Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 37
Verðmiðalímið afí
Það getur verið erfitt að
ná límklessum undan verð-
miðum af nýkeyptum gler-
og plastvörum. Margir reyna
að leggja hlutina í bleyti í
heitt vatn og nudda síðan
límblettinn þar til hann
hverfur. Þetta getur verið
tímafrekt og það er ekki
tryggt að límið náist af þrátt
fyrir erfiðið. Nýkomið er á
markaðinn efni í úðabrúsum
sem eyðir þessu lími
(t.d."Label off") en mörgum
finnst ansi hart að þurfa að
kaupa heilan brúsa til að ná
miðum af fáeinum hlutum.
Hér er ráð kaupmann-
anna: Kaupið ykkur
sítrónudropa og nuddið
límblettinn með þeim, og
sjá, þeir hverfa eins og dögg
fyrir sólu! Afganginn af
dropunum má svo nota í
baksturinn næst!
Gamlar skyrtur fyrir
unga málara
Þeir sem eiga lítil börn
sem hafa gaman af að mála
og leika sér með liti ættu
ekki að henda
gömlu skyrtun-
um þótt þær
séu orðnar
slitnar og illa
útlítandi. Þær
ætti að geyma
og leyfa börn-
unum að nota
þær fyrir mál-
arasloppa.
Þegar börnin eru komin í
stóra skyrtu utan yfir fötin
þarf ekki að óttast að þau
maki litum í fötin sín í hita
leiksins. Svo má auðvitað
þvo skyrtuna á eftir, eða
bara henda henni ef vill.
Léttar gerbollur
og annar bakstur
Ef gerbaksturinn verður
þungur kann skýringin að
vera sú, að það sé ekki nægi-
legur raki í ofninum til að
deigið lyfti sér. I mörgum til-
fellum getur dugað að setja
álform með svolitlu vatni í,
á botninn í ofninum til að
létta baksturinn. Gufan frá
vatninu er oft nægileg til
þess að lyfta þungu deigi.
Fyrir hárteygjurnar
Hárteygjur eiga það til að
týnast þar sem þær eru ekki
fyrirferðarmiklar og eiga
sjaldnast samastað á heimil-
inu.
Eldhúsrúlluhalda er tilval-
inn geymslustaður fyrir
hárteygjur og þegar búið er
að smeygja nokkrum falleg-
um hárteygjum upp á höld-
una er hún auk þess orðin
skemmtileg skreyting á bað-
herbergið eða í stúlknaher-
bergið.
Hunda- og kattahár
Flestir gæludýraeigendur
kannast við það vandamál
að ná hárum úr húsgögnum
og teppum. Hunda- og
kattahár loða mjög við
margar gerðir áklæðis og
það er ekki auðvelt að ryk-
suga þau upp, jafnvel ekki
með fjölhæfustu ryksugum.
Stundum eru það einföldu
hlutirnir sem gera mest gagn
og það á líka við í barátt-
unni við hunda- og kattahár-
in. Þau er yfirleitt auðveld-
ast að ná þeim upp úr
áklæðinu með því að strjúka
yfir það með venjulegum
gúmmíhanska.
Það er fátt verra en að
engjast sundur og saman af
flökurleika og halda engum
mat niðri. Líkamanum er
nauðsynlegt að fá vökva eft-
ir uppköst, en það getur ver-
ið erfitt að halda honum
niðri ef flökurleikinn er ekki
genginn yfir. Vökvaskortur-
inn eykur enn á vanlíðan og
hinn víðfrægi vítahringur er
kominn á.
Reynið þetta undraráð:
Opnið dós af niðursoðnum
perum og drekkið safann!
Ef nokkur vökvi getur
tollað niðri, þá er það
perusafinn sem róar melt-
ingarveginn ótrúlega vel.
Vikan 37