Vikan - 09.11.1999, Side 39
íiWÍtimMSá l TTTTfTFiT
ATH! Snið á bls. 46-49
textann á sængina og festið efnisbútinn
niður með límbyssunni.
Það er hægt að láta styttuna standa
en líka auðvelt að festa krók aftan á og
hengja upp á vegg.
Besta gjöfin
Það sem þarf að saga út:
16 mm MDF í búkinn á mömmunni
og í pallinn
8 mm MDF í barnið, hendurnar
og skiltið
Efnis- og áhaldalisti:
Borvél með fínum bor
Límbyssa
Penslar
Málning í nokkrum litum, t.d.
andlitslit og 3 aðra liti
Dúkkuhár, má vera í tveimur litum
Vír (þarfað vera hœgt að beygja
hann auðveldlega)
Blúnduefni
Antikolíu
Eftir að búið er að saga hlutina út
þarf að pússa alla kanta vel. Borið gat-
ið í höndina á styttunni og götin í skilt-
ið. Þegar málningarvinnan hefst er gott
að byrja á að mála andlitin og hend-
urnar og síðan dekkri Iitina. Það er
mjög fallegt að setja stensilmynstur á
búkinn á mömmunni. Annað skraut
t.d. blúndur, borðar eða tölur sómir
sér lfka vel. Varðandi andlitsgerð-
ina þá er gott að æfa sig að
teikna augu og munn á blað og
draga svo línurnar á málaða flet-
inum. Kinnarnar eru gerðar
rjóðar með örlitlum
dropa af rauðri
málningu eða
varalit. Skiltið er
málað í ljósum
lit, antikolía er
borin á það og
stafirnir skrifaðir á
að lokum.
Til að festa hár
og blúndur er best að
nota límbyssuna, gætið þess þó
að halda hárinu niðri með priki til að
brenna ykkur ekki. Þegar búið er að
full-
gera bæði mömmuna og barnið má
fara að setja hlutina saman.
Fyrst er barnið límt aftan á og síðan
höndin. Vírinn er festur í skiltið, hann
dreginn í gegnum höndina og festur í
hinu gatinu á skiltinu. Að lokum er allt
stykkið fest á pallinn. Það er ekki víst
að límið í límbyssunni haldi dúkkunni
á pallinum. Til að vera alveg öruggur
er gott að festa hana með skrúfu eða
öflugu trélími. Það er líka hægt að
sleppa því að setja hana á trépall og
setja krók á hana að aftan og láta hana
hanga uppi á vegg.
Litlir trérammar
Litlir trérammar eru til margra hluta
nytsamlegir. Þá er hægt að mála í öll-
um litum, pússa þá með sandpappír og
líma á þá alls kyns smáhluti.
Slíkir rammar eru ódýrir og því til-
valið að leyfa litlum fingrum að
spreyta sig áfram í listsköpun og koma
ættingjum á óvart með per-
sónulegum jólapakka.
Vikan 39