Vikan - 09.11.1999, Blaðsíða 4
lesandi...
Tími fyrir
þig og þína
Er ekki alltafverið að segja okkur að lífs-
gœðirt séu að aukast? Er ekki verið að
segja okkur að vinnudagurinn eigi að
styttast, starfsœvin eigi að styttast, og að
fólk eigi að geta lifað af dagvinnulaunum?
Hvernig stendurþá á því að enginn má
vera að því lengur að eiga samfélag við
aðra?
Það er einfaldlega vegna þess að dag-
vinnulaun venjulegs fólks duga ekki fyrir
framfœrslu heimilis ogfólk leggur það á
sig að vinna allt ofmikið til að hafa það
þokkalegt.
Það er ekki svo ýkja langt síðan konur
máttu vera að því að stunda handavinnu,
lesa bœkur (og það margar) og gera sitt-
hvað sem þœr kusu sér sjálfar. Fólk átti
frístundir. Þegar ég var krakki hittust kon-
urnar í hverfinu reglulega í morgunkaffi
hver hjá annarri og spjölluðu yfir kaffi-
bolla. Eg efast um að margar konur geri
það lengur. Að vísu koma samskipti á
vinnustað stundum í staðinn fyrir þessi
tengsl, en það er alltafhœtt við að vinnu-
staðasamskipti verði ekki eins náin og
persónuleg.
Tímaskorturinn er þó sorglegastur þegar
við hugsum um œttarböndin. Þau eru sí-
fellt að dofna og oft heyrir maður talað
um að œttingjar hittist varla nema í brúð-
kaupsveislum eða við jarðarfarir.
Við þurfum að gœta að okkur. Sérstaða
íslendinga, þessi nánu tengsl milli manna,
mega ekki hverfa. Við verðum að reyna
að halda í œttartengslin, vinaböndin og
samhygðina. Við verðum að gæta þess að
börnin okkar festist ekki fyrir framan
sjónvarpsskjáinn eða tölvuna og missi af
þessum dýrmœtu tengslum við annað fólk.
Eina leiðin til að gera það er að gefa sér
tíma fyrir sjálfan sig og sína, raða í for-
gangsröð og setjafólk í fyrsta sœti,- sitt
fólk.
Við getum byrjað heima, það er hœgt að
auka samskiptin með því að beina krökk-
unum inn á sín eigin áhugamál og sýna
þeirra áhugamálum lifandi áhuga, fá þau
til að taka þátt í samrœðum um það sem
er að gerast í kringum okkur, ráða með
sér krossgátuna eða svara Hver veit? í
Vikunni eða hvað sem er.
I þessu blaði er einstakt efni til að rœkta
fjölskylduböndin. Hér er komið blað með
hugmyndum og verklýsingum að föndr-
inu fyrir jólin. Eitthvað sem allir geta
komið að á einhvern hátt.
Auk þess er mikið af skemmtilegu lesefni
sem er tilvalið umræðuefni innan fjöl-
skyldunnar. Flettu bara og sjáðu, hér er
örugglega eitthvað sem þú gœtir vel hugs-
að þér að deila með þeim sem þér þykir
vœnt um
Njóttu Vikunnar
Jóhanna Harðardóttir
y
Nei, ég má bara því miður ekki vera
að því“
Hversu oft segjum við þetta ekki sjálf? Og
hve oft heyrum við ekki góða vini eða œtt-
ingja segja þetta?
Við megum ekki vera að því að heim-
sœkja kunningjana, setjast niður og tala
saman eða bara hreinlega slaka á í nœði.
Mér finnst þetta reyndar furðulegt þegar
ég hugsa til þess.
Steingerður Hrund
Steinars- Hauksdóttir
dóttir blaðamaður
blaðamaður
Margrét V. Ingunn B.
Helgadóttir Sigurjóns-
blaðamaður dóttir
auglýsinga
stjóri
Anna B. Guðmundur
Þorsteins- Ragnar
dóttir Steingrímsson
auglýsinga- Grafískur
stjóri hönnuður
Ritstjóri Jóhanna G. Harðardóttir vikan@frodi.is
Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax:
515 5599 Stjórnar-formaður Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515
Framkvæmdastjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515
5512 Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Hrund
Hauksdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsinga-
stjórar Anna B. Þorsteinsdóttir og Ingunn B.
Sigurjónsdóttir Vikanaugl@frodi.is Grafískur
hönnuður Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verð
í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með
greiðslukorti 344 kr. pr eintak . Ef greitt er með
gíróseðli 389 kr pr. eintak. Litgreining og
myndvinnsla Fróði Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555