Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 48
Texti: Steingerður Ste i narsdó11 i r
Myndir: Sigurjón Ragnar
Ólína Gelrsdóttír. eigandí
myndlislar- og föndurvöru-
búðarinnar Ó-línu, hefur
alitaf haft mikinn áhuga á
listsköpun. Hún er leikskóla-
kennari að mennt og meðan
hún starfaði á leikskólum
lagði hún míkla áherslu á að
hvetia börnin til sköpunar
og örva bau. Áhugí hennar
gekk svo langt að hún fór í
framhaldsnám í Levande
Verkstad í Svíbióð gagngert
í heim tilgangi að geta bætt
víð hekkingu sína og hug-
myndir á listasviðinu.
Levande Verkstad er skóli
sem ætlaður er heim sem
vinna með listsköpun í starfi
sínu og Ólína byr enn að
heírri hekkingu sem hún
fékk bar bótt hún nýtist
henni á annan hátt nú en
áður. Hún hefur einnig kennt
ótal mörgum að föndra og
vínna listræna vinnu á ðtal
námskeiðum. Ólína leggur
mikla áherslu á að hver og
einn vírki eigið ímyndarafl
fremur en að kaupa tilbúið
og setja saman.
„Ég er í því að hvetja fólk til
að nota eigið hugmyndaflug.
Ég sinni skólunum og leik-
skólunum mjög mikið og þeir
kaupa ekki tilbúna hluti. IO-
línu er að finna allt sem þarf
til að örva ímyndunaraflið og
skapa fallega hluti. En hvern-
ig fær fólk hugmyndir? Með
því að skoða lífið, tilveruna,
náttúruna og með því að tala
saman. Ég vil örva sjálfstæða
hugsun á öllum sviðum.
Menn eiga bara að setjast nið-
ur og byrja að leika sér. Leið-
in að listinni er í gegnum leik.
Skapalón og tilbúið fönd-
ur eru skemmtileg og gefa
þeim sem vinna með þau mik-
ið en ekkert jafnast á við það
að draga upp eigin mynd af
því sem er allt í kringum okk-
ur. Við þurfum ekki að kaupa
tilbúin mót. Auðvitað er
þetta líka spurning um sjálfs-
traust en ég vil minna á að
það er ekki nauðsynlegt til að
hlutur verði fallegur að vera
með þráðbeinar línur og allt
með ljósmyndaraunsæi."
Hugmyndabanki ekki síð-
ur en verslun
Ólína kenndi lengi við
Fósturskólann og hefur í
mörg ár haldið námskeið þar
sem hún kennir handbrúðu-
og Waldorfbrúðugerð hjá
Námsflokkunum. Þessi nám-
skeið hafa verið mjög vinsæl
og hún hyggst nú bjóða upp
á námskeið í tauþrykki í versl-
un sinni og fleiri námskeið
eru í undirbúningi, til að
mynda eitt í málningu leir-
potta og hvernig gefa eigi
þeim gamaldags áferð.
„Ég vinn mikið með starfs-
fólki leikskóla og hvet það til
að nota alltaf eigið ímyndun-
arafl. Það gleður mig að fólk-
ið er alltaf jafnánægt með ár-
angurinn. Þegar brúður eru
gerðar er svo gaman að sjá
hvað sprettur úr höndunum
á manni. Ég vil kalla slík
vinnubrögð sköpun en ekki
öpun. Á tauþrykksnámskeið-
unum kenni ég fólki einfalt
tauþrykk sem bæði börn og
fullorðnir geta unnið saman.
Fólk lærir grunnaðferðina og
svo er allt eftir það einungis
spurning um æfingu. Hingað
til hefur verið lítið um að al-
menningur geti lært tauþrykk
sem er synd því þetta er
skemmtileg vinna sem hæfir
bæði börnum og fullorðnum.
Ég er vön að teikna mynstur
á pappír, klippa það síðan út
og leggja á tauþrykksramann,
þá er liturinn borin á og síð-
an sker ég litinn í gegnum
hann. Þessi aðferð var áður
kölluð silkiþrykk því silki var
strengt á rammann en nú er
það oftast nælon.“
I verslun sinni selur Ólína
allt sem þarf til að þrykkja á
tau svo og tól til pappírsgerð-
ar. Uppskrift að endurunnum
pappír er fáanleg ásamt leið-
beiningum og í versluninni
liggja frammi bækur og blöð
sem hægt er að fletta til að fá
hugmyndir. Þar má einnig sjá
hluti sem hún hefur gert sjálf
og Ólína er alveg tilbúin að
deila með öðrum aðferðun-
um sem hún notar til að ná
nákvæmlega þessum blæ-
brigðum.
„Ég hef gaman af að ráð-
leggja viðskiptavinum mínum
og ég hef farið með marga til-
búna hluti á handverkssýn-
ingar þar sem þeir hafa vak-
ið mikla athygli. í föndri eru
tískusveiflur eins og á öðrum
sviðum en ég tel mig ekki elta
neina ákveðna tísku heldur
veita þjónustu sem alltaf er
þörf fyrir. I surnar flytur versl-
unin á Skólavörðustíg og þá
ætla ég að auka við vöruúr-
valið og bjóða meira af vörum
sem henta gangandi umferð."
Vandaðir lítir frá gömlu
fyrirtæki
Litirnir sem Ólína selur eru
frá franska stórfyrirtækinu Le
France & Boubourgeois en
það er eitt elsta framleiðslu-
fyrirtæki myndlistarvara í
heiminum, stofnað árið 1720.
Ó-lína selur skólalínu þeirra
sem heitir Color & Co en þeir
litir eru eiturefnalausir og
henta því börnum vel. Þekju-
litirnir frá þeim hafa verið
verðlaunaðir fyrir gæði en
akríllitirnir eru einstaklega
góðir því með þeim má mála
á nánast hvaða yfirborð sem
er. Þá má nota á gler, leir,
trölladeig, tré, tau og pappír.