Vikan - 13.06.2000, Side 29
I
eldrum hans sem ég hafði hálft
í hvoru litið á sem ömmu mína
og afa. Ég var hins vegar ekk-
ert ánægð með alla þessa pakka
því ég var komin með ógeð á
þessum flóknu fjölskyldu-
tengslum. Mér fannst enginn
„eiga“ mig og ég ekki eiga
neinn nema kannski litlu systk-
ini mín sem ég dýrkaði og dáði.
Ég fékk mér í glas með bróð-
ur mínum í fyrsta skipti þessi
áramót og við töluðum mikið
saman þegar vínið var farið að
losa um hömlurnar. Hann varð
rosalega fullur og talaði illa um
mömmu og sagðist ætla að flytja
að heiman. Það var svo sem
ekkert óeðlilegt að fullorðinn
bróðir minn vildi flytja að heim-
an en ég gat ekki hugsað mér að
missa hann út af heimilinu og
spurði því hvort ég mætti koma
með honum. í fyrstu fannst
honum það fáranleg hugmynd
þar sem við værum bæði í námi
en að lokum kom lausnin af
himnum ofan, ef svo má að orði
komast. Faðir
hans, þessi
yndislegi
maður,
bauð okk-
ur báðum
að búa hjá
sér. Ég
bjóst við að
mamma
myndi setja
sig upp á móti
því en sem bet-
ur fer gerði hún
það ekki.
Pabbi
var hins vegar dálítið sár yfir því
að ég skyldi ákveða að fylgja
bróður mínum í stað þess að
flytja til hans en hann jafnaði sig
þegar hann sá hvað ég þurfti
mikið á bróður mínum að
halda.
Ég hafði það mjög gott á
meðan ég bjó hjá bróður mín-
um og pabba hans en ég ákvað
að flytja aftur heim til mömmu
þegar ég var í öðrum bekk í
menntaskóla. Það var svo sem
engin ein ástæða fyrir því.
Bróðir minn var kominn með
konu og vildi fara að búa, ég
saknaði litlu systkina minna og
hafði dálitlar áhyggjur af
vissi nefnilega að hún var kom-
inn með nýjan kærasta og mér
leist ekkert á hann.
Nýi kærastinn var sá eini af
eiginmönnum mömmu sem ég
hef virkilega fyrirlitið.
Hann var algjör skíthæll og
stjórnaði heimilinu með
heraga. Mér finnst nú að rúm-
lega fertug konan, þ.e.s.a. móð-
ir mín, hefði átt að vera búin að
læra af reynslunni en hún var
gjörsamlega blind á galla hans
og ástfangnari en nokkru sinni
fyrr. Hún vildi endilega eignast
barn með þessum nýja kærasta
sínum þótt hún væri nú orðin
helst til gömul til þess. Nýi
kærastinn var í frekar íhalds-
sömum sértrúarsöfnuði og vildi
gjarnan eignast barn en að sjálf-
sögðu bara með lögmætri eigin-
konu sinni. Það fór því svo að
hann og mamma giftu sig þeg-
ar hún var komin tæpa fjóra
mánuði á leið.
Þegar hér var komið sögu
hefði ég auðveldlega getað
flutt að heiman þar sem ég var
orðin stúdent og því orðin full-
orðin manneskja. Mér fannst ég
bara ekki geta það því einhver
varð að hafa stjórn á heimil-
inu. Mamma sveif um á
rósrauðu skýi því hún
var svo ástfangin
og ánægð
með nýja
barnið
hafði því lítinn tíma fyrir tví-
burasystkini mín.
Þegar mamma og fjórði mað-
ur hennar, sem ég kalla aldrei
annað en skíthælinn, voru búin
að vera gift í tæp þrjú ár kom
babb í bátinn sem olli enn ein-
um skilnaðinum. Mamma fékk
vægt hjartaáfall og þessi svo-
kallaði eiginmaður hennar gat
ekki tekist á við það og flutti út
og sótti um skilnað. Mamma
var ekki mönnum sinnandi
mjög lengi á eftir og þurfti ali-
an þann stuðning sem hún gat
fengið. Ég bjó því enn heima
og Daníel, sem þá var kominn
í sambúð með annarri konu,
hjálpaði henni einnig mikið.
Mitt eigið ástarlíf gekk upp og
ofan og sennileg hef ég kastað
frá mér mörgum góðum mönn-
um því ég var svo upptekin af
mömmu og hennar ástandi.
í dag er mamma gift eigin-
manni númer 5 og þrátt fyrir að
þau hafi nú verið gift í um þrjú
ár þori ég ekkert að segja til um
framhaldið. Ég hef hins vegar
ákveðið að hætta að skipta mér
af hennar lífi og fara að einbeita
mér að eigin ástarlífi. Ég er of-
boðslega tortryggin og varkár
þegar kemur að samböndum
við karlmenn en nú er svo kom-
ið að mér finnst að ég eigi það
skilið að finna góðan mann til
að eyða ævinni með, eða að
minnsta kosti stórum hluta
hennar. Ég vona bara að hann
sé á næsta leiti og að honum
takist að sannfæra mig um að
ástin geti enst.
Lesandi segir
Gunnhildi Lily
Magnúsdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni með
okkur? Er eitthvað sem hefur
haft mikil áhrif á þig, jafnvel
breytt lifi þínu? Þér er vel-
komið að skrifa eða hringja til
okkar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
HcimiHsfangið er: Vikan
- „Lífsreynslusaga‘% Seljavcgur 2,
101 Kcykjavík,
Netfang: v ikan@frocli.is