Vikan


Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 39

Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 39
við? Er hann líklegur til að standa þér við hlið við upp- vaskið og barnauppeldi? Haf- ið þið svipaðar skoðanir á því hvað þið ætlið að gera í fram- tíðinni? Ætlið þið bæði að mennta ykkur meira, fara til útlanda eða eruð þið bæði sátt við ykkar hlut og að sjálfsögðu bara fyrsta skeiðið í sambandinu. Það er ákaflega misjafnt hvenær næsta skeið, hag- kvæmnisskeiðið hefst, en eft- ir því sem þú ert eldri og búin að koma þér betur fyrir í líf- inu, þeim mun fyrr hefst það, segja sér- ert komin á fertugsald- ur ert þú sennilega hætt að lifa algjörlega fyrir líðandi stundu og búin að gera einhverjar framtíðar- áætlanir, s.s. um hvort og hversu mörg börn þig langi að eiga, hvar þú ætlar að búa og hvernig gott samband eigi að vera. Ef þú ert mjög ástfang- in, (en ekki bara að leita þér að stundargamni), er því nauðsynlegt að horfa fram á veginn og sjá hvort þið eigið nógu mikið sameiginlegt til að ykkur muni líða vel sam- an á hagkvæmnisskeiðinu. Ef þið hins vegar hafið ólíkar skoðanir á mikilvægum mál- um eins og barneignum, fjár- málum, stjórnmálum og öðru því sem snertir daglegt líf okkar kemur sennilega babb í bátinn. Kannski getið þið aðlagað skoðanir ykk- ar að hvort öðru og reynt að vera sveigjan- leg en ef skoðanamun- ur ykkar er of mikill er líklegt að sambandið endi með skilnaði og við taki nýtt samband með nýju tilhugalífi, eða svo segir rað- hj ónabandskenningin að minnsta kosti. ENDURNÝJUNAR- SKEIÐIÐ Ef þú hins veg- ar finnur ekki þann eina rétta fyrr en þú ert komin á fimm- tugsaldur ert þú sennilega kom- in að vissum tímamótum f lífi þínu. Þú ert líklega búin að koma þér vel fyrir fjárhags- lega eða að minnsta kosti ekki í sama basli og um tvítugt, hefur meiri tíma fy rir sj álf a þig og veist nákvæmlega hvað þú vilt. Þú ert kannski tilbúin til að fara að gera eitthvað nýtt, fara í skóla aftur, skipta um vinnu eða flytja til útlanda. Sennilega ertu samt orðin nokkuð vanaföst og því get- ur verið erfitt að eignast maka á þessu æviskeiði sem setur tilveruna á hvolf. En ef þið eruð þroskuð og tilbúin til að hliðra til, eigið vel saman and- lega jafnt sem líkamlega og eruð góðir vinir er líklegt að þið getið komist saman í gegnum öll þrjú skeiðin, til- hugalífið, hagkvæmnisskeið- ið og endurnýjunarskeiðið. Samt sem áður getur end- urnýjunarskeiðið verið mörg- um sem þegar eru í hjóna- bandi erfitt því þá eru marg- ir í einhvers konar leit að sjálfum sér, vilja reyna nýja hluti og breyta til. Ef makinn er ekki á sömu línu eða enn Hjónabandið var sett á stofn fyrir mörg hundruð árum þegar fólk lifði yfirleitt ekki einu sinni til fimmtugs. í dag lifum við mun lengur og er því ætlað að vera í sama hjónabandinu mun lengur. Það getur reynst mörgum erfitt. fastur á hagkvæmnisskeiðinu getur því komið til árekstra. Þetta þriðja skeið hefur ver- ið kallað ýmsum mis- skemmtilegum nöfnum eins og „grái fiðringurinn" og kreppa hinna miðaldra. En sannleikurinn er sá að lífið yrði ákaflega leiðinlegt og einhæft ef við hefðum ekki leyfi til að þroskast og breyt- ast. Þess vegna er afar mikil- vægt á þessu skeiði að leyfa makanum að þroskast, breyt- ast og rækta sjálfan sig í stað þess að bæla niður langanir hans og þrár. Það er nefnilega aldrei að vita nema gamli makinn, sem var kannski orð- inn svolítið hversdagslegur og þreytandi á hagkvæmnis- skeiðinu, verði alveg ótrúlega spennandi og skemmtilegur á endurnýjunarskeiðinu. W. AÐLOGUN OG SVEIGJ- ANLEIKI Á fyrsta skeiði sambands- ins, tilhugalífinu, er róman- tíkin í algleymingi, eins og flestir vita. Þið eruð svo ást- fangin að það er næstum því sárt, blóm og veitingahús- ferðir eru daglegt brauð og þið getið hreint og beint ekki séð hvort af öðru nema í ör- stutta stund. Allt er nýtt og spennandi og það er gaman að kynnast manninum og lífi hans. En Adam er ekki lengi í þessarri paradís (og ekki Eva heldur) því tilhugalífið er Vikan 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.