Vikan


Vikan - 29.08.2000, Qupperneq 7

Vikan - 29.08.2000, Qupperneq 7
Dagbjört ólst upp í ástríkri og samhentri fjölskyldu í Reykja- vík. Hún á tvö systkini, eldri bróður og yngri systur. Að grunnskóla loknum fór hún í framhaldsskóla og þaðan í Há- skólann. „Eftir háskólanám fór ég í framhaldsnám til stórborg- ar í Bandaríkjunum. Ég var ný- fráskilin og dálítið rótlaus. Ég hafði verið í föstu sambandi frá nítján ára aldri með strák sem ég kynntist í framhaldsskóla. Við vorum saman í fjögur ár og ég hafði ekki reynt mikið fyrir mér með hinu kyninu. Mér fannst frábært að vera í Banda- ríkjunum og ég vera afskaplega frjáls kona. Ég eignaðist ágæta kunningja og fór mikið út að skemmta mér með þeim. Eitt kvöldið hitti ég mann. Við hrif- umst strax af hvort öðru. Hann var mjög myndarlegur og mér fannst hann æðislegur. Ég hafði drukkið töluvert af áfengi og þegar hann stakk upp á því að við færum saman heim ákvað ég að slá til. Maður lifði, jú, ekki nema einu sinni. Ég veit að ég hefði ekki gert þetta hefði ég verið allsgáð,“ segir Dagbjört og hristir höfuðið. „Parna var ég einhleyp og frjáls, í erlendri stórborg og var til í að prófa allt. Við vorum tvisvar saman þessa nótt. Ég var á pillunni og það var rödd innra með mér sem sagði mér að við ættum að nota smokk. Afeng- ið slævði dómgreind mína og ég ýtti hugsuninni um að ég gæti smitast af einhverju frá mér. Mér fannst líkurnar á að ég gæti smitast af HlV-veirunni engar, ég hafði meiri áhyggjur af kyn- sjúkdómum. Samt var ég mjög vel upplýst um hættuna á HIV- smiti við kynmök. Ég kvaddi manninn morguninn eftir vit- andi að ég myndi aldrei sjá hann aftur. Mér fannst þessi nótt bara skemmtilegt ævintýri og minning,“ segir hún og brosir stutt. Greínd HIV - jákvæð Dagbjört kom til íslands að námi loknu og byrjaði að vinna við sitt fag. „Ég hafði engar áhyggur og hugsaði ekkert út þessa nótt meira. Rúmu ári síð- ar þurfti ég að leita til læknis vegna sjúkdóms sem hrjáði mig og hann ákvað að taka blóðprufu. Það var mikil um- ræða um HlV-smit og alnæmi á þessum tíma og af rælni frek- ar en að ég hefði af því áhyggj- ur bað ég hann um að gera einnig HlV-próf. Liðu nokkrir dagar og ég hugsaði ekkert út í blóðprufuna enda fannst mér í sjálfu sér ég ekki þurfa að hafa áhyggjur af hugsanlegu HIV- smiti. Það var svo fjarlægt. Einn sólskinsdag þegar Dag- björt var í sumarfríi hringdi sím- inn og það var kona hinum megin á línunni. „Hún tjáði mér umbúðalaust að prófið hefði reynst jákvætt og að ég þyrfti að koma í annað próf svo að hægt væri að staðfesta niðurstöðuna. Hjartað í mér hætti að slá við fréttirnar, ég trúði þessu ekki. Ég felldi tár en grét samt ekki. Áfallið kom eftir á, mörgum mánuðum, jafnvel árum seinna." Hún segist vera af- skaplega hissa á að sér hafi ver- ið tilkynnt þetta í gegnum síma. ,,Mér fyndist fag- mannlegra að læknir boðaði mann í viðtal og segði manni frá þessu auglitis til auglitis og að maður fengi samstundis einhvern stuðning og fræðslu um hvað væri í gangi.“ Dagbjörtu var skiljanlega mikið um þessar fréttir. „Ég hringdi strax í mömmu í vinn- una. Hún fékk auðvitað algjört áfall en sýndi það ekki og veitti mér mikinn stuðning. Hún hafði strax samband við pabba og bróður minn og sagði þeim frá þessu en vildi ekki hringja í systur mína, sem var að vinna erlendis, og segja henni þetta í gegnum síma. Hún fékk því ekkert að vita fyrr en um haust- ið. Ég sagði einnig nánustu vin- um mínum frá þessu. Það urðu auðvitað allir fyrir miklu áfalli því enginn vissi hvað framtíðin bæri í skauti sér fyrir mig en ég fékk mikinn stuðning og sam- úð. Sjálf var ég dofin fyrstu dagana og áttaði mig ekki alveg á hvað þetta allt saman þýddi fyrir mig. Nokkrum dögum seinna fórum við mamma til læknis sem reyndist mér afskap- lega vel. Hann sagði mér að ég ætti tíu góð ár eftir og í fyrstu fagnaði ég því að vera hreinlega bara lifandi." með þessu. En þetta er svo lít- ið land og fiskisagan væri fljót að fljúga og það kæmi mér ekki vel í starfi.“ Hún segir að fólk sé enn mjög hrætt við þennan sjúkdóm. „Það er opið og um- burðarlynt í tali en um leið og hann kemur nálægt því, þegar til dæmis manneskja sem það þekkir smitast, þá fer það oft í vörn og veit ekki hvernig það á að haga daglegum samskipt- um.“ " Dagbjört segist í fyrstu hafa hugsað: Af hverju ég? „Ég fann þó fljótlega að slíkur hugsun- arháttur kæmi mér ekki að gagni. Því reyndi ég markvisst að breyta hugsunum mínum og þó ég axli mína ábyrgð á því sem gerðist, þá reyni ég að hugsa sem svo að þetta séu ör- lögin. Það auðveldar mér að takast á við þetta en það er oft erfitt að hugsa til þess að aðeins ein nótt hafi haft svo afdrifa- ríkar afleiðingar fyrir líf mitt. I dag hugsa ég frekar: Af hverju ekki ég? Ég vissi um all- ar smitleiðir og tók þarna þátt í þeirri rússnesku rúllettu sem það er að stunda kynlíf án smokks með ókunn- ugum. Það var ekki eins og einhver hafi platað mig, ég tók óþarfa áhættu,“ segir Dagbjört alvarleg á svip. Fólk er mjög hrætl við sjúkdóminn Dagbjört fann aldrei fyrir öðru en stuðningi frá sínum nánustu og varð aldrei vör við neikvæðar tilfinningar í sinn garð eða sorg sinna nánustu. Seinna frétti hún að foreldrar hennar hefðu brotnað saman og grátið mikið yfir þessu. Dag- björt segir að enn ríki mikil hræðsla og fordómar í garð HlV-smitaðra og því vill hún ekki koma opinberlega fram. Slíkt gæti til dæmis skert starfsmöguleika hennar. „Ég segi aðeins fólki frá þessu sem ég treysti fullkomlega og ber virðingu fyrir. Sjálfri finnst mér þetta ekkert til- tökumál, ég hef lært að lifa Eg tók barna þátt í Ueirrí rússnesku rúl- lettu sem það er að stunda kynlíf án smokks
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.