Vikan - 02.11.1999, Blaðsíða 36
Texti og matreidsla:
Jörgen Þór
Þráinsson
Ljósmyndun:
Bragi Þór Jósepsson
Diskur frá
Silfurbúóinni.
Ljósmyndastaóur:
Námsflokkar
Reykjavíkur.
Súrsæt sósa frá
Blue Dragon var
keypt í verslun
Nýkaups,
innflutningsadili
XCO ehf.
Nljólkursósa
Hráefnl
6 dl mjólk
1/4 stk. laukur
60 g hveiti ( smjörbolla = hveiti + u.þ.b. 60 g smjörlíki)
50 g smjörlíki (brœtt) til að steikja uppúr
1/2 msk. grœnmetiskraftur
1/2 msk. kjötkraftur
1/4 tsk. múskat
Aðferð
1. Laukurinn er grófskorinn og mýktur í
smjörlíki í potti þar til hann verður glær,
mjólkinni bætt út í.
2. Suðan látin koma upp á mjólkinni, kraft-
ur settur út í.
3. Þykkt með smjörbollunni og soðið var-
lega í 10 mínútur, þá er slökkt undir og sósan
látin standa í aðrar 10 mínútur.
4. Þessa sósu er einnig hægt að nota í pasta-
rétti og rjómasósur en þá er gott að sleppa
múskati.
Samsetning
1. í eldfast form eru til skiptis lagðar pasta-
plötur og kjötfylling og mjólkursósa sett ofan
á. í lokin er mjólkursósu er hellt yfir og osti
stráð þar ofan á. Einnig getur verið gott að
setja 1/3 af ostinum út í sósuna. Nota má ör-
Iítið af parmesan osti annað hvort til að setja
í mjólkursósuna eða strá yfir efsta lagið.
Hitið otn í 200 gráður.
Bakið í um 30-40 mínútur í ofni. Ath. fyrstu
20 mínúturnar getur verið gott að breiða ál-
pappír yfir, þá er síður hætta á osturinn brenni.
Gott að bera fram hvítlaukssmjör og t.d.
bakaða kartöflu með sýrðum rjóma.
Ath. Ef ekki eru notaðar ferskar lasagna
plötur þá er mikilvægt að leggja plöturnar í
bleyti í u.þ.b. 5 mínútur
Barnaréttur
Krabbapvlsur
handa
bömunum
Skerið upp í pylsu sjá mynd og djúpsteikið,
þá breytist form pylsunnar og úr verður
krabbapylsa. Franskar kartöflur henta vel
með þessum barnarétti. Ekki fara frá djúp-
steikingar potti eða pönnu á meðan á steik-
ingu stendur og munið að gera eitt í einu.
Skerið allar pylsur sem þið ætlið að steikja
áður en eldun hefst, gangi ykkur vel!
Verði ykkur að góðu!
36 Vikan