Vikan


Vikan - 26.10.1999, Page 57

Vikan - 26.10.1999, Page 57
Hcimilisfangiö cr: Vikun „Lífsreynslusaga‘% Scljavcgur 2, 101 Rcvkjavík, Nctfang: vikan@frodi.is Lesandi segir Hrund Hauksdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þinu? Þér er velkomið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. Mér finnst aðstæður okkar mæðgnanna vægast sagt ömurleg- ar og þrái heitar en nokkuð annað að við getum unnið bug á þessu átröskunar- vandamáli í samein- ingu og byrjað nýtt líf láta hana sleppa öllum sæt- indum og nasli, nema endr- um og eins ef eitthvað stóð til, eins og afmæli. En þá fór hún að nota sömu stjórnun- araðferð við mig og ég reyndi í gamla daga við móður mína. Hún suðaði, vældi eða notaði hótanir og þrátt fyrir ungan aldur notar hún stundum þá röksemda- færslu að þjóðfélagið sé bara með fordóma gagnvart feitu fólki og slíkt sé ekki sann- gjarnt. Átköst eru skammvinn sæla Ég hef stundum búið til aðhaldsáætlanir handa dótt- ur minni og þar sem hún er að eðlisfari ósköp ljúf og skapgóð stúlka hefur hún gert sitt besta til þess að halda áætlunina. Ég passa upp á matarvenjur mínar í leiðinni til þess að vera henni styrkur. En svo líða aðeins nokkrir dagar og þá er hún farin að gráta, hrein- lega með ekkasogum, því hana langar svo óstjórnlega í „eitthvað gott". Ég á sjálf við sama vanda- mál að stríða og því er svo auðvelt fyrir okkur að falla saman fyrir freistingunum. Ég skammast mín fyrir að segja það, en stundum hám- um við í okkur rosalegt magn af pizzum löðrandi í hvítlauksolíu og heilu brauðin með þykku lagi af smjöri ásamt smákökum og tertum. Okkur líður mjög vel á meðan á átkastinu stendur og þá erum við yfir- leitt að horfa á góða mynd í sjónvarpinu og teljum okkur trú um að þetta séu notaleg- ar „stelpustundir hjá okk- ur". En sælan er skamm- vinn, eins og gefur að skilja, og við þjáumst báðar af skömmustutilfinningu og reiði út í sjálfar okkur fyrir að hafa ekki meiri sjálfs- stjórn. Það er líka martraðar- kennt fyrir okkur mægðurn- ar að fara í fataverslanir. Við eigum mjög erfitt með að finna á okkur föt og getum engan veginn klæðst tísku- fatnaði. Ég sauma því mest megnis fötin á okkur sjálf. Ég er ráðþrota gagnvart þessu vandamáli sem hefur heltekið líf okkar. Offita og önnur átröskunarvandamál eru að verða mun algengari en áður og mér finnst löngu orðið tímabært að heilbrigð- isyfirvöld aðhafist eitthvað í málinu. Heimilislæknirinn okkar virðist vera feiminn að ræða þessi mál og ráð- leggur okkur bara að minnka mat- inn og hreyfa okkur meira. Það er hægara sagt en gert fyrir suma einstaklinga. Vandinn liggur í óviðráðanlegri fíkn sem mig grunar að aðeins sé hægt að vinna sigur á með markvissri meðferð undir læknishendi.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.