Vikan


Vikan - 29.08.2000, Side 20

Vikan - 29.08.2000, Side 20
®¥K«;S1 & -'i .‘-Á llerdis (iunn}>eirs(lottir o;* 1‘riðrik Itjiirnsson, cigcndur gistilicimilisiiis Krínnnar. „Já, Hekla á sökina á þessu öllu saman,“ segir Herdís og hlær og það er auðséð á svipn- um að hún er þeim Heklu- mönnum ekkert óskaplega reið fyrir að leiða þau hjónin saman. Eftir að þau hættu störfum hjá Heklu settu þau á stofn eigin heildverslun og ráku hana fram til ársins 1995 að Friðriki fannst vera kominn tími til að breyta til. „Það var eiginlega algjör til- viljun að við fórum út í rekstur gistihúss. Ég seldi heildsöluna á miðju ári 1995, og stuttu síðar var ég staddur á skrifstofu FÍS og rakst þar á grein í erlendu fag- riti, þar sem fjallað var um fram- leiðanda á kvenfatnaði sem saumaði fyrir allar fínu búðirnar í Bretlandi. Ég var nýbúinn að kaupa flug og bíl til Bretlands, þar sem við ætluðum að keyra eitthvað um og njóta svolítið lífs- ins áður en við ákvæðum hvað gera skyldi í framtíðinni. Þetta varð til þess að við komum við hjá þessu fyrirtæki og keyptum svolítinn lager af kvenfatnaði sem við hugðumst selja hér heima. Um haustið fórum við síðan í söluferð út á land en ekk- ert gekk. Allir voru búnir að kaupa inn eða panta fyrir vetur- inn. Þegar við komum norður á Akureyri var heldur lágt á okk- ur risið. Við leigðum okkur stúd- íóíbúð, fórum út í Nettó og keyptum í matinn, þetta líka fína nautakjöt sem kallaði á gott rauðvín. Herdís eldaði síðan meiriháttar máltíð og málin voru rædd yfir matnum. Herdís fékk þá þessa bráðsnjöllu hugmynd að við settum á stofn gistiheimili og var það samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Ekkert varð úr frekari söluferðum, við vorum ánægð að vera búin að taka stefnuna og dvöldum á Ak- ureyri yfir helgina. Strax á mánu- deginum var haldið í bæinn og farið að svipast um eftir hentugu húsnæði.“ Húsið við Suðurgötuna barst þeim sömuleiðis í hendur fyrir til- viljun. Þau voru að leita að hent- ugu húsi í Þingholtunum þegar kunningi Friðriks benti honum á að húsið númer 22 við Suður- götu myndi vera falt. Krabba- meinsfélag Islands var þar til húsa á byrjunarárum sínum en eftir að það flutti upp í Skógar- Við Suðurgötuna í Reykjavík reka hjónin Herdís Gunn- geirsdóttír og Friðrik Björnsson gistiheimiiið Kríuna. Þau hjónin kynntust fyrir hrjátíu og fimm árum, hegar bæði voru að vinna hjá Heklu, og hafa unnið saman og búið saman síðan. Persónuleg gestrisni a gístíheimilum Þeir sem ferðast hafa um Bretiand og gist á gístiheimil- um eíga margir góðar minningar um frábæra gestgjafa og notalegar stundir í fallegum gömlum húsum. Hér á landi er ekki síður hægt að láta sér líða vel í hlýlegu um- hverfi og ísiensk gestrisni er sannariega ekki síðri en bresk. Vikan tók hús á nokkrum eigendum gistiheimíla í Reykjavík tíl að komast að bví hvernig heir sínna gest- gjafahlutverkinu. Víðfræg fyrir hjálpsemi 20 Vikan Texti: Steingerður Steinarsdó11 i r Myndir: Sigurjón Ragnar

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.