í Gíneu eru úr
náttúrulegum efnum eins og
viði, leir og skeljum.
Ég dvaldi í Gíneu í tvo mán-
uði og á því tímabili fæddist sú
hugmynd að opna verslun á
Vikan 11