Vikan - 09.11.1999, Qupperneq 52
™(tm
Kæri póstur
Ég er alveg í flækju út af
svolitlu sem gerðist fyrir
stuttu. Ég er nýorðinn
sautján ára og fór með vin-
um mínum í partí til stráks
sem ég þekki ekkert. Ég var
sá eini sem var edrú í partí-
inu en þar hitti ég stelpu
sem bað mig
keyra hana heim en hún
sagði að hún yrði að fara.
Mér leist vel á hana og ég
held að hún hafi líka verið
hrifin af mér þótt hún hafi
verið drukkin. Ég veit hvar
hún á heima en hef ekki
hringt til hennar, ég veit
ekkihvað
ég
sig heim til sín. Ég hef aldrei
hitt hana fyrr en fannst hún
rosalega sæt og fannst alveg
sjálfsagt að keyra hana. Á
leiðinni fór hún að segja
mér að hún þyrði alls ekki
fara heim til sín því pabbi
hennar væri svo vondur við
hana, hann lemdi hana og
sérstaklega ef hún kæmi
drukkin heim. Ég keyrði því
um með hana heillengi og
hún fór að segja mér alls
kyns sögur frá heimili sínu.
Mér fannst erfitt að þurfa að
á að gera.
Mér finnst
ég verða að
hjálpa henni en hvað get ég
gert? Ég reyndi að tala um
þetta við vini mína en þeir
sögðu mér að gleyma þessu,
það væri til nóg af öðrum
stelpum.
Ég hugsa stöðugt urn hana
og gleymi aldrei hræðslunni
í augunum á henni þegar
hún fór út úr bílnum.
Hún sagði mér að hún
treysti mér og bað mig að
hafa samband við sig seinna.
Á ég að hafa samband við
hana eða bara að
gleyma henni?
Gerðu það póstur,
segðu mér hvað ég á að
gera!
Einn á bíl
Kæri bílstjóri.
Þú ert umhyggjusamur
ungur maður, það er alveg á
hreinu. Það er ömurlegt til
þess að vita að ungu
fólki eins og vinkonu
þinni skuli
þurfa að líða
svona illa.
Fólk, sem er
fórnarlömb
ofbeldis, eins
og hún, þarf
virkilega á góð-
um vinum að halda. Hún var
tilbúin að tala um vandamál
sín við þig undir áhrifum
áfengis og því er ekki víst að
hún sé tilbúin að tala um
þetta við þig í fyrsta samtal-
inu ykkar. Þið getið þróað
með ykkur vinskap og súð
hvernig þið náið saman. Um
leið og hún treystir þér bet-
ur getur verið að hún vilji
ræða um ofbeldið. Til eru
úrlausnir fyrir fórnarlömb
ofbeldis t.d. er starfrækt
neyðaralhvarf á vegum
Rauða krossins fyrir ungt
fólk í svipaðri stöðu
og stúlkan og
Kvennaathvarfið er
opið fyrir allar
konur sem eru
fórnarlömb of-
beldis, aldur
skiptir þar engu máli.
Kannski er vinkona þín rög
við að taka þá ákvörðun að
flytjast í burtu og þarf að
vita af traustum vini þegar
hún tekur ákvörðunina.
Ég ráðlegg þér eindregið
að hafa samband við stúlk-
una og láta hana finna að
þér er alls ekki sama um
hana. Þó að þið verðið ekki
kærustupar þá getið þið al-
veg orðið góðir vinir og slíkt
getur orðið ykkur báðum
ómetanlegt. Ekki hugsa um
það hvað strákarnir segja,
þú verður að fylgja þinni
sannfæringu.
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur" Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Lesið úp skiMftinni
Kristín Haraldsdóttir
Samkvæmt skriftinni ertu "flínk" og
átt auðvelt með að ná árangri. Þú ert vilj-
ug og þér finnst sjáfsagt að vinna allt vel.
Þú hefur ákveðnar skoðanir, en ert þó
ekkert að troða þeim upp á aðra vegna
þess að þú virðir annað fólk og skoðanir
þess.
Þú ert þægileg í umgengi og "mjúk"
manneska en stórhuga og bjartsýn.
Stundum undrast þú eftir á hvað þú
hefur verið óttalaus við ýmsar
kringumstæður og íhugar stundum
52 Vikan
að draga þig hlé en þú þarft ekki að
hugsa um það. Þú hefur sterka vernd,
þessvegna ertu svona óhrædd og þér er
óhætt.
Þér er illa við múður og vilt ganga
beint framan að hlutunum. Þú ert fyrir
vinnuhagræðingu og vilt hafa verkin eins
fljótleg og auðveld og hægt er.
Þú gætir átt það til að brýna raustina
svolítið í sambandi við vinnu, en ekki
annars.
Þú hefur gott minni og átt auðvelt með
að læra. Þú ert líka gestrisin og gerir ekki
veður út af smámunum svo stundum get-
ur það jaðrað við kæruleysi. Einkum
geta börn og unglingar vafið þér um fing-
ur sér. Þú ert áhyggjulaus og hress og þér
virðist henta best að vinna með fólki,
t.d. á sjúkrahúsum eða leikskólum.
Mundu eftir að fara eftir innsæi þínu en
ekki því sem aðrir segja.
Gangi þér vel
Steinunn.
Vikan býður lesendum sínum að senda inn
rithandarsýnishorn sem Steinunn Eyjólfs-
dóttir rithandarsérfræðingur mun lesa úr.
Handskrifið beiðni um að lesið verði úr rit-
höndinni á blað, skrifið nafnið ykkar á
annað, ólínustrikað blað og sendið okkur í
umslagi. Heimilisfangið er: Vikan, Seljavegi
2,121 Reykjavík.
MERKT: SKRIFT