Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 50
i' V.
Hollur morgunverftur er und-
irstafta góftra afkasta í vinnu
og lcik, santa hvort 11111 biirn
cfta tullorftna er aft ræða.
:
Haustið er á næsta
leiti og skólarnir
að byrja. Hjá
mörgum íslensk-
um fjölskyldum þýðir það að
álagið verður meira á morgn-
ana, allir þurfa að fara á fæt-
ur á sama tíma, e.t.v. á eftir
að smyrja nesti handa börn-
unum og allir eiga eftir að
borða morgunmat og taka sig
til. Þá getur verið freistandi
að skella pakka af tilbúnu
morgunkorni á borðið fyrir
mannskapinn sem skóflar
korninu í sig á mettíma. En
ekki er allt gull sem glóir. Þótt
morgunkornið geti verið
þægilegur og fljótlegur morg-
unverður er kornið mishollt
og sumt af því er hreint og
beint óhollt. Auk þess er
kornið mun dýrara en heima-
tilbúinn morgunverður, s.s.
heimabakað brauð, hafra-
grautur eða ósykraðar mjólk-
urvörur.
Blaðamaður Vikunnar fór
á stúfana og kannaði næring-
argildi nokkurra algengra
tegunda af morgunkorni.
Ekki er um tæmandi umfjöll-
un að ræða því að sjálfsögðu
MIKILL SYKUR
Eins og áður sagði er það
mat margra næringafræðinga
að ekki sé æskilegt að meira
en 10 g af sykri séu í hverjum
100 g af vörunni. Af þeim
fjórtján vörutegundum sem
skoðaðar voru innihalda tíu
þeirra meira magn af sykri. í
fyrsta sæti trónir Cocoa Puffs
sem hvorki með hvorki meira
né minna en 46.7 g af sykri í
hverjum 100 g af kúlunum.
Þar á eftir kemur Frosted
Cheerios með 43 g, þá
Kellogg’s Chocos með 36 g af
sykri og Honey Nut Cheer-
ios með 35 g af sykri.
Kellogg’s All Bran og
Kellogg’s Special K sem
gjarnan eru auglýstar sem
heilsuvörur koma þar á eftir.
Hollur
uunverður
■
eru mun fleiri tegundir af
morgunkorni en hér er fjallað
um. Auk þess var næringar-
gildi gamla, góða hafragrauts-
ins kannað og var notað Sol-
gryn haframjöl til viðmiðun-
ar.
ÆSKILEG SAMSETNING
Allt morgunkorn inniheld-
ur talsvert af kolvetnum sem
eru nauðsynlegur hluti af
daglegri fæðu okkar. En þrátt
fyrir að kolvetnin séu hluti af
daglegri fæðu okkar eru þau
ekki öll holl. Sykur er nefni-
lega ein gerð kolvetna. Sykur-
inn er slæmur í óhófi, m.a.
vegna þess að hann inniheld-
ur engin önnur næringarefni,
hann tekur pláss frá vítamín-
um og steinefnum í líkaman-
um og að sjálfsögðu er hann
fitandi og fer illa með tenn-
urnar.
Æskilegt er að matur sem
maður neytir, þ.á.m. morgun-
korn, innihaldi ekki meira en
10 g af sykri í hverjum 100 g
af vörunni.
Trefjar eru einnig mikil-
vægur hluti fæðu okkar. Þær
bæta meltinguna og hafa góð
áhrif á hjartað. Æskilegt er að
neyta a.m.k. 25-30 gramma af
trefjum á dag. Upplagt er að
fá hluta trefjanna úr trefjarík-
um morgunverði.
50
Vikan
texti: G u n n h i I d u r Lily Magnúsdóttir.