Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 48
í erli dagsins höíum uiö oft
varla tíma til að taka eftir Dui
sem er að gerast í kringum
okkur. Þegar við síðan setj-
umst niður og ætlum að reyna
að muna hvað við gerðum í
seinustu viku, fyrir mánuði, í
fyrra eða árið har áður stönd-
umvíðágatí. Hvenærvar
hað aftur sem við fórum til
Kanaríeyja á jólunumP Var
hað fyrír tíu árum sem við
fluttum eða eru kannskí kom-
in tólfP Og hverníg var hað
nú aftur hegar við fórum öll
upp í sumarbústað og hað var
svo gamanP Það væri óneit-
anlega hægilegt að geta flett
hessu öllu upp.
Istað þess að skrifa hefð-
bundna dagbók (sem flest-
ir myndu aldrei gefa sér
tíma til) er þjóðráð að
punkta hjá sér stóru hlutina í líf-
inu og safna í eina bók. Hugsið
ykkur hvað væri gaman að geta
lesið eftir nokkur ár: Árið 2000:
* 15.júlí - Kom heimfrá Italíu eft-
ir frábæra ferð, er endurnœrð og
búin að slappa vel af. Feneyjar
voru yndislegar. *21. ágúst - Helga
systurdóttir og Jói giftu sig í dag
og héldu veisluna úti í glaðasól-
skini. Um kvöldið var dansað og
ég hef ekki tjúttað svona mikið í
mörg ár. Meiriháttar gaman!
* 1. september - Kristján byrjaði í
sex ára bekk í dag. Hann loftaði
varla skólatöskunni sem var álíka
stór og hann sjálfur en hánn var
œgilega stoltur. * 2. nóvember - Ég
held að ég sé ólétt. * 5. nóvember
- Ég er ólétt!
Treystu f jölskylduböndin
Oft er það svo að fjölskyldan
er sú sem menn hitta sjaldnast. í
stað þess að eyða einungis jólun-
um saman er upplagt að taka frá
eitt kvöld í mánuði, hittast og
hafa það gaman. Sé um stórfjöl-
skyldu að ræða; bræður og syst-
ur með fullt af litlum frændum og
frænkum, er góð hugmynd að
nota tækifærið og halda upp á af-
mæli allra þeirra sem urðu árinu
eldri í mánuðinum. Það má sem
dæmi borða afmælisköku,
kveikja á kerti fyrir hvern og einn
eða einfaldlega skála og syngja
afmælissönginn. Skiptist á að
halda gleðskapinn heima hjá
hvert öðru og ákveðið nýtt þema
í hvert sinn. Eitt kvöldið gætuð
þið sem dæmi spilað teiknispil-
ið, í annað skipti farið í kvöld-
göngu og drukkið heitt kakó,
næst skoðað gamlar myndir og
rifjað upp skemmtilegar minn-
ingar og þar á eftir grillað í góðu
sumarveðri og spilað fótbolta.
Gefið hugmyndafluginu lausan
tauminn!
Auktu traustið
Ekki er síður mikilvægt að
hitta fjölskylduna alla í einu og
efla þar með samkenndina er að
eyða tíma með einstaklingnum í
einrúmi. Ef þú ert foreldri með
fleiri en eitt barn skaltu taka frá
sérstaka stund í hverri viku sem
þú eyðir með hverju barni. Þó að
hún sé ekki nema örstutt, t.d.
fimmtán mínútna göngutúr, eflir
þetta traustið og barnið veit að
þú ert til staðar þegar það þarf á
þér að halda.
Gerðu hér lífið auðveldara
• Styttu tímann sem það tekur
deig að lyfta sér með því að
koma því fyrir á plötu inni í bök-
unarofni sem er slökkt á og hafa
skál af sjóðandi vatni undir.
• Komdu í veg fyrir að
tómatsósa liti geymsluílátin
með því að smyrja þau að inn-
an með ólífuolíu áður en þau
eru fyllt með gúllasi, pastarétti
eða tómatsúpu.
• Til að auðvelda þér að afhýða
hvítlauk skaltu setja hann í
fimmtán sekúndur inn í ör-
bylgjuofninn. Skemmtu þér
síðan við að horfa á hýðið
flettast af!
• Það er auðvelt að koma í veg
fyrir óæskilegar örverur á eld-
húsbekknum þegar þú vinnur
með hráan kjúkling. Settu
bökunarpappír á bekkinn áður
en þú byrjar og hafðu undirlag-
ið rakt þannig að pappírinn
haldist fastur við.
• Til að taka burtu bletti kring-
um vaska og í baðkörum er
þjóðráð að hylja svæðin með
bréfþurrku sem hefur verið
bleytt í bleikiklór. Láttu þetta
standa í þrjátíu mínútur áður
en þú tekur þurrkuna af og
hreinsaðu svæðið með heitu
vatni.
48
Vikan