Vikan - 09.11.1999, Blaðsíða 18
Matthew Perry leikur
Chandler í hinum vinsælu
sjónvarpsþáttum Friends. flllt
frá því að persónan Chandler
varð óvænt ástfanginn af
hinni pottþéttu Monicu varð
hann mun sýnilegri i þáttun-
um en áður og fyrir þær sakir
hefur hlutverk hans fengið
mun meira vægi en áður.
Matthew er með mörg járn í
eldinum um þessar mundir.
Auk þess sem hann leikur
vikulega í Friends þá lék
hann einnig nýlega í kvik-
myndinni Three to Tango í fé-
lagi við Neve Campell og hef-
ur gert samning við ABC sjón-
varpsstöðina um að skrifa
handrit að nýjum sjónvarps-
þætti sem spáð er miklum
vinsældum þar vestra. Þátt-
urinn heitir The Shrink og
fjallar um ungan geðlækni
sem er mun taugaveiklaðri en
sjúklingar hans.
s Barátta við
'O verkjalyfjafíkn
« Á árunum 1996-97 var Matt-
3 hew Perry háður verkjalyfinu
x Vicodan en það gerðist þannig að
■g hann slasaðist á snjósleða og var
E líka haldinn slæmri tannpínu á
* sama tíma. Skömmu eftir að
S hann fór að nota verkjalyfin var
*! hann orðinn háður þeim og fór
n fljótlega að misnota þau. Honum
jj þóttu róandi áhrif verkjalyfjanna
w verða til þess að stressið, sem
óneitanlega fylgir leikaraþransan-
um, minnkaði til muna og honum
fannst hann ná betri tökum á
starfsframa sínum. Hann grennt-
ist mjög mikið á stuttum tíma og
leit illa út. Upp frá því kvisuðust
út sögur um að Matthew ætti við
fíkniefnavanda að stríða og
bandarísk slúðurblöð voru ekki
lengi að slá því upp sem stórfrétt.
Matthew sá sig tilneyddan til að
viðurkenna opinberlega að hann
Matthew sá
hefði ánetjast fíkniefnum og í
kjölfarið af þeirri yfirlýsingu fór
hann í meðferð. Hann var sáttur
við að fara í meðferðina því hann
var ákveðinn í að ráða niðurlög-
um vandans en hann var hins
vegar ósáttur við að þurfa að
heyja baráttuna við fíknina undir
miskunnarlausri smásjá fjölmiðla.
Það fannst honum erfiðast af
öllu.
Hann sagði sjálfur í nýlegu
viðtali að hann hafi fylgst með
umræðunni og slúðrinu um sjálf-
an sig í sjónvarpinu, meira að
segja inni á meðferðarstofnuninni
og kveið því ævinlega að það yrði
gertgrín að honum. Hann er
mjög viðkvæmur gagnvart nei-
kvæðri umfjöllun um sig og hvers
konar gagnrýni.
Matthew Perry var í þrjá mán-
uði í endurhæfingu á meðferðar-
stofnuninni og mætti afturtil leiks
sterkari en nokkru sinni fyrr.
Vill konu sem er
sannur vinur
Matthew Perry er 29 ára gam-
all og margir aðdáenda hans
velta vöngum yfir ástarmálum
hjartaknúsarans. Hann var kær-
asti Juliu Roberts um tíma og var
einnig í föstu sambandi með Ya-
smine Bleeth. Honum finnst þó
þvingandi að slá sér upp með
stórstjörnum því ef hann hittir
konu sem honum líkar vel við er
það orðin frétt og nær samdæg-
urs komnar myndir af honum og
nýju vinkonunni í blöðin. „Það
virkar eins og skrúfstykki," sagði
Matthew í viðtali við Cosmopolit-
an í vor. ,,Um leið og maður
kynnist dömu og býður henni út
að borða þá er það orðin frétt
næsta dag og búið að negla
mann inn í samband! Þótt maður
sé kannski alls ekki búinn að átta
sig á tilfinningum sínum sjálfur
sig tilneyúdan til að viðurk j
og sé bara rétt að kynnast við-
komandi stúlku. Ég er kannski
ekki einu sinni búinn að komast
að því hvort hún drekki kaffi en
samt er búið að gera okkur að
pari eða jafnvel trúlofa okkur. Svo
er þessi bransi einu sinni þannig
gerður að maður kynnist bara
frægu fólki í þessum þrönga hópi
stjarna, því þetta eru jú vinnufé-
lagar og keppinautar og það virð-
ist vera eina fólkið sem ég kynn-
ist."
Matthew Perry er á lausu um
þessar mundir og er að vonast til
að hitta konu sem hann gæti ver-
ið með til frambúðar. Hann telur
það vera mikinn kost ef sú kona
hefði sama tónlistarsmekk og
hann sjálfur en Matthew er sér-
lega hrifinn af Tori Amos og
Söruh McLachlan þótt hann seg-
ist reyna að viðra ekki tónlist-
arsmekk sinn við félaga sína í
Friends. Hann segir að þau þoli
alls ekki tónlistarsmekk hans og
séu sífellt að fá hann til að skipta
yfir í fjörugari tónlist þegar þau
eru að vinna. ,,Þau stríða mér
stanslaust á þessu," segir Matt-
hew hiæjandi „því búningsher-
bergin okkar eru þétt saman og
ég spila þessa upþáhaldstónlist
mína alveg stanslaust. Þau grát-
biðja mig stundum um að
slökkva á geislaspilaranum því
þau segjast verða döpur og
þunglynd af svona tónlist og hóta
stundum að skjóta sig!"
Matthew heillast ekki bara af
söngkonum; hann er almennt
mjög hrifin af konum og segist
bíða eftir þeim degi sem hann
muni hitta konu sem verði sannur
vinur hans.
Haldin stefnumótafælni
En hvernig stendur á því að
svona myndarlegur, hæfileikarík-
ur og tilfinninganæmur strákur
með frábæra kímnigáfu er ekki
löngu genginn út? Matthew seg-
ist vera haldinn stefnumótafælni
sem lýsi sér í því að á fyrsta
stefnumótinu hagi hann sér af-
skaþlega vel og sýni sínar bestu
hliðar. Þá sé hann fyndinn og
skemmtilegur og engin vandamál
til staðar en honum takist ekki að
halda þessu viðmóti lengur en í
hæsta lagi þrjá mánuði og þá sé
hann orðinn uppgefinn. Það er
því greinilegt að Matthew Perry
hefur ekki þorað að vera afslapp-
aður og hann sjálfur á stefnumót-
um heldur keyrir á einhvers kon-
ar leikaraútgáfu af sjálfum sér.
Hann segir þó að þetta standi
til bóta:,, Ég ætla að læra af mis-
tökunum sem ég geri í lífinu, rétt
eins og ég gerði þegar ég fór í
meðferð vegna fíkniefnavandans.
Fram að þessu hefur mér alltaf
fundist ég verða að vera fyndinn
á stefnumótum og legg því alla
orku mína í það hlutverk. En nú
er ég að læra að hlusta á fólkið
sem ég umgengst og reyni að
komast að því hvern mann það
hefur að geyma. Ég legg mig
fram við að kynnast því. Það er
svakalega þreytandi að vera
stöðugt undir þeirri pressu að
finnast ég þurfa að vera sjarmer-
andi og fyndinn. Stundum upp-
götva ég að ég er búinn að fara
út með sömu konunni fimm sinn-
um og ég veit ekkert um hana því
ég er svo upptekinn í því hlut-
verki að vera skemmtikraftur. Það
er náttúrulega fáránlegt.
Ég stóð alltaf í þeirri trú að
þegar ég væri orðinn þrítugur þá
væri ég harðgiftur maður með
böm en ég veit að ég er enn ung-
ur og hef nægan tíma til stefnu
hvað þau mál varðar. Ég er í
rauninni dauðfeginn að ég skyldi
ekki gifta mig alltof ungur því ég
á greinilega enn margt ólært."