Vikan


Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 17

Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 17
komið mér til góða í því sem við höfum verið að gera í dansleik- húsinu. Vala Þórsdóttir leikkona stundaði nám við þennan sama skóla en ég held að ekki hafi fleiri Islendingar verið þar. Á hverju ári sækja átta þúsund manns um skólavist og aðeins þrjú þúsund fá að þreyta inntökupróf." Mörg öúsund umsækjend- ur á huerju ári En hvað með Kolbrúnu? Fór hún í Welsh College of Music and Drama til að feta í fótspor Ant- hony Hopkins? „Nei, það réð ekki ferðinni fyrst og fremst. Ég Ias um skól- ann og var svo heppin að vera tekin inn. Mörg þúsund manns sækja um á hverju ári í Bretlandi og aðeins örfáir fá inngöngu. Út- lendingar eiga auk þess enn erf- iðara um vik en heimamenn svo það er ekkert sjálfgefið að kom- ast að. Þar er meiri skipting milli deilda en tíðkast í Bretton Hall og hver deild sinnir fyrst og fremst sínu hlutverki. Á þriðja ári er rekið nemendaleikhús allt árið og þá koma allir saman og vinna hver á sínu sviði.“ Er ekki dýrt að stunda nám er- lendis? „Jú, það er dýrt," segir Kol- brún. „Við fáum lán til fram- færslu en ekki fyrir skólagjöld- um. Það gefur augaleið að við verðum að vinna mikið yfir sum- arið en lánasjóðurinn hefur þá stefnu að niiða lánin við bæði sumartekjur og tekjur maka þeg- ar úthlutað er. Það getur oft kom- ið sér illa því skólagjöldin eru há og ekki er tekið tillit til þess að afla þarf peninga til að greiða þau. Sérstaklega á þetta við þeg- ar konur eru í kostnaðarsömu námi því þær eiga yfirleitt ein- ungis kost á lægra launuðum störfum en makinn og fari hann yfir ákveðið tekjumark lækkar framfærslulánið.“ Ofbeldi og einelti túlkað í dansi, tali og tónum Stelpurnar höfðu þann sið þeg- ar þær komu heim í frí að æfa og setja upp sýningar í Dansleikhúsi með EKKA. Sýningar voru því yfirleitt í janúar eða á sumrin. Nýjasta verk þeirra er Ber og hef- ur það vakið mikla athygli og stendur til að fara í leikferð með það víða um Evrópu. „Leikhúsið var stofnað árið 1996 og þá sýndum við verk í Listaklúbbi Þjóðleikhúskjallar- ans í janúar. Dansleikhúsið er blanda af tónlist, leiklist og dansi og það er allt frumsamið sem við setjum upp,“ segir Aino Freyja. „Við vinnum út frá einhverju þema og fullmótuð sýning verð- ur smátt og smátt til í gegnum spuna. í Ber vorum við að vinna með einelti, ofbeldi og útskúfun. Við unnum mikla heimildavinnu áður og skoðuðum ýmislegt sem skrifað hefur verið um ofbeldi og áhrif þess en einnig fórum við í minningabanka hvers og eins, sem að sýningunni kom, og bætt- um þannig við persónulegri reynslu okkar sjálfra. Við settum upp sýningu sem við kölluðum Ég sá ekki glottin í Listaklúbbi Þjóðleikhúsins árið 1998 og það verk byggðum við á ljóði eftir 13 ára stúlku sem hafði orðið fyrir einelti. Segja má að þetta verk hafi verið kveikjan að Ber því við ákváðum að þróa þetta þema betur. Við fengum í fyrsta sinn til liðs við okkur list- rænan stjórnanda og Árni Pétur Guðjónsson varð fyrir valinu. Við bættum einnig á okkur fleiri karlmönnum og þeir Friðrik Friðriksson leikari, Richard Kolnby leikari, Guðmundur Knudsen dansari og Frank Pay tónlistarmaður bættust í hópinn. Richard er sænskur en búsettur hér og Frank er Belgi. Sigurður Kaiser ljósamaður sá svo um að lýsa sýninguna en ljósin voru eig- inlega að mestu sviðsmyndin. Ber var sýnt í Tjarnarbíói og gekk mjög vel. Við urðum því miður að hætta sýningum fyrr en ella því aðstandendur hennar eru búsettir út um allan heim og margir þurftu að hverfa heim til sín. Okkur tókst þó að koma saman og fara á listahátíð f Lit- háen sem er mjög virt og vinsæl. íslenski dansflokkurinn hefur farið tvisvar á þessa hátíð. Til stendur svo að sýna Ber á menn- ingarnótt hér í Reykjavík í sum- ar og sýningin fer einnig á EXPÓ 2000, heimssýninguna í Hannover, og verður sýnd þar á þjóðardegi Islendinga, 30. ágúst í sumar.“ Erfítt að vera dansari á íslandi Það vekur athygli að dansar- arnir eru allir meira og minna bú- settir erlendis. Hverju sætir það? „Dansarar eiga erfitt uppdrátt- ar á Islandi," segir Aino Freyja. „Það er lítill markaður fyrir dans hér á landi og þótt Islenski dans- flokkurinn sé að gera stórkost- lega hluti komast færri að þar en vilja. Möguleikarnir eru sömu- leiðis fjölbreyttari úti en við erum nú að vinna að því að breyta stöðunni hér með tilkomu Dansleikhússins með EKKA." Þær ættu ekki að verða verk- efnalausar fremur en endranær, þessar ungu, duglegu listakonur því auk þess að fara út með sýn- ingu sína munu þær setja upp og hanna hreyfingar á tískusýningu hönnunarfyrirtækisins Pell og purpuri. „Þar verða fötin í aðalhlut- verki og hreyfingin hugsuð til þess að undirstrika þau og vekja frekari athygli á þeim,“ segir Aino Freyja. „Við munum líka setja upp nýja sýningu í haust á fyrstu alvöruleiklistarhátíð sem haldin verður hér á íslandi. Það verk verður eitt af stærri verk- um á þeirri hátíð. Sýningin heit- ir Tilvist og fjallar um samskipti fólks fyrr og nú með aðaláherslu á þær breytingar sem hafa orðið með tilkomu tækninnar." Þær eru bjartsýnar og fullar af eldmóði þessar konur, eins og heyra má á því að þær ætla sér ekki minna hlutverk en það að hefja dansleikhúslist til vegs og virðingar á íslandi. Dugnaður þeirra er hins vegar slíkur að það er engin ástæða til að efast um að þeim takist það. Vikan 17 Dansleikhú.s ineð EKKA bendir á þann stað í dag- skrá listahátíðar í Litháen þar sem sýningin Ber er kynnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.