Vikan - 29.08.2000, Blaðsíða 20
®¥K«;S1
& -'i .‘-Á
llerdis (iunn}>eirs(lottir o;*
1‘riðrik Itjiirnsson, cigcndur
gistilicimilisiiis Krínnnar.
„Já, Hekla á sökina á þessu
öllu saman,“ segir Herdís og
hlær og það er auðséð á svipn-
um að hún er þeim Heklu-
mönnum ekkert óskaplega reið
fyrir að leiða þau hjónin saman.
Eftir að þau hættu störfum hjá
Heklu settu þau á stofn eigin
heildverslun og ráku hana fram
til ársins 1995 að Friðriki fannst
vera kominn tími til að breyta til.
„Það var eiginlega algjör til-
viljun að við fórum út í rekstur
gistihúss. Ég seldi heildsöluna á
miðju ári 1995, og stuttu síðar var
ég staddur á skrifstofu FÍS og
rakst þar á grein í erlendu fag-
riti, þar sem fjallað var um fram-
leiðanda á kvenfatnaði sem
saumaði fyrir allar fínu búðirnar
í Bretlandi. Ég var nýbúinn að
kaupa flug og bíl til Bretlands,
þar sem við ætluðum að keyra
eitthvað um og njóta svolítið lífs-
ins áður en við ákvæðum hvað
gera skyldi í framtíðinni. Þetta
varð til þess að við komum við
hjá þessu fyrirtæki og keyptum
svolítinn lager af kvenfatnaði
sem við hugðumst selja hér
heima. Um haustið fórum við
síðan í söluferð út á land en ekk-
ert gekk. Allir voru búnir að
kaupa inn eða panta fyrir vetur-
inn. Þegar við komum norður á
Akureyri var heldur lágt á okk-
ur risið. Við leigðum okkur stúd-
íóíbúð, fórum út í Nettó og
keyptum í matinn, þetta líka fína
nautakjöt sem kallaði á gott
rauðvín. Herdís eldaði síðan
meiriháttar máltíð og málin voru
rædd yfir matnum. Herdís fékk
þá þessa bráðsnjöllu hugmynd að
við settum á stofn gistiheimili og
var það samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum. Ekkert
varð úr frekari söluferðum, við
vorum ánægð að vera búin að
taka stefnuna og dvöldum á Ak-
ureyri yfir helgina. Strax á mánu-
deginum var haldið í bæinn og
farið að svipast um eftir hentugu
húsnæði.“
Húsið við Suðurgötuna barst
þeim sömuleiðis í hendur fyrir til-
viljun. Þau voru að leita að hent-
ugu húsi í Þingholtunum þegar
kunningi Friðriks benti honum
á að húsið númer 22 við Suður-
götu myndi vera falt. Krabba-
meinsfélag Islands var þar til
húsa á byrjunarárum sínum en
eftir að það flutti upp í Skógar-
Við Suðurgötuna í Reykjavík reka hjónin Herdís Gunn-
geirsdóttír og Friðrik Björnsson gistiheimiiið Kríuna.
Þau hjónin kynntust fyrir hrjátíu og fimm árum, hegar
bæði voru að vinna hjá Heklu, og hafa unnið saman og
búið saman síðan.
Persónuleg
gestrisni a
gístíheimilum
Þeir sem ferðast hafa um Bretiand og gist á gístiheimil-
um eíga margir góðar minningar um frábæra gestgjafa
og notalegar stundir í fallegum gömlum húsum. Hér á
landi er ekki síður hægt að láta sér líða vel í hlýlegu um-
hverfi og ísiensk gestrisni er sannariega ekki síðri en
bresk. Vikan tók hús á nokkrum eigendum gistiheimíla í
Reykjavík tíl að komast að bví hvernig heir sínna gest-
gjafahlutverkinu.
Víðfræg fyrir hjálpsemi
20
Vikan
Texti: Steingerður Steinarsdó11 i r
Myndir: Sigurjón Ragnar