Vikan


Vikan - 09.11.1999, Síða 29

Vikan - 09.11.1999, Síða 29
nmwmmsáw m lólaefnið sem nota á í sokkinn er lagt ofan á i'attið og sniðið á sokkinum er dregið með ílyanti eða krít u.þ.b. hálfan sentímetra út 'yrir. Klippið tvö vattstykki, eins og sýnt er á nyndinni, af jólacfninu og einnig af einlitu ;fni. Gætið þess að snúa efninu rétt þannig rð mynstrið komi rétt út. Leggið nú saman alla hlutana sem búið er að klippa út og festið saman með títiprjónum. Gætið þess sérstaklega vel að leggja bútana rétt saman, röðin á að vera þessi: Vatt, jólaefni, einlitt efni, aft- ur einlitt efni, jólaefni og vatt. Saumið brúnirnar saman og snúið við. Þá á jólcfnið að vera yst en einlita efnið að innanverðu. Næst er að ganga frá opinu. Brjótið u.þ.b. einn sentímetra á kantinn, nælið niður og saumið. Gott er að festa hank- ann upp á kantinn. Það er best að sauma hann vel, sérstak- lega ef setja á eitthvað ofan í sokkinn. Að lokum er sokkurinn skreyttur með gylltum snúrum og borðum eins og sést á aðal- myndinni. Fyrir þá sem eru mikið fyrir að sauma er vel hægt að notast við límbyssu eða annað sterkt föndurlím. * i, 1 argir foreldrar WLjjl' /1 eiga erfitt með I / I að finna upp á ! w I H/ I nýjum möguleik- ▼ .... . um þegar þeir setjast niður til að föndra með börnum sín- [&. um. Hugmyndaflugið nær yfirleitt ekki upp í eldhússkápana en í þeim leyn- ^ ast nefnilega hinir ýmsu möguleik- tHP* ar. Flestir stinga pasta ofan í full- ” an pott af vatni en hér kemur hug- mynd að nýjum nýtingarmöguleika. ‘'rfmMmmr Pastaslaufur, rör. spaghcttí og skrúfur Wfr eru tilvalin til að búa til litla engla. Leyfið börnunum að bauka við að festa spaghettí eða skrúfur á slaulurnar með góðu föndurlími. Fyrir þá sem eru með fínhreyfingarnar í lagi er tilvalið að setja litla hausa á búkinn t.d. litlar vatt- kúlur og skreyta þá. Fyrir þá listrænu er möguleiki á að festa alls kyns smáhluti á englana til að skreyta þá enn frekar. Það er líka allt í lagi að láta pastað nægja. Þegar búið er að festa vængina við búkinn er öllum englunum safnað saman og þeir úðaðir með gylltu lakki. Látið þá þorna vel og ^ þar með er kominn lítill englahópur. Með pastaenglunum á myndinni er efni í skemmtilega merkimiða á jólapakkann: endurunninn pappír, útklippt taumynd og tleira til að líma á kortið. (Sjá næstu síðu) Vikan 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.