Vikan - 26.10.1999, Page 28
s
g átti mjög góða
æsku og yndislega
foreldra en samt
var ég alltaf með
minnimáttarkennd og leið
oft illa. Ég var aldrei ánægð
með útlit mitt og taldi mig
feita og ljóta. Ég veit það nú
að það var alger misskiln-
ingur en kannski fylgir þetta
bara unglingsárunum. Ég
lenti í slæmum félagsskap
þegar ég var fimmtán ára og
fór að drekka mjög mikið.
Eitt sinn var ég stödd í partíi
með þessum félögum mín-
um og þar dó ég brennivíns-
dauða í fyrsta skipti. Strák-
ur, sem ég þekkti, sjö árum
eldri en ég, notfærði sér ölv-
un mína. Ég rankaði við mér
þegar hann lá ofan á mér en
var svo logandi hrædd að ég
þorði ekki að gera neitt
nema að gráta. Þá hætti
hann og fór fram alveg nak-
inn en ég klæddi mig í flýli
og hljóp úl úr húsinu.
Þá keyrði fram á mig góð-
ur vinur minn og hann
spurði mig hvort eitthvað
væri að. Ég neitaði því en
sagði honum að ég væri bara
drukkin og þyrfti að komast
heim. Ég sagði aldrei sálu
frá hvað raunverulega gerð-
ist þetta kvöld. Mig langaði
að segja mömmu og pabba
þetta en þorði það ekki.
Bæði vegna þess að ég vildi
ekki að þau kæmust að því
að ég væri farin að drekka
og svo taldi ég þetta líka
mér að kenna. Ég hefði ver-
ið í of stuttu pilsi, of
ögrandi.
Ég breyttist mikið eftir
þennan atburð. Ég varð
mömmu og pabba mjög erf-
ið. Mér var orðið sama um
líkama minn og sjálfsvirð-
ingin var engin. Sjálfsálitið
hafði svo sem verið lítið fyr-
ir en nú var það ekki neitt.
Ég hegðaði mér því eins og
algjör drusla. Sautján ára
varð ég ófrísk og ég var með
barnsföður mínum í sex
mánuði en þá slitnaði upp
úr sambandinu. Rétt áður
en ég varð átján ára
eignaðist ég litla,
yndislega stelpu
sem var algjör
himnasending, eins
og pabbi minn segir
alltaf. Ég varð strax mikil
mamma, hætti öllu djammi
og veseni og tók mig á.
Sagan endurtekur sig
Þegar dóttir mín var árs-
gömul kynntist ég yndisleg-
um strák sem gekk dóttur
minni strax í föðurstað. Við
vorum saman í fjögur ár og
áttum barn saman en þá
urðu sambandsslit milli okk-
ar vegna þess að ég var byrj-
uð í rugli aftur og bar hvorki
virðingu fyrir honum né
sjálfri mér. Rétt eftir að við
hættum sam-
an var hann
með börnin
yfir helgi. Ég
fór út að skemmta mér og
hélt partí á eftir. Gestirnir
fóru og vinur minn sá um að
læsa húsinu fyrir mig. Ég fór
inn að sofa en vaknaði við
það að einn strákurinn var
kominn aftur. Hann hafði
laumast til að taka úr lás aft-
ur og var skriðinn upp í til
mín og farinn að þukla á
mér. Það vildi mér til happs
að ég var ekkert sérlega
drukkin svo ég gat hent
honum út. Þetta ýfði hins
vegar upp gamalt sár og ég
gat ekki útilokað þetta atvik
eins og ég hafði gert í fyrsta
sinn.
Ég flutti fljótlega upp úr
þessu í mína eigin íbúð og
leið mjög vel. Ég var sátt við
að búa ein með börnunum
mínum en hafði gaman af að
fara út að skemmta mér
þegar maðurinn minn fyrr-
verandi tók börnin á föstu-
dögum. Oft drakk ég tals-
vert rnikið og ég fór fljótlega
að átta mig á að ég þyrfti að
taka mig á. Þetta var orðinn
vítahringur og ég vildi ekki
að líf mitt yrði svona. Ég var
alvarlega farin að hugsa um
að leita mér hjálpar við að
rjúfa þetta mynstur þegar ég
varð fyrir þriðja áfallinu, að-
eins tveimur mánuðum eftir
hið fyrra.
Ég hélt auðvitað partí eft-
ir ball sem stóð langt fram
undir morgun. Um áttaleyt-
ið voru aðeins ég og þrír
Hann hafði laumast til að taka úr
lás aftur og var skriðinn upp i til
min og farinn að þukla á mér.
Ég rankaði við mér þegar hann lá
ofan á mér en var svo logandi
hrædd að ég þorði ekki að gera
neitt nema að gráta.
góðir vinir mínir eftir og ég
ákvað að fara að sofa, enda
orðin mjög drukkin. Þeir
spurðu hvort þeir mættu
ekki sitja og spjalla ögn
lengur og ég hélt það nú en
bað þá bara að setja í lás
þegar þeir færu. Ég bauð
góða nótt og fór upp í rúm
að sofa. Ég vaknaði upp við
vondan draum þar sem
æskuvinur minn, sem hafði
verið vinur minn frá átta ára
aldri, var kominn upp í til
mín og var að afklæða mig.
Ég var hálfsofandi og illa
drukkin svo ég gat ekkert
gert annað en að gráta og
segja nei.
Fékk aukinn kraft ein-
hvers staðar frá
Hann hlustaði ekki á mig
og hélt bara áfram. Hann
var kominn ofan á mig þeg-
ar ég fékk einhvern kraft
einhvers staðar frá. Það var
eins og einhver væri kominn
og væri að hjálpa mér. Ég
náði að ýta honum ofan af
mér en hann greip í mig og
sagði að þetta væri allt í lagi.
Ég svaraði og sagði nei, að
þetta væri sko ekki í lagi.
Því næst fór ég inn í her-
bergi þar sem vinkona mín
svaf ásamt vini sínum og
beið eftir að hann kæmi sér
burtu.
Það var lítið sofið þennan
morgun. Ég kenndi enn og
aftur sjálfri mér um hvernig
fór og velti lengi fyrir mér
hvað ég ætti að gera. Að
lokum tók ég ákvörðun:
Þetta ætlaði ég ekki að loka
28 Vikan