Vikan


Vikan - 09.11.1999, Blaðsíða 20

Vikan - 09.11.1999, Blaðsíða 20
Hefurðu gaman af að ferð- ast? Ertu lagin í mannlegum samskiptum? Viltu hækka launin þín um 100-200.000, á mánuði? Hver myndi ekki svara þessum spurningum játandi? Það eru sárafáir sem ekki hafa gaman af að ferðast, flest teljum við okk- ur nokkuð lunkin í mannleg- um samskiptum og varla eru margir til sem ekki gætu þegið jafn hressilega launa- hækkun og þarna er í boði. En kannist þið við þessar setningar? Jú, alveg rétt þær eru teknar úr atvinnu- auglýsingum í sunnudags- blaði Moggans og hér kemur ein: Ertu metnaðar- gjarn/gjörn? Elskarðu að ferðast? Ertu samviskusam- ur/söm og áreiðanleg/ur en ert ekki með þau laun sem þú vildir hafa? Viltu geta vaxið með fyrirtæki í sífelld- um vexti á heimsmæli- kvarða? Ef þetta á við þig, hafðu þá samband i sima......Þekking á inter- neti og tungumálum mjög æskileg. Hvað er að baki stóru orðanna í þessum auglýs- ingum? Nokkrir einstaklingar sem sent hafa inn umsóknir .■g hafa orðið fyrir verulegum von- brigðum. Stundum er um að fjj ræða Herbalife-sölumenn sem •£ eru í leit að undirverktökum. (1) JJ Alþjóðlegu fyrirtækin reynast g snyrtivörufyrirtæki eða fram- “g leiðendur hreingerningavara g, sem vantar sölumenn í heima- •E kynningar. Ferðalögin eru sölu- S ferðir um landið sem ætlast er « til að starfsmaðurinn kosti sjálf- í ur, kauphækkunin er háð sölu H en allir lofa að hundrað þúsund Ertu á uinnumarkaði kallinn sé tryggur nenni menn bara að vinna örlítið. Þeir sem reyna sig komast hins vegar fljótt að því að margar og oft erfiðar vinnustundir þarf til að ná markinu. í flestum tilfellum eru starfs- menn verktakar og þurfa að standa straum af öllum iauna- tengdum gjöldum og vinna sína pappírsvinnu sjálfir. Margir hafa einfaldlega ekki áhuga á að taka slíkt á sig og vildu þess vegna gjarnan losna við fyrir- höfnina af að setja saman um- sókn og senda inn til þess eins að afþakka starfið þegar menn hringja og bjóða viðtöl. Herbalife sameinar sundraðar fjölskyldur „Tvisvar hef ég sent inn svar við auglýsingu þar sem beðið er um starfsmann í stjórnunar- stöðu sem getur unnið sjálfstætt og er lagin í mannlegum sam- skiptum," segir tuttugu og sex ára kona með víðtæka og góða reynslu af ritarastörfum. „f bæði skiptin var Herbalife sölu- maður að leita að undirverk- taka. Stjórnunarhlið starfsins var sjálfsagt aginn sem mér var ætlað að hafa á sjálfri mér. I fyrra sinnið varð ég bara pirruð en í það síðara öskureið því viðkomandi maður lét mig ekki í friði í nokkurn tíma á eft- ir. Hringdi hvað eftir annað tii að reyna að telja mig á að taka þetta að mér og tíundaði enda- laust þá gullnu framtíð sem átti að bíða mín eftir að ég tæki að mér að pranga Herbalife inn á fólk. Hann bauð mér á kynn- ingarfundi og sagði ótal sögur af þakklátum ættingjum sölu- manna sem keypt höfðu Her- balife af fjölskyldumeðlimi. Á honum var helst að skilja að orðinn of gamall/gömul í starfið? það gæti fært sundraðar fjöl- skyldur saman að setja alla á Herbalife. Eg marg sagði hon- um að ég hefði ekki áhuga, hefði enga trú á efninu og teldi það síst vænlegt til vinsælda meðal minna ættingja að troða upp á þá rándýrum vörum sem ég sjálf álít skottulækningar. En þar með er ekki öll mín raunasaga sögð. Ég sótti einnig um starf ritara á lögfræðistofu hér í bæ og var boðuð í viðtal. í auglýsingunni var sagt að góð laun væru í boði fyrir réttan að- ila og að um stjórnunarstarf væri að ræða. Þegar farið var að ræða urn launin kom í ljós að þau voru talsvert lægri en það kaup sem ég hef á opinberri stofnun og auk þess var ætlast til þess að ég sæi um kaffistofu fyrirtækisins og ræstingar. Ein stúlka vann við bókhald á skrif- stofunni og átti ég að stjórna samskiptum við hana. Af ein- hverjum ástæðum afþakkaði ég þetta." Erfitt að fá upplýsingar um kaup og kjör En það eru ekki bara auglýs- ingar fyrirtækja sem geta verið villandi. Ymsir telja sig hafa sönnur fyrir því að ráðningar- þjónustur auðveldi atvinnurek- endum að fá gott starfsfólk fyrir eins lítið kaup og mögulegt er. Fólk kvartar undan því að erfitt sé að fá upplýsingar um þau störf sem auglýst séu vegna þess að ráðningarþjónustur telji sig bundnar trúnaði og að verst sé það viðureignar þegar ræða á kaup og kjör. Yfirleitt er það ekki rætt fyrr en í viðtali og þá er viðmælandinn iðulega feng- inn til að leggja sjálfur mat á sanngjarnt kaup. Þetta skapar mikinn vanda því umsækjandi tekur þá áhættu að vera hafnað vegna óhóflegra launakrafna en ef hann nefnir lægri tölu en nemur þeim launum sem þegar eru greidd fyrir starfið er hann iðulega ráðinn á þeim kjörurn og með mun lægra kaup en fyr- irrennari hans í starfi. „Ég vil frekar vita fyrirfram hvaða kaup er í boði en að þurfa að spyrja um það í viðtali við væntanlegan atvinnuveit- anda," segir þrítugur viðskipta- fræðingur. „Það virðist þó vera að flestir atvinnurekendur vilji endilega að þú nefnir tölu sem þú teljir við hæfi, jafnvel þótt um sé að ræða opinberar stofn- anir þar sem kaup er fyrirfram ákveðið. Ég tel að þetta sé með ráðum gert vegna þess að kon- ur hafa tilhneigingu til að van- meta sjálfar sig og þarna sjá at- vinnurekendur sér leik á borði að lækka kaupið ef viðkomandi er ekki nógu harður." Flestir umsækjendur sem leita til ráðningarþjónustu reka sig einnig á það að ekki er nóg að vera á skrá hjá þeim. Um- sókn getur legið inni mánuðum saman án þess að nokkuð sé að- hafst í málum umsækjandans og sé auglýst starf á vegum þjón- ustunnar sem hann telur henta sér verður hann sjálfur að ganga eftir því að dustað sé ryk- ið af umsókninni og hún fái að fljóta með í bunkann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.