Vikan


Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 18

Vikan - 13.06.2000, Blaðsíða 18
mýkingarefni sálarinnar Skynfærín hafa mikil áhrif á líðan okkar. Tónlist getur haft róandi og slakandi áhrif að ioknum erf- iðum degi en hún getur líka hresst okkur við og núlið í leik- fimi verður léttara hegar hressi- leg lög eru spiluð undir. flugun nema fegurð landslagsins, einnig há tjáningu hugmynda og tilfinn- inga sem býr í listum og fyrsti ástarneistínn kviknar oft hegar við lítum draumaprinsinn eða - prinsessuna augum. Bragð af góðum mat getur enst lengi í minningunni og súrt, beiskt bragð fælir okkur frá bví að smakka á einhverjum fæðutegundum sem okkur líka ekki. Snerting vekur vellíðan en við kippum líka að okkur hendinni hegar við snertum á hvössum ósléttum brúnum. Á bessum áhrifum skynfæranna á sálarlífið byggir ilmkjarnaolíu- meðferð og með henni má ná góðum árangri. lmkj arnaolíumeðferð eða aromatherapy er eldgömul aðferð til heilsubótar og vel þekkt grein innan grasalækninga. Ilmkjarnaolíur eru unnar úr blómum, trjáberki og jurtum. Blómasafinn eða barkar- safinn er þéttur þar til eins konar kjarni eða „essence“ situr eftir og líknandi ilmur plöntunnar nýtur sín til fulls. Hver ilmkjarnaolía hefur sinn sérstaka ilm og ákveðna verkan. Sumar eru róandi og slakandi meðan aðrar fríska og örva. Ilmkjarnaolíur eru vinsæl ástarlyf enda vel þekkt að lyktarskynið gegnir mikil- vægu hlutverki í kynörvun. Meðal þeirra ilmkjarnaolía sem verka kynörvandi er rósaolía. Hugsanlega er það þess vegna sem ástfangnir karlmenn gefa elskunum sín- um gjarnan rósir og ekki ólík- legt að það hafi áhrif jafnlengi og blómin standa. Ilmkjarnaolíur eru mikið notaðar þegar verið er að nudda og vitað er að nudd ýtir undir tilfinningalega og and- lega vellíðan. Það hjálpar einnig til að styrkja vöðvana og dregur úr bólgum og óþægindum, örvar blóðrás og brýtur niður fitu. Ilmkjarna- olíur geta aukið mjög á þessi heilsusamlegu áhrif nuddsins, hver á sinn hátt. Frá Nelson & Russell má fá hreinar ilm- kjarnaolíur sem blandaðar eru grunnolíu og þar með má fá bestu nuddolíu sem völ er á. Síðan má breyta urn ilm eft- ir líðan og örva, slaka, róa eða draga úr vöðvaverkjum, allt eftir því á hverju er helst þörf í það og það skiptið. Umkjarnaolíur eru gjarnan notaðar í bað, út í fótabaðið og í andlitsbað. Allt að átta dropar af þeirri olíu sem orð- ið hefur fyrir valinu eru látn- ir drjúpa út í baðvatnið en í fótabað eða andlitsbað þarf minna, þ.e. þrjá til sex dropa. Þegar ilmkjarnaolíu er bland- að saman við baðvatnið er ár- angursríkast að loka baðher- berginu í smátíma áður en lagst er í baðið til að leyfa ilm- inum að stíga upp í andrúms- loftið með vatnsgufunni. All- ir gluggar eiga að vera lokað- ir og ef hægt er er gott að ein- angra ilminn enn betur með því að draga baðhengi eða glerhurðir fyrir baðkerið. Andlitsbaðið hreinsar og frískar og best er að beygja sig yfir skál með ilmkjarnaolíu og setja handklæði yfir höfuðið til að einangra ilminn. Njótið ilmsins í nokkrar mínútur og leyfið olíunum að smjúga inn í húðina og hreinsa hana. Skolið síðan andlitið með köldu vatni. Fótabað með ilmkjarnaolíum getur dregið úr ýmsum fótameinum eins og sveppum og hjálpað til við að halda siggmyndun í skefj- um. En ilmkjarnaolíur eru ekki síður áhrifaríkar til að draga úr bólgum í þreyttum fótum. Ilmolíubrennara er gott að nota til að njóta heilsubæt- andi áhrifa ilmkjarnaolíunn- ar. Skál er lögð á grind og hit- að undir hana með litlu kerti. Ilmkjarnaolíu er blandað saman við vatn og hellt í skál- ina. Ilmurinn stígur upp þeg- ar skálin hitnar og sá sem ilmolíumeðferðarinnar nýt- ur andar að sér gufunum í 18 Vikan Texti: Steingerður Steinarsdó11 i r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.