Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 36
GRÆNMETISHANASTÉL
6 gulrætur, endar skornir af
4 sellerístönglar, endar
skornir af
1 rauð paprika
3 tómatar
1 bolli steinselja
1 gulrófa
safi úr 1/2 sítrónu
AÐFERD:
Hreinsið grænmetið vel og
skerið í smáa bita. Setjið
grænmetið í safapressuvél og
pressið safann úr grænmet-
inu. Setjið safann í könnu
ásamt safanum úr sítrónunni
og hrærið öllu vel saman.
Hellið safanum í glös og ber-
ið fram.
GRÆNMETISSAFI
6 tómatar
3 gulrœtur
5 sellerístönglar
2 rauðar paprikur
1/2 gulrófa
2 msk. sítrónusafi
ADFERÐ:
Skolið og skerið grænmet-
ið niður. Setjið í safapressuvél
og pressið safann úr græn-
metinu. Setjið í könnu og
hrærið öllu vel saman, bætið
sítrónusafa saman við. Hellið
í 2 glös.
MÖNDLUMJÓLK
1/2 bolli afhýddar möndlur
2 glös vatn
1 vanillustöng
AÐFERÐ:
Setjið möndlurnar í bland-
ara og myljið smátt. Bætið
kornum úr vanillustöng sam-
an við ásamt vatni og hrærið
öllu saman þar til drykkurinn
er kekkjalaus. Sigtið drykk-
inn og hellið í könnu.
VATNS- OG HUN-
ANGSMELÓNUSAFI
1/4 stór melóna
1/2 hunangsmelóna
AÐFERD:
Skerið vatns- og hun-
angsmelónu úr hýðinu. Fjar-
lægið steina. Skerið melón-
urnar í ræmur og setjið í safa-
pressuvél. Setjið safann í
könnu og hrærið. Hellið í 2
glös og setjið ísmola út í.
GULLINN MORGUNDRYKKUR
3 appelsínur
1 sítróna
4 eggjarauður
1 msk. fljótandi hunang
ADFERÐ:
Pressið safann úr appelsín-
unum. Setjið eggjarauður í
matvinnsluvél og bætið safan-
um og hunangi saman við.
Hrærið uns safinn verður
freyðandi. Setjið í könnu og
hellið í 2 glös.
KRAKKAKOKTEILL
1 dós jógúrt án bragðefna
safi úr 2 appelsínum
100 g jarðarber
1 banani
safi úr 1/2 sítrónu
1 msk. fljótandi hunang
AÐFERD:
Setjið jógúrt, appel-
sínusafa, hreinsuð jarðarber
og afhýddan banana í mat-
vinnsluvél. Hrærið uns safinn
verður freyðandi og bætið
sítrónusafa og hunangi sam-
an við. Hellið í könnu og síð-
an í 2 krakkaglös.
EPLA-SELLERÍSAFI
6 epli
2 sellerístönglar
safi úr 1 sítrónu
ísmolar
1 bolli sódavatn
ADFERÐ:
Skerið eplin og selleríið í
smáa bita. Setjið grænmetið í
safapressuvél ásamt
sítrónusafa og hrærið þar til
öllu er vel blandað saman.
Hellið safanum í könnu og
bætið ísmolum og sódavatni
saman við. Hellið safanum í
glös og berið fram.
JARDARBERJAKOKKTEILL
250 g jarðarber
3 appelsínur
1/2 hunangsmelóna
1/4 l sódavatn
ísmolar
appelsínusneiðar til að
skreyta með
ADFERÐ:
Skolið jarðarberin og setjið
þau í safapressuvél. Pressið
berin og setjið safann úr þeim
í könnu. Skerið appelsínur og
melónu í smáa bita og press-
ið safann úr þeim og bætið
saman við. Bætið ísmolum og
sódavatni saman við og hrær-
ið öllu vel saman. Hellið í
glös og skreytið með appel-
sínusneið. Berið fram.
Verði ykkur að góðu,
Fríða Sophía Böðvarsdóttir
36 Vikan