Vikan - 26.10.1999, Side 21
Antonio Banderas er fæddur í
Malaga á Spáni. Faðir hans er
fyrrum lögreglufulltrúi en móöir
hans er kennari. Áhugi hans á
leiklist kviknaöi á unglingsárun-
um þegar bekkjarfélagarnir fóru saman á leik-
sýningu. Þegar hann kom heim tilkynnti hann
foreldrum sínum að hann ætlaöi sér aö verða
leikari. Foreldrarnir höföu lítinn skilning á löngun
sonarins, hristu bara höfuðið og sögðu að hann
væri að missa vitið!
Ekki er hægt að segja að Banderas hafi verið
ánægður með sjálfan sig á unglingsárunum. „Ég
leit hræðilega út. Andlit mitt var þakið þólum og
ég var með skakkar tennur." Eitthvað lagaðist
útlitið með aldrinum og Banderas var enn harðá-
kveðinn í að læra leiklist. Nítján ára gamall hóf
hann nám við leiklistarskóla og strax að útskrift
lokinni byrjaði hann að leika með litlum leikhóp-
um. Fljótlega komst hann á samning hjá
„National Theatre of Sþain" og það sem skipti
meira máli, hann komst í kynni við kvikmynda-
leikstjórann Pedro Aimódovar. Mikill vinskapur
tókst með þeim og í kjölfarið fylgdu fimm kvik-
myndir sem komu Banderas á kortið í kvik-
myndaheiminum. Vinskapurinn við leikstjórann
átti eftir að hafa gífurlega mikil áhrif á líf leikar-
ans: „Pedro er sá maður sem hefur haft mest
áhrif á líf mitt, bæði einkalíf og vinnu."
Örlagarík veisla
Fyrstu kynni Banderas af Hollywoodstjörnum
voru harla óvenjuleg. Hann hitti söng- og
leikkonuna Madonnu í veislu, en hún var þá
stödd á Spáni til að taka upp kvikmyndina „I
rúminu með Madonnu". Madonna leyndi ekkert
aðdáun sinni á þessum glæsilega Spánverja sem
var staddur í veislunni og notaði hvert tækifæri til
að daðra við hann. Banderas var þá harðgiftur
spænsku leikkonunni Ana Leza.
Hluti af bíómyndinni var tekinn upp í veislunni
og áður en Banderas vissi af voru kvikmyndavéi-
ar komnar í gang. Madonna reyndi að ræða við
kappann en hann skildi ekki orð í ensku á þeim
tíma og svaraði „yes" í hvert skipti sem ungfrúin
ávarpaði hann. „Ég hefði átt að segja nei" segir
hann eftir á en meö þátttöku sinni í myndinni
varð hann þekkt nafn utan heimalands síns. „Ég
er þess fullviss að þegar fólk hafði séð myndina
hafi það spurt: Hver er þessi Antonio Banderas?
Því hefur sjálfsagt verið fljótsvarað: Það er þessi
strákur sem leikur alla hommana í spænsku bíó-
myndunum!"
Árið 1992, að þrjátíu kvikmyndum loknum á
Spáni, tók Banderas stefnuna á Hollywood. Hann
fékk strax lítið hlutverk í kvikmyndinni „The
Mambo Kings".
„Ég kunni ekki stakt orð í ensku en til að fá
hlutverkið varð ég að læra setningarnar mínar."
Það tókst og með þessu litla hlutverki tókst hon-
um að sanna sig í hinum harða heimi Hollywood.
Á þessum tíma var hann ennþá giftur Ana Leza
og átti heimili bæði í Los Angeles og á Spáni, þar
sem eiginkonan var upptekin við kvikmyndatök-
ur. Ein afdrifaríkasta stundin í lifi hans var þegar
hann hitti meðieikonu sína í kvikmyndinni „Two
much" en það var leikkonan Melanie Griffith.
Banderas segir að hjónaband sitt og Ana hafi
verið í andaslitrunum þegar þau Melanie kynnt-
ust.
„í fyrsta skipti sem við hittumst ákvað ég að
reyna að halda uppi samræðum. Ég var eins og
kjáni og spurði hana hvað hún væri gömul. Mel-
anie svaraði mér strax og sagði: „Þessi spurning
hæfir ekki konu" og ég blóðroðnaði. Á þessari
sömu stundu vissi ég að eitthvað hafði gerst.
Hlutirnir gengu hratt fyrir sig og áður en við viss-
um af var rómantíkin í bíómyndinni búin að taka
sér bólfestu í okkar eigin lífi.
Melanie á skrautlega fortíð. Hún hefur átt við
áfengis- og fíkinefnavanda að stríða og sjálfsagt
er hún þekktust fyrir
stormasamt hjónaband á
meðan hún var gift leikaran-
um Don Johnson. Þau eiga
samantvö börn, 9 og 13
ára. Banderas lét vitneskj-
una um fortíð hennar ekki
slá sig út af laginu því hann
var ástfanginn upp fyrir
haus.
Um hjónaband sitt viðAna
sagði Banderas: „Það er
alltaf erfitt að slíta sambandi
en það var nánast búið á
þessari stundu. Ég var hins
vegar mjög hamingjusamur
vegna þess að ég hafði fundið ástina að nýju. Ég
varð ástfanginn af Melanie þótt ég vissi hvað
hún bæri með sér í sambandið, bæði góða hluti
og slæma."
Saman eiga þau dótturina Estella del Carmen
sem er þriggja ára. Banderas segir að strax eftir
að samband þeirra varð opinbert hafi þau átt í
vandræðum með „papparazzi" Ijósmyndara sem
elta þau á röndum, litla dóttirin er orðin aðal-
skotmark þeirra í dag.
í felum fyrir liosmyndurum
Banderas hefur ákveðnar skoðanir á því
hvernig það er þegar að sambandið er sífellt
undir smásjá fjölmiðla. „Það er ótrúlegt að upp-
lifa slíkt. í rauninni er þetta virkilega ósanngjarnt.
í okkar tilfelli styrkir það sambandið en þetta
kemur niður á starfsferlinum. Ef maður er alltaf í
blöðunum sem teljasttil gulu pressunnar t.d.
National Enquirer þá er litið á mann sem annars
flokks leikara. Fólk myndi ekki trúa því hvað
þessir Ijósmyndarar leggjast lágt. Þegar Melanie
var komin níu mánuði á leið og um það bil að
eignast Estellu þurftum við að vefja utan um
hana teppi og læðast út úr húsinu okkar með
miklum tilfæringum til að losna undan Ijósmynd-
urum. Það eru menn sem hlera hvert einasta
símtal frá okkur og ástandið er verra þegar ég
hringi til fjölskyldu minnar á Spáni. Þegar ég tala
við þau verð ég að tala dulmál sem ég breyti
daglega svo þeir geti ekki ráðið í það."
Banderas er einlægur aðdáandi dóttur sinnar.
„Föðurhlutverkið gerir mann að betri manni. Það
er yndislegt. Hugarfar mitt breyttist mikið eftir að
ég eignaðist hana. Áður fyrr hugsaði ég með mér
að ég væri að vinna fyrir sjálfan mig en í dag er
ég að vinna fyrir hana líka. Ef þig langar að eign-
ast betra líf og verða að betri manneskju þá
mæli ég með að þú eignist barn."
Sé starfsferill hans skoðaður má sjá hann í
mörgum ólíkum hlutverkum. Hann sló í gegn í
bíómyndinni „Interview With aVampire" og í
„Philadelphia" lék hann smáhlutverk en stal
senunni. Hasarmyndirnar Desperado og Zorro
henta honum vel og ekki má gleyma hans hluta í
myndinni Evítu þar sem Madonna sjálf lék á móti
honum. Þær sögusagnir gengu fjöllunum hærra
að Melanie hafi ekki verið róleg meðan á þeim
tökum stóð því Madonna hefur aldrei leynt aðdá-
un sinni á Banderas þótt sá áhugi hafi aldrei ver-
ið gagnkvæmur.
Gagnrýnendur vestanhafs hældu Banderas í
hlutverki Zorro og þar fékk hann þá umsögn að
hann væri kynþokkafullur. Leikarinn þjáist greini-
lega ekki af stjörnustælum því hann vildi ekki
samþykkja þessa umsögn. „Ef ég hef svona
mikinn sjarma eða er svona kynþokkafullur þá
tek ég ekki eftir því. Ef ég tæki eftir því og væri
sífellt að hugsa um hvort ég væri kynþokkafullur,
þá sæi það enginn annar. Dettur ykkur í hug að
mér finnist ég vera kynþokkafullur? Eftir að hafa
horft á sjálfan mig í spegli á hverjum morgni í 37
ár þá hef ég misst allt skyn á hvernig ég lít út."
Hann hefur nýlega lokið við að leikstýra grín-
mynd sem heitir „Crazy in Alabama" en í henni
leikur enginn önnur en eiginkonan, Melanie
Griffith. „I fyrstu hugsaði ég með mér að þetta
væri kannski ekki skynsamlegt og myndi jafnvel
skaða hjónaband okkar. Svo reyndist ekki vera,
samstarfið gekk mjög vel og við erum ennþá
hamingjusamlega gift."
Vikan 21