Vikan - 26.10.1999, Side 17
einbeita sér aö svæðinu fremst á stórutá og
tveimur næstu tám til þess að róa
æstan huga.
Svefnvenjur
Gott er að venja sig við
ákveðnar reglur og halda
þær. Sumirfara alltaf í
slakandi bað á kvöldin
eða lesa bók. Einnig
getur verið róandi að
bursta hárið eða setj-
ast niður og fara yfir
atburði dagsins í
huganum og hreinsa
hann síðan. Fastur
háttatími á hverju
kvöldi er sumum
nauðsynlegur og
getur gert svefnleys-
ingja gott.
&
m"
inn. Algengt er að fólk fái sínar bestu hugmynd-
ir rétt fyrir svefninn og því er gott ráð að
hafa stílabók og penna við rúmið til að
skrifa niður hugsanirnar. Þegar þær eru
komnar á blað halda þær ekki
lengur vöku fyrir manni.
Frægjrsvefn- J
Friður og ró
Samkvæmt kenn-
ingum Feng Shui er
varað við því að
nota sterka rauða
liti í svefnherberg-
inu. Einnig er mælt
gegn gulum, appel-
sínugulum og blá-
um litum, hvort sem
er á veggjum eða
rúmfötum. Veljið
heldur ferskjuliti,
græna eða kremaða
liti á veggi, glugga-
tjöld og rúmföt.
Samkvæmt sömu
kenningum magna
speglar upp orkuna
í herberginu. Forð-
ist því að hafa
spegil nálægt rúm-
inu. Hreinsið allan
óþarfa og drasl burt
úr herberginu. Yfir-
fullt og ruslaralegt
herbergi eykur enn
á svefnvandann.
Svefnherbergið á
að vera griðarstað-
ur en ekki orrustu-
völlur.
Svæfandi tölfræði
Rannsóknir hafa sýnt fram á að aðeins 15% Norðmanna
þjást af svefnleysi meðan rúmur helmingur Bandaríkjamanna
kvartar yfir slíku. Engar útskýringar hafa fylgt þessari könnun en
leiða má líkum að því að hnattstaða eða almennt heilsufar hafi hér
áhrif á. Margir íslendingar halda því fram að þeir séu þungir og sofi
mikið í svartasta skammdeginu en þurfi miklu minni svefn á
sumrin.
í bandarískri rannsókn á svefnvenjum komu ýmis persónuein-
kenni í Ijós eftir svefnháttum. Innhverfir einstaklingar sofa jafnan
samanhnipraðir á hliðinni. Úthverfir persónuleikar sofa á bakinu en
stjórnsamir einstaklingar sofa gjarnan á maganum með strekkta út-
' limina.
Það tekur meðalmanninn um 15-25 mínútur að falla í svefn frá
þvílagster til hvílu.
Franskur jarðvísindamaður, sem lokaðist inni dimmum helli í
nokkra sólarhringa, komst að raun um að líkamsklukkan hans hélt
áfram að stjórna svefni og vöku þrátt fyrir einangrunina. Sérfræð-
ingar halda því nú fram að það sé einfaldlega ekki rétt að með aldr-
inum þurfi fólk sífellt minni svefn. Þeir sem þurfa átta tíma svefn
um fertugt þurfa næstum sama hvíldartíma um áttrætt.
Svæfandi æfingar
Innhverf íhugun og sjálfsdáleiðsla eru ágætis aðferð til slökunar
fyrir svefninn. Prófaðu eftirfarandi: Komdu þér þægilega fyrir í mjúku
og hlýju rúmi. Lokaðu augunum og ef með þarf notaðu þá augnhlífar
eða hvíldarmaska. Notaðu eyrnatappa til þess að koma í veg fyrir
truflandi umhverfishljóð. Næsta skref er að draga andann hægt og
rólega í gegnum nefið. Andaðu djúpt og alveg niður í maga nokkrum
sinnum. Þá er kominn tími tii að einbeita sér að líkamanum. Byrjaðu
á því að spenna vöðva í fótum og slaka þeim á víxl nokkrum sinnum.
Imyndaðu þér að spennan í líkamanum hverfi út um fæturna í hvert
sinn sem slakað er á. Haltu áfram að anda djúpt og rólega og sjáðu
fyrir þér úr í keðju sem sveiflast fram og til baka fyrir framan andlit
þitt. ímyndaðu þér að úrverkið gefi frá sér smá hljóð; tikk, takk, tikk,
takk.......Hlustaðu á þig segja:
„Nú er ég að sofna, hægt og rólega. Ég ætla að sofa fast og vel. Ég
ætla að sofa til morguns í einum dúr og...." 11111
zzzzzzZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzzzz
Haldið dag-
bók '
Það er gott ráð að halda
dagbók eða vísi að slíku.
Margir eru andvaka vegna þess að
hugsanir og hugmyndir þjóta í gegnum koll-
ogaoferoir w
beirra
Benjamin Franklin
var bandarískur stjórn-
mála- og uppfinningamað-
ur sem uppi var á 18. öld. Hann fór nakinn út í
kulda til þess að sofna betur. Slíkt myndi
vekja óþarfa athygli nágrannanna og jafnvel
varða við lög í dag. Hins vegar er hægt að
setjast í ískalt bað inni hjá sér með sama ár-
angri. Nægilegt er að hafa vatnsborðið tíu
sentímetra hátt og setjast í það í hálfa mín-
útu. Efri hluti líkamans og höfuð þurfa ekki að
blotna. Að baðinu loknu er nauðsynlegt að
þurrka sér vel og fara beint í
rúmið. Heilsugúrúar hafa
mælt með þessari aöferð
vegna þess að kuldinn
hafi þau áhrif að hugurinn
einbeiti sér að því að ná
upp yl á „kalda svæðinu"
í stað þess að hringsnú-
ast um erfiðar hugsanir.
Charles Dickens
skrifaði margar góðar
skáldsögur sem enn
eru í hávegum
hafðar. Hann hélt
fram kenningum
um segulmagn
jarðar og notaði
áttavita til þess að
vera viss um að höfuð
hans vísaði í hánorður þegar
hann svæfi. Napóleon keisari - sem aðeins
þurfti fjögurra tíma svefn- var á öndverðum
meiði. Höfuð hans varð að snúa í hásuður
þessar fáu klukkustundir sem hann svaf.
Alexandre Dumas var líka rithöfundur eins
og Dickens. Hann borðaði alltaf eitt epli áður
en hann lagðisttil svefns. Epli, sítrusávextir,
perur og rabarbari innihalda mörg vítamín og
steinefni sem hafa góð áhrif á líkamann og
hjálpa honum til að hvílast og nærast.
Abraham Lincoln var einn mikil-
hæfasti forseti Bandaríkjanna.
Hann hafði þann háttinn á að hann
fór út að ganga um miðnætti til þess
slaka á fyrir svefninn. Líkamsæfingar
og göngur gera líkamann eðlilega þreyttan
og þá sofnar maður fyrr.