Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 52
Vöðuabólga í öxlum, upp-
handleggjum, hálsi og baki
er að verða einn erfíðasti
kuilli sem nútímafólk glímir
uið. Eina ráðið virðist uera
heit böð, nudd og hreyfing
en hótt allt petta sé stundað
eiga uerkirnir til að taka sig
upp aftur. í sumum tilfellum
kueður suo rammt að bessu
að fólk er óuinnufært uegna
höfuðuerkja, svima og jafn-
vel sjóntruflana. Það kemur
ábyggilega fáum á óvart að
heyra að uöðuabólga er ná-
tengd buí huernig við beitum
líkamanum uið uinnuna og
oft má draga verulega ór
verkjum og fækka köstum
með buí að gera örlitlar
breytingar á buí huernig
skrifborðsstóllinn er stilltur
eða í hvaða hæð borðið er.
Um þessar mundir
þykir sjálfsagt að
notaðir séu ör-
yggishjálmar á
byggingarsvæðum og annars
° staðar þar sem hætta er á að
« hlutirfalliofanúrloftinu. Sjó-
™ menn klæðast flotbúningum
■- og skór með stáltá verja við-
£ kvæma fætur iðnaðarmanna
_ við vinnu. Skrifstofuþrællinn
« hefur hins vegar hingað til
Z verið talinn í lítilli hættu og
“ óþarfi að líta eftir þörfum
« hans á nokkurn hátt. Mikil
w aukning vöðvabólgutilfella
.1: ogverkjafrástoðkerfilíkam-
x ans hefur hins vegar sýnt og
“ sannað að það er að ýmsu að
osta big heilsuna
hyggja á skrifstofunni ekki
síður en í verksmiðjum. Mik-
il aukning þrálátra vöðva-
bólgutilfella og aukning í lið-
bólgum sýna og sanna að
röng líkamsbeiting getur
hreinlega kostað menn heils-
una ef ekki er að gert.
Að sögn bandarískra sér-
fræðinga hefur mikil fækkun
starfsfólks í stórum fyrirtækj-
um þar í landi meðal annars
gert það að verkum að vinnu-
álag er mun meira en áður.
Starfsmenn eru oft stressaðir
og í kapphlaupi við klukkuna
um að ljúka dagsverki sínu og
við slík skilyrði er líklegra en
ella að menn beiti sér rangt og
séu stífari við vinnuna en
æskilegt er. Skipting vinnu-
rýmis í bása eins og tíðkast
mjög mikið nú á dögum á
einnig sinn þátt í að auka lík-
ur á rangri líkamsbeitingu. I
sumum tilfellum eru básar-
nir það þröngir að þeir tak-
marka hreyfigetu starfsfólks-
ins og það hefur jafnvel ekki
um annað að velja en að sitja
í einni og sömu stellingunni
við skrifborðið allan daginn.
Bandaríska vinnueftirlitið
komst að því að við vinnuskil-
yrði eins og lýst er hér að ofan
varð starfsfólkið mun oftar
veikt en hjá fyrirtækjum þar
sem vinnuaðstaðan var betri.
Sömuleiðis voru afköstin
mun minni og fólkið í þröngu
básunum stóð oftar á fætur og
Fjórir algengir uinnusjúkdómar
Sinaskeiðabólga: Bólga í vefjum í úlnliðnum seni verður til þess
að þrýstingur myndast á taugarnar sem stjórna hendinni. Helstu
einkenni eru náladofi eöa máttleysi í hendinni, snarpir stingir
sem leiða upp eftir handlcggjunum. sérstaklega að nóttu til.
og hiti í fingrunum. Þumalfingurinn gelur orðið máttlítill og
erfitt er að kreppa höndina. Yfirleitt eru gefin bólgueyðandi
lyf við sinaskeiðabólgu og cortisón hormón sprautað í liönd-
ina lil aö draga úr bólgunni. Stundum þarf að setja höndina í
spelkur til að ekki sé hægt að hreyfa úlnliðinn meðan dregur
úr bólgunni og öðrum sjúkdómseinkennum. í mjög erfiðum
tilfellum er uppskurður eina ráðið.
Sinabólga: Bólga í sinunum sem tengja vöðvana við beinin.
Þetta stafar fyrst og fremst af ofreynslu eða rangri beitingu
vöðva. Sinabólga getur orðið hvar sem er í líkamanum en vinnu-
tengd sinabólga er algengust íöxlum, úlnlið, ogolnboga. Helstu
einkenni er bólga, mikil eymsli í liðnum og erfitt er að beita liðn-
um. Yfirleitt er sinbólga meðhöndluð með bólgueyðandi lyfj-
um, liðurinn er kældur með köldum bakstri og reynt að hvíla
hann sem mest meðan einkennin eru að hverfa. I erfiðum til-
fellum er nauðsynlegt að ganga til sjúkraþjálfara til að styrkja
liðinn og auka hreyfigetu hans.
Uöðuabólga I hálsi: Þrýstingur myndast á taugar í hálsinum.
Helslu einkenni eru verkir og eymsli í vöðvum í hálsi, doðatil-
finning sem leiðir upp í höfuðið og verkir sem rninna á nála-
dofa í öxlum, handleggjum og höndurn. Þella er sérlega al-
gengl hjá fólki seni hefur vanið sig á að láta símtólið hvíla á
annarri öxlinni og skorða það af undir vanganum meðan það
talar í síma. Vöðvabólga er meðhöndluð með bólgueyðandi lyfj-
um, sjúkraþjálfun og nuddi.
Tennisolnbogl: Bólga í epicondylebeininu eða beininu sem
stendur úl úr olnboganum og einmitt þar scm vöðvar upp-
handleggsins og framhandleggsins mætast. Helstu einkcnni
eru verkir og eymsli í olnboganum. Sérstaklega þegar hend-
inni eða handleggnum er snúið. Tennisolnbogi getur leitt til þess
að grip fólks verði verra og það eigi erfitt með að halda á hlut-
um. Tennisolnbogi er algengur meðal fólks sem vinnur við
störf seni reyna niikið á upphandlegginn t.d. húsgagnasmiðir,
trésmiðir, nuddarar og bifvélavirkjar. Tennisolnbogi er yfir-
leitt meðhöndlaður með bólgueyðandi lyfjum, heitum og köld-
um bökstrum, nuddi, hljóðbylgjum og í erfiöum tilfellum er
stundum nauðsynlegt að setja liðinn í spelkur til að koma í veg
fyrir hreyfingu meðan hann er að jafna sig.
52
Vikan