Vikan - 09.11.1999, Side 60
14/U
TEXTI: S/EVAR HREIÐARSSON
ÞlWJfe
FL<ftf!IRSÆTA
hefur veriö fastagestur á
sjónvarpsskjám íslendinga undanfarin ár. Fyrst var
hún þekkt sem alkóhólistinn Alison í Melrose Place
og síðan sem lögfræðingurinn Georgia í Ally McBeal.
Nú er Courtney að verða 32 ára og hún er orðin
áberandi sem fyrirsæta eftir að hún var fengin til að
auglýsa Almay snyrtivörur. "Ég er komin yfir þrítugt
og það er tímabært að byrja fyrirsætuferilinn," segir
leikkonan, sem er mikið heilsufrík og stundar jóga
og hugleiðslu til að losna við stressið sem fylgir
stjörnulífinu. Courtney hefur líka fundið hamingjuna
og er trúlofuð erfðafræðingnum Andrew Conrad
en þau ætla að láta pússa sig saman næsta
sumar. Þau eru barnlaus en það er aldrei
lognmolla á heimilinu, enda eiga þau
hvort um sig tvo
hunda.
Söngkonan Bonnie
Raitt heldur upp á
fimmtugsafmælið sitt
hinn 8. nóvember. Á sínum yngri árum var Raitt
nokkuð sjúskuð en hún hefur verið edrú síðan 1987
og sækir reglulega fundi hjá AA-samtökunum. Hún
hefur verið gift leikaranum Michael O'Keefe síðan
1991 og segir að lífstílsbreytingin hafi haft góð áhrif
átónlistina. "Ég hugsaði ekki mikið þegar ég hékk á
næturklúbbum og skemmti mér," segir Raitt. Hún
segir að lífið sé þó engin dans á rósum í dag.
"Reglusemin, hjónabandið og velgengnin hefur ekki
færí mér þann sálarfrið sem ég hélt að það myndi
gera." Þrátt fyrir að vera hamingjusarnlega gift þá
segir hún það vera erfitt aö skuldbinda
sig. "Það er ekkert auðvelt að vera
með sömu manneskjunni í öll
þessi ár án þess að halda
framhjá!"
STIARNA í
ITRIDSHAM
Nýjasta stjörnustríðsmyndin
gerði stormandi lukku í kvik-
myndahúsum í surpar og nú bíða Star
Wars fíklar spenntir eftir næstu mynd.
George Lukas, leikstjóri og framleiðandi mynd-
anna er að reyna að fá kvennagullið onardo
DiCai i til að leika Anakin Skywalker í næstu
mynd. Natalie Portman og Ewan McGregor hafa
þegar gert samning um að leika í næstu Stjörnu-
stríðsmynd, sem er væntanleg í kvikmyndahús
sumariö 2002. DiCaprio hefur verið í fríi frá leik-
listinni frá því í vor en þá lauk tökum á mynd-
inni The Beach, sem frumsýnd verður í upp-
hafi nýrrar aldar. Næst ætlar hann að leika
sérvitringinn Howard Hughes í mynd sem
Michael Mann ætlar að leikstýra. Einnig
stóð til að þeir myndu vinna saman að
mynd um kvikmyndastjörnuna James
Dean en þeir eru hættir við það.
Calista Flockharférsvo mjó að
fólk er hætt að taka eftir henni.
Flockhart fór á tónleika sem Bruce
Springsteen hélt í Los Angeles fyrir
skömmu. Rokkarinn gamalkunni er
þekktur fyrir að velja einhvern úr
áhorfendaskaranum til að koma
upp á sviðið. Einn af aðstoðarmönn-
um Springsteens náði í Flockhart
og fékk hana til að koma upp að
sviðinu þar sem Springsteen var í fullu fjöri. En
rokkarinn tók ekki eftir henni og valdi aðra stúlku til
að dilla sér með. Leikkonan stóð eftir frekar vand-
ræðaleg og læddist aftur í sætið sitt.
RítSTÝRA
Kynbomban hefur haldið sig frá sviðs-
Ijósinu síðan brestir komu í hjónaband hennar og
Bruce Willis. Hún heldur til í smábænum Hailey í
Idaho með ástmanni sínum, Olivier Whitcomb, og
hefur ekkert sést á hvíta tjaldinu undanfarin tvö ár,
eða síðan hún lék hörkutól í hernum í myndinni G.l.
Jane. Demi hefur ekki alveg setið auðum höndum
og nú er ný mynd tilbúin fyrir kvikmyndahús. Sú
heitir Passion of Mind og er rómantískur spennu-
tryllir um einmana ekkju sem skapar sér drauma-
veröld. Demi hefur líka verið að reyna fyrir sér á nýj-
um vettvangi. Hún tók að sér að ritstýra nýjasta
tölublaði tískuritsins Marie Claire þar sem hún kom
með hugmyndir að efni og valdi bestu sögurnar.
"Demi er vel með á nótunum í tískunni og er með
góðan húmor. Hún er bæði falleg og gáfuð," segir
Glenda Baily, yfirritstýra blaðsins.
LEIST VEL Á BOSSANN
er alltaf jafn fjörug. Hún er nú að
vinna með Brendan Fraser (George of the Jungle,
The Mummy) að teiknimynd sem kallast Monkeybo-
ne. Þau Ijá söguhetjunum rödd sína og það er alltaf
stuð þar sem Whoopi er nálægt. Hún er alltaf að
hrósa Fraser fyrir að hafa fallegan rass og á það til
að klípa stjörnuna í afturendann þegar hann á síst
von á því. Fraser er frekar feiminn og hlédrægur og
vék sér oftast undan þegar Whoopi lét til skarar
skríða. Hún var hissa á þessum viðbrögðum og bað
aðstoðarkonu sína að komast að því hvort strákur-
inn væri samkynhneigður. Það er þó ekki ástæðan
fyrir því að hann sýnir Whoopi ekki áhuga. Fraser er
nýgiftur og ástfanginn upp fyrir haus.